Leita í fréttum mbl.is

Búnar að fá nóg

Ég er á því að það séu stórustu mistök frá bankahruni (og er þá af mörgu að taka) að taka IMF inn í jöfnuna.

Saga þeirra er stór-varasöm og þeir hafa skilið eftir sig sviðna jörð þar sem þeir hafa komið.

Ég er fúl út í Steingrím J. sem var dedd á móti því að við tækjum lán frá þeim að láta þetta yfir okkur ganga en heldur sér nú til hlés og virðist hafa sæst við IMF og veru þeirra hér.

Ögmundur hefur talað um að það líti út fyrir að IMF andi ofan í hálsmálið á Seðlabankastjóra.

Ég held að það sé pent orðað hjá Ögmundi, ég held að sjóðurinn hafi læst vígtönnunum í hnakkann á Seðlabankanum.

Heiða vinkona mín hefur fengið nóg, hún hvetur til aðgerða.

Sjáið hér.

Svo skulum við líta á skelfilegar afleiðingar IMF innblöndunar í Argentínu.

Í desember 2001 varð efnahagshrun í landinu vegna 150 milljarða dollara skuldar við Alþjóðagjaldeyrissjóðin.

Og þjóðfélagið hrundi.  Fólk fékk nóg.  Búsáhaldabyltingin í Argentínu hófst.

Ég hvet alla til að gefa sér tíma til að skoða myndbandið.

Mér er svo sannarlega hætt að standa á sama.


mbl.is Sendinefnd AGS í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En við vissum þetta fyrir kosningar! Af hverju vildirðu endilega kjósa VG?

Rósa (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 10:44

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rósa: Þó að ég kjósi VG er ekki þar með sagt að ég geti ekki gagnrýnt þá.  Ég er þess fullviss að þeir séu á réttum stað, þ.e. í ríkisstjórn en það væri bagalegt ef maður tæki Sjálfstæðisflokkinn á þetta og tæki öllu gagnrýnislaust.

Eiginlega tilheyrir svoleiðis pólitík fortíðinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2009 kl. 11:12

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sæl og blessuð mín kæra pólitíska eitthvað, sem ég er ekki alveg búin að setja puttalinginn minn á.   Sko, við erum stundum svo illyrmislega sammála en erum svo ótrúlega ósammála,--eða er það bara á yfirborðinu, --svona til daglig dags bruks?

Annars að meginefninu. 

Mér blöskraði þó þegar Steingrímur hóf að hygla sínum ættmennum í lánveitingu til ,,fjárfestingasjóða".

Hann reddaði Saga Capital og félögum í Eyjafirði og Þingeyjasýslum frá nettu gjaldþroti með milljarða í mínus.  Þessir fengu lán á 2% vöxtum   sjáðu hvað ég ritað mín elskelig 2%   Ekki fá börn mín þesskonar fyrirgreiðslu, nei ó nei, 22% ef þau eru þæg og góð og redda betri veðum.

 Svo snúa þessir sjóðir sér við og afskrifa, lesa aftur,--- afskrifa,--milljónatugi og hundruðir hja´,,lykilstarfsmönnum" sumir jafnvel í vinfengi, ættartengslum  og svo framvegis við  ,,lykilfólk" hjá VG.

 Verið að pæla undanfarið, hvort þetta ,,lykil" eitthvað þýði að þau hafi lykil að hirslum eða leyndó hjá viðkomandi fyrirtækjum eða flokkum. 

Bara svona pæling.

Nú liggur ljóst, að VG er ekki jómfrú eða óspillt mey á túni við að raka dreif í sumarblíðu, heldur falleruð drós á plani í Amsterdam. 

Fyrirgefðu líkinguna en ég mátti til í tilefni af öllum þeim tíma sem VG og vinir nota í  sölum Alþingis til að koma í veg fyrir dillibossa og klobbakaup. :-)  sorry luv

Mibbó

jafn hissa á að menn ekki þori að senda hýenurnar (IMF Guttana í Armani) heim með skottið milli lappa sér.

Íslandi Allt 

Bjarni Kjartansson, 22.5.2009 kl. 11:19

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála, hef ekki tíma til að útskýra, en er á móti IMF, alfarið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.5.2009 kl. 11:31

5 Smámynd: Halla Rut

Algjörlega merkilegt hvaða áhrif þessir stjórnarstólar hafa á fólk.

Hann hefur gjörsamlega brugðist okkur öllum.

Manstu þegar hann öskraði og vældi hér um að menn ættu að svara til saka og að ef hann kæmist að þá yrði menn handteknir. Það hefur ekkert gerst. 

Halla Rut , 22.5.2009 kl. 11:46

6 identicon

Sammála því að það sé engan vegin góð staða að vera háð IMF, en er ekki Ísland sem þjóð í sömu stöðu og fyrirtæki sem er komið í þrot og er háð skilyrðum bankans?

Var/er einhver annar möguleiki í stöðunni?

Jón Bragi (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985854

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband