Leita í fréttum mbl.is

Ávallt kl. 18,00

Elsku dúllurnar mínar, þið vitið að mitt spennandi einkalíf skráist jafnóðum á þetta blogg, ykkur til yndis og unaðar.

Eða þannig.

Í gær skrapp ég í búsáhaldabúð til að endurnýja hjá mér byltingaráhöld (djók), hvar ég fjárfesti í litlu kreppukolagrilli sem er ekki í frásögur færandi nema vegna þess sem ég upplifði í röðinni að kassanum.

Á undan mér voru tveir menn að spjalla og ég komst ekki hjá því að heyra.  Það var fróðlegt.

Þetta var sagt:

"Ég kúka ávallt um leið og ég vakna.  Eðlilegar hægðir eru þegar kúkurinn er um ca. 25 cm á lengd, svona þykkur (hann sýndi þykkt með tveimur fingrum), millibrúnn og þéttur í sér og nánast lyktarlaus.  Það er merki um að meltingin sé góð, mataræðið rétt og allt í sómanum".

Viðmælandinn sem reynir að fá aðrar og skemmtilegri upplýsingar spyr glaðbeittur hvort það eigi að fara að grilla.

"Já, við grillum ávallt kl. 18,00 heima hjá mér.  Alls ekki seinna og helst ekki fyrr.  Það er til þess að meltingin sé ekki á óverdræf langt fram á kvöld.  Maginn verður að hvíla sig yfir nóttina til að geta síðan skilað sínu á réttum tíma að morgni."

Viðmælandinn spyr hvort það hafi verið farið í sumarbústaðinn í ár.

"Já, ég held það nú minn kæri vin, við förum allt árið.  Áður en við leggjum í hann versla ég alltaf til ferðarinnar í sóandsómarkaði því þar gengur að kaupa svo ágætis hörfræ.  Hörfræ eru nauðsynleg til að halda hægðunum og meltingunni í rólegri en jafnri vinnslu".

Þegar hér var komið sögu rölti ég í hægðum mínum, í rólegheitunum meina ég, yfir á næsta kassa.

Ætli maðurinn sé meltingarlæknir?

Eða dítoxfrömuður?

Veit það ekki en það varð ekkert úr að ég grillaði í gærkvöldi vegna lystarleysis.

Svo var klukkan langt gengin í sjö.

Maður borðar ávallt kl. 18,00.

Sjitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Lára Hanna Einarsdóttir, 3.6.2009 kl. 09:03

2 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 09:10

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Var þetta nokkuð skólasystir mín og gömul vinkona Rósa Ingólfs.  Hún hafði alltaf svo rosalegar háyggjur af rislinum.  Neip segi bara svona. 

Ía Jóhannsdóttir, 3.6.2009 kl. 10:41

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

''Viðmælandinn sem reynir að fá aðrar og skemmtilegri upplýsingar....''

hahahahahahaha alveg kurteisin uppmáluð

Jóna Á. Gísladóttir, 3.6.2009 kl. 10:45

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já, lífið er sko enginn hægðarleikur, Jenný mín.

Brjánn Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 11:02

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

tja, nema hjá honum þessum

Brjánn Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 11:03

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð frábær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2009 kl. 11:25

8 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég þoli ekki skipulagt fólk..

Óskar Þorkelsson, 3.6.2009 kl. 11:26

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Óskar: Bílífjúmí, ekki ég heldur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2009 kl. 11:36

10 Smámynd: S. Lúther Gestsson

 Maðurinn er bara að hugsa um heilsuna og öll vitum við að kúkur er ekki bara kúkur.

Hér eru nokkur dæmi um að eitthvað er í ólagi:

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur : Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur : Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

S. Lúther Gestsson, 3.6.2009 kl. 12:44

11 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Ó sjitt

Margrét Birna Auðunsdóttir, 3.6.2009 kl. 15:54

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah indælt að eiga svona samræður í röð við kassann!!

Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2009 kl. 22:56

13 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985757

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband