Leita í fréttum mbl.is

Í losti

Ég er eiginlega máttlaus af skelfingu eftir að hafa horft á fréttir áðan.

Ég hélt satt að segja að það væri varla hægt að hreyfa við blóðinu í mér núorðið, svo vön er ég orðin vondum fréttum síðan í haust.

En það sem gæti verið okkar versta martröð, sko okkar sem viljum sjá ný vinnubrögð og nýtt Ísland rísa úr rústum græðgisvæðingarinnar, er ekki svo langt undan sýnist mér.

Ég fraus á staðnum, ég er ekki að ýkja börnin góð.

Davíð og Alfreð vina- og klíkufrömuður.is Þorsteinsson voru með fund í Seðlabankanum fyrir helgi.

Alfreð var spurður að því hvort þeir félagarnir væru verið að byggja brú samstarfs Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eftir kosningar og svaraði Alfreð því til að menn væru alltaf í brúarsmíði.

Nú þarf hinn "nýi" Framsóknarflokkur að koma fram og sannfæra kjósendur um að þeir séu ekki leppur fyrir hið gamla og skelfilega kerfisbatterí Framsóknar sem var (er?).

Hvar er Sigmundur Davíð, hann kom, sá og gekk þokkalega meðan hann stóð við, en síðan er hann horfinn.

Er hann á vegum Alfreðs gamla guðföður og klækjarefs?

Alfreð Þorsteinsson er talinn höfundur af tveimur meirihlutum í borginni síðan í síðustu kosningum.

Þeim fyrsta með Binga og þessum seinni með Óskari.

Verri kerfiskarl er ekki til.

En betri fulltrúa fyrir gamla, ógegnsæja klíkusamfélagið er ekki hægt að fá.

Hann og Davíð saman:

Ekkert annað en helvítis eitur.

Sjá nánar hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Alfreð og Finnur Ingólfsson eiga flokkinn. Sigmundur telst til leikmuna. Það var aldrei meiningin að hann myndi spila einhverja rullu.

Finnur Bárðarson, 15.2.2009 kl. 19:38

2 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 19:41

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Get ekki sagt að þetta komi mér á óvart.

Framsókn er og verður sérhagsmunakerfisbittlingaspillingarflokksræðisflokkur.

Það er ekki nóg að fá ný andlit..

hilmar jónsson, 15.2.2009 kl. 19:46

4 identicon

Hvað gerist ef Framsókn og Sjálfstæðisflokkur taka samanlagt 40 - 50% af atkvæðum næstu kosninga?

Sama og gerðist í BNA undir Bush. Þjóðin klofin í tvennt. Betra að búa sig undir það, að svo verði.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 20:08

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sammála Finni Bárðarssyni

Ingibjörg Hinriksdóttir, 15.2.2009 kl. 20:11

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki kasta eldhúsáhöldunum sem notuð voru í byltingunni, það gæti farið svo að við þyrftum að ekki bara nota okkar sjálf, heldur líka lána einhverjum aukasett.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 20:19

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Sjálfstæðisflokkur og Framsókn aftur í ríkisstjórn.

ÞAÐ MUN ALDREI VERÐA ÞOLAÐ..

hilmar jónsson, 15.2.2009 kl. 20:22

8 identicon

Það segi ég með þér, Hilmar. En það gæti kallað á að a.m.k. helmingur þjóðarinnar berji potta, pönnur og önnur áhöld í laaangan tíma.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 20:39

9 identicon

Ja þið skuluð nú bara gjöra svo vel að una niðurstöðum lýðræðislegra kosninga í vor.  Hver svo sem úrstlitin verða.  Ég krefst þess sem þegn þessa lands.

Ragnheiður (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 20:46

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það hafa ekki orðið neinar grundvar breytingar á vinnubrögðum innan framsóknarflokksins með komu Sigmundar Davíðs.  Enda átti ég ekki von á því.

Sigrún Jónsdóttir, 15.2.2009 kl. 21:14

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko..bakbeinið á mér hefur rétt fyrir sér.

Hef haft það lengi á tilfinningunni að þetta sé plottið. Sjálfstæðis og framsókn...gömlu valdarefirnir eru ekkert á förum og nota öll þau bellibrögð er þeir kunna til að halda sínu. Það er alltaf sama gamla sagan á bak við tjöldin en því miður kaupir fólk nýja búninga og betri strengi í brúðurnar sem skoppa fremst. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.2.2009 kl. 21:49

12 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvaða titringur er þetta út af Framsókn?

Ættu áhyggjur ykkar frekar að snúa að því hvaða Samfylking verður í boði í kosningunum?

Ragnhildur Kolka, 15.2.2009 kl. 22:17

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur: Ertu í Framsóknarlögreglunni?

Slakaðu á.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2009 kl. 23:12

14 Smámynd: Hugarfluga

Langaði bara að faðma þig í gegnum netheima. Það er svo langt síðan ég hef gert svoleiðis nokkuð. 

Hugarfluga, 15.2.2009 kl. 23:14

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elsku Fluva mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2009 kl. 23:18

16 identicon

Þessar viðræður þeirra Davíðs og Alfreðs fara að sjálfsögðu fram í Seðlabankanum!!!   Hvar annars staðar???  Er það ekki einkabanki Do og hans náhirðar.  Hvað skyldu vera margir drykkjufélagar DO úr náhirðinni starfandi í Seðalbankanum???

Svanhildur (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 23:57

17 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hrollur

Hólmdís Hjartardóttir, 16.2.2009 kl. 00:56

18 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég fæ líka hroll eins og Hólmdís, svona aulahroll.  Ég hef aldrei þolað Alfreð, og Finn Ingólfs..   Þeir tveir gera mér hluti. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.2.2009 kl. 02:02

19 identicon

Drottinn minn sæll og góður! Slíkt má ALDREI henda þennan vesæla hóp sem kallar sig Íslendinga aftur, að klíku- og spillingaröfl framsóknarbófanna nái í skjóli ranglátra kosningalaga að mynda meirihluta með íhaldinu, sem því miður hefur ekki enn áttað sig á því hver eyðilagði hvern í því óheillasamstarfi. Hræddur um að þá verði uppreisn, alvöru uppreisn. Fyrir alla muni, leggjumst öll á eitt að halda fólki vakandi svo þessi ógn megi ekki verða.

Nöldurskjóða (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 04:47

20 Smámynd: Pétur Fannberg Víglundsson

Held það sé nú verið að gera of mikið úr þessum "fundi" þeirra. Eina leiðin fyrir Sjálftökuflokkinn til að komast aftur í ríkisstjórn eftir næstu kosningar er að fá hreinan meirihluta. Það vill enginn starfa með þeim. Það yrði hinum flokkunum pólitískt sjálfsmorð. Ég veit að ég myndi persónulega skrá mig úr VG ef þeir færu í samstarf með þeim...og ég veit um mjög marga Framsóknarmenn sem yrðu snarvitlausir ef þeir gerðust leppar íhaldsins aftur. Grasrót Samfylkingarinnar yrði líka brjáluð ef Samfylkingin endurnýjuðu samstarf sitt við ránfuglinn.

Þið getið talað eins mikið og þið viljið um að þetta séu allt saman sömu spillingar vitleysingarnir og svo framvegis en staðreyndin er bara sú að líkurnar á þáttöku Sjallana í næstu ríkisstjórn eru hverfandi......

...en kannski er ég bara einfaldur í bjartsýni minni.

Pétur Fannberg Víglundsson, 16.2.2009 kl. 10:02

21 Smámynd: Ransu

Eigum við ekki að treysta því að þjóðin kjósi ekki þessa flokka vegna þess sem á undan er gengið og að þessháttar fundir eru þess vegna tilgangslausir.

Og máski voru þeir bara að plana að stofna nýtt blað: MorgunTímann.

Ransu, 16.2.2009 kl. 10:05

22 identicon

Sá íslendingur sem kýs framsókn er landráðamaður.
Sér einhver fyrir sér að framsókn geti haldið gildum sínum í dag, ekki gátu þeir það áður... ekki er Birkir það sem við viljum sjá halda um spaðana á íslandi.
Ég tek hann bara út til þess að hoppa á staðreyndum í þessu máli.

DoctorE (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 10:27

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Pétur: Ég dáist að bjartsýni þinni og trú á mannkyni.

En Framsókn er ávalt til í tuskið eða hefur amk. verið án tillits til hvort hún hefur verið valin til starfans af almenningi.

Vonandi eru breyttir tímar.

Takk öll fyrir málefnalega umræðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.2.2009 kl. 10:45

24 Smámynd: corvus corax

Má ég minna á hið fornkveðna: Hver þjóð býr á hverjum tíma við þau stjórnvöld sem hún best á skilið. Auðvitað skríður sjálfstæðis- og framsóknarhyskið eina ferðina enn í kjörklefann með atkvæðið sitt handa þessum flokkum til að láta níðast meira á sér.

corvus corax, 16.2.2009 kl. 10:49

25 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ég vona bara að fréttirnar af fundinum hafi fælt slatta af kjósendum frá Framsókn. Best að reyna að muna þetta og skjóta að þegar færi gefst, nær kosningum.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.2.2009 kl. 11:12

26 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Við verðum duglegar að minna á.  Ekki skal standa á mér.

Corvus: Kannski, en ég er á því að sú stund sé runnin upp að við eigum betrra skilið en Alfreð og Davíð ásamt því sem þeir standa fyrir.

Málið er að það hefur ekki staðið Framsókn fyrir þrifum að hoppa í stjórn með íhaldinu þó örfá atkvæði hafi staðið á bak við hana.

Helvítis.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.2.2009 kl. 11:26

27 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Þetta MÁ hreinlega EKKI gerast!!!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.2.2009 kl. 15:45

28 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég fær gæsahúð.....

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.2.2009 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband