Leita í fréttum mbl.is

Vafasamt og siðlaust alla leið

Stundum er haft á orði að Sjálfstæðismenn séu öðrum fremur leiðitamir, húsbóndahollir og að þeir tali sem einn maður.

Þannig var það að minnsta kosti á meðan Davíð var formaður og alveg fram að síðustu kosningum með einstaka upphlaupi óþekktaranganna í flokknum.

Sorglegt þegar flokksmenn liggja á sannfæringu sinni og samræma skoðanir sínar að skipunum að ofan.

Enn sorglegra er að Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi lýsir yfir víðtækum stuðningi við Gunnar Birgisson, áður en niðurstaða rannsóknar er fyrirliggjandi. 

Ganga þeir með dulda þrá til að tortíma sér eða er sú þörf algjörlega meðvituð og utanáliggjandi?

Það er þá ekki í fyrsta sinn sem þeir falla á sverð.

Ég held að það hefði verið gáfulegra og vænlegra til árangurs að bíða skýrslu frá endurskoðanda áður en traustsyfirlýsing er gefin út.

Kannski er pólitíkin hjá meirihlutanum í Kópavogi eins drullupottur.

Ommm - omm - omm.

Hvernig er hægt að treysta svona flokk?

Ég segi að það sé spilling eða siðleysi að dóttir bæjarstjórans hafi fengið 500 þúsund krónur á mánuði að meðaltali s.l. 9 ár.

Ég segi að það sé spilling að borga fólki háar upphæðir fyrir verk og ganga ekki einu sinni eftir að þau séu fullunnin.

Þessi plastmappa sem sýndi var í fréttunum og er eins og skólaverkefni smábarna getur ekki kostað háar fjárhæðir.  Halló.

Ég tel að það sé í hæsta máta vafasamt að leita ekki tilboða og ráða venslamenn til starfa.

Siðleysi alla leið sýnist mér að minnsta kosti.

Er allur flokkurinn á því að þetta sé viðunnandi verklag?

Það hlýtur að vera, hann lýsir yfir víðtækum stuðningi við formanninn.

Og hann þarf ekki einu sinni að bíða eftir niðurstöðu rannsóknar.

Já hver andskotinn.

En nú stendur það upp á Framsókn að slíta samstarfinu.

Annars kemst ekki hnífurinn á milli þeirra og íhaldsins.

DV um málið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Víðtæk samstaða um áframhaldandi spillingu, þannig er nú siðferðið þar á bæ.

Finnur Bárðarson, 21.5.2009 kl. 20:35

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

spillingin er unaðsleg og hlyindin við kjötkatlana líka.

Brjánn Guðjónsson, 21.5.2009 kl. 20:53

3 Smámynd: Einar Indriðason

Þú komst með svarið sjálf.  Um leið og þú sagðir "sjálfstæðisflokkurinn", þá þurftirðu ekkert að fara lengra.

Ég er á þeirri skoðun þessa dagana, að það mætti alveg að ósekju siga meindýraeyði á alla flokksbundna D-ara......

Einar Indriðason, 21.5.2009 kl. 20:59

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Svo er menntamálaráðherra að láta athuga viðskipti LÍN við fyrirtæki dótturinnar á meðan Gunnar var þar stjórnarformaður. Þræðir spillingarinnar liggja víða og örugglega á enn margt eftir að líta dagsins ljós.

Helga Magnúsdóttir, 21.5.2009 kl. 21:44

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta lyktar allt eins og spilling, þó Gunnar I. Birgisson segi að þetta sé bara skítapólitíkin í Samfylkingunni að reyna að koma á sig og dótturina óorði.  Þá er þetta allt með ólíkindum. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.5.2009 kl. 22:56

6 identicon

Sæl Jenný!

Framsóknarflokkurinn í Kópavogi sér heldur ekkert rangt við gjörðir Gunnars "og félaga" (ef þeir félagarnir hafa e-h haft um það að segja) -  skv. fréttum. Eru búnir að vera  í samstarfi í 3 ár, þ.e.a.s. Framsókn + "Gunnar+ félagar "!

Hanna (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 01:27

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innilega til hamingju með stúdentinn!  Vá hvað mér finnst langt síðan ég grét yfir mínum stúdentum en samt svo ótrúlega stutt.  Vona að dagurinn hafi verið ykkur öllum ánægjulegur.

Ía Jóhannsdóttir, 22.5.2009 kl. 07:09

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þessi kveðja skrifast auðvitað á færsluna hér á undan.

Ía Jóhannsdóttir, 22.5.2009 kl. 07:11

9 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Hanna, Framsókn er búin að vera í hækjur (eða skækjur eins og frambjóðandi til formanns Framsóknar orðaði það svo smekklega)  Gunnars og co frá árinu 1990.

Jenný, það má vera að pólitíkin í Kópavogi sé eins og drullupottur, af því að þar vill bæjarstjórinn vera. Ég skrifaði 5 pistla um reynslu mína af pólitíkinni í Kópavogi á bloggið mitt í febrúar. Þarf greinilega að fara að bæta nokkrum pistlum við eftir síðasta útspil. 

Ingibjörg Hinriksdóttir, 24.5.2009 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.