Leita í fréttum mbl.is

Mér leiðast uppskafningar

 11

Mér datt það svona í hug þar sem ég sat og las Moggann hvað mér leiðast uppskafningar af báðum kynjum á öllum aldri í öllum flokkum og utan þeirra.

Verst þykir mér þó að hlusta á uppskafninga á sjálfshátíð.

Æi, mér datt þetta sem sagt í hug af einhverjum ástæðum.

Jájá.


mbl.is ESB-umsókn þolir enga bið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Oh hvað ég er sammála þér.  Ég skil ekki afhverju fólk heldur að bara við göngum í ESB þá komi hér vor, blóm í haga og sjúddírallirei.....

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 22.1.2009 kl. 14:44

2 identicon

Skil ekki textann miðað við tenginguna Jenný, ÁPÁ er prestssonur og príðis drengur.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 14:47

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gísli: Eflaust rétt hjá þér en svona kemur mér hann fyrir sjónir.

Lísa Björk: Sammála, ég er ekki alveg sannfærð um að við eigum að ganga í ESB, er á báðum áttum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 14:51

4 Smámynd: Einar Örn Einarsson

HAHAHAAHA Jenný!

Nú tek ég undir hver orð.

Gísli: Það að vera prestssonur, er það eitthvað merkilegra en annað? Þekkti sr. Árna Pálsson föður viðkomandi hann er sómamaður, en það gerir son hans hvorki betri né verri.

Ég var reyndar að blogga þar sem ég kem rétt aðeins inn á EB. Er að hallast meira og meira að því að þar eigum við ekki heima, en er opinn fyrir öllum rökum , ramba á grensunni þar.

Einar Örn Einarsson, 22.1.2009 kl. 15:01

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vil ekki ESB

Ásdís Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 15:12

6 identicon

Það sem þolir enga bið er að losna við stjórnmálaflokka og menn íslands og byrja á nýjum grunni, það er það eina sem skiptir máli í dag.

DoctorE (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 15:31

7 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Sko, það sem skiptir máli í dag er að slökkva eldana sem nú brenna, ekki væla um hvernig eldvarnareftirlitið á að líta út! Reykjavík brennur, burt með ríkisstjórnina. Við geturm litið á ESB eftir að búið er að slökkva eldana.

Guðmundur Auðunsson, 22.1.2009 kl. 15:44

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

ESB verður ekki tekið á löpp svona einn, tveir og þrír. Fólk lætur eins og fyrirmenn í Brussel bíði spenntir eftir því að við látum svo lítið að sækja um.

Helga Magnúsdóttir, 22.1.2009 kl. 16:02

9 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Ég bjó í Svíþjóð þegar þeir voru að ákveða sig um ESB.

Finn fyrir sama hræðslu áróðri hér meðal andstæðinga ESB og voru þar á þeim tíma.

Á óvissutímum er auðvelt að hræða fólk og það virðist margur notfæra sér það núna,sérstaklegar þeir sem allt hafa tekið og ekkert gefið!

Það er hættulegt að standa á bjargbrún og öskra "ÞJÓÐARSTOLT" maður gæti fallið fram af!

Konráð Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband