Leita í fréttum mbl.is

Veiðileyfi gefið út á íslensk börn

Líkamlegt ofbeldi á börnum er leyfilegt á Íslandi.  Það er nokkuð ljóst eftir daginn í dag.

Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir manni sem gefið var að sök að hafa tvisvar til þrisvar rassskellt tvo drengi, sex og fjögurra ára, syni kærustu sinnar.

Hann bar líka olíu á rassinn á þeim. 

Hann lamdi kærustuna (bakhluta) með belti, var sýknaður þar líka, er áhugamaður um BDSM í kynlífi. 

Hvarflar að einhverjum fleirum en mér að það hafi verið meira en refsigleði sem hvatti manninn til afreka?

Að slá lítil börn er glæpur og í mínum augum aldrei réttlætanlegur.

Má slá börn í andlitið á Íslandi?

Er það smekksatriði dómara á landinu hvað telst ofbeldi á barni?

Valdbeiting við varnarlaus börn er ófyrirgefanlegt athæfi.

Til þess telst líka að ógna börnum eða hræða þau til hlýðni.

Með þessum dómi Hæstaréttar hefur verið gefið veiðileyfi á íslensk börn.

Meiri bölvaður tvískinnungurinn sem viðhefst á þessu landi.

Enda höfum við ekki staðfest barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ennþá.

Skammist ykkar.


mbl.is Mátti flengja drengi kærustu sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Nei, hann mátti það ekki !

Jónína Dúadóttir, 22.1.2009 kl. 17:17

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Grátlegt og því miður satt.

Einar Örn Einarsson, 22.1.2009 kl. 17:22

3 Smámynd:

Djöf..... ofbeldismaður

, 22.1.2009 kl. 17:25

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er harðbannað að berja börn og beita þau ofbeldi...nema á rassinn, þótt því fylgi niðurlæging og blygðunarbrot að auki. Það er ok, líklegast af því að það stendur í Biblíunni. Við byggjum jú á henni er það ekki?

Frábært múv hjá dómurum hæstaréttar. Nú er bara að klaga þá fyrir mannréttindadómsstólum. Hvar er nú hinn ríkisrekni fulltrúi barna?

Jón Steinar Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 17:30

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús knús og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.1.2009 kl. 17:40

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigurður Heiðar: Hvers lags röksemdafærsla er nú þetta?

Telur þú að börn á Íslandi séu agalaus vegna skorts á barsmíðum?

Ætli það sé ekki frekar vegna þess að það skortir á að þeim sé sýnd sú virðing sem þeim ber og vegna þess að enginn gefur sér tíma til að tala við þau.

Ofbeldi á börnum er vítavert og mér er skít sama á hvaða líkamspart því er beitt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 18:04

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hæstiréttur er alltaf að koma okkur að óvörum.  Hvaða fífl eiginlega eru í þessum embættum?  Það ætti hvert heilvita mannsbarn að sjá að maðurinn var að svala kynferðislegri fíkn sinni. 

Ég hef átt bágt til máls undanfarna daga en nú er ég kjaftstopp.

Ía Jóhannsdóttir, 22.1.2009 kl. 18:37

8 identicon

Ía/Jenny , þetta hefur lítið að gera með dómarana.  Lög landsins eru fyrir löngu orðin fáránleg.  Það er orðið nánast ómögulegt að dæma nokkurn mann nema 100 vitni séu að og að hann/hún séu í annarlegu ástandi svo svakalegt sé.  Sönnunarbyrðin er svo svakalega mikil að lögreglan getur seint uppfyllt hana og við sitjum uppi með haug af vitfirringum á ferð í þjóðfélaginu.

itg (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 19:40

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Grátlegt

Huld S. Ringsted, 22.1.2009 kl. 19:52

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorglegt.

Í fyrsta lagi: hvernig veit Hæstiréttur/héraðsdómur um rassskellingar þessa manns á mömmuna? Ég myndi segja: væntanlega vegna þess að hún hefur á einhverjum tímapunkti kært hann eða í minnsta lagi kvartað yfir þeim. Segir manni að allar líkur er á því að hún tók  ekki þátt í þessum kynlífsathöfnum af fúsum og frjálsum vilja.

í öðru lagi: hvað er þetta með olíuna!!!!!!!!

Í þriðja lagi: fer með drengina afsíðis. HALLÓ!!

í fjórða lagi: krafðist þess að fá að vita í hvert sinn sem ''þeir gerðu eitthvað af sér''. 

Því miður þá efast ég ekki um það eitt andartak að þessari fjölskyldu hefur verið haldið í heljargreipum valdasjúks manns með afbrigðilegar kynhneigðir og að hann mun því miður dúkka aftur upp í réttarsölum landsins áður en langt um líður

Jóna Á. Gísladóttir, 22.1.2009 kl. 20:01

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er hreinlega forkastanlegt. Ég er alfarið á móti allri valdbeitingu gagnvart börnum. Af tvennu illu finnst mér samt skárra að slá þau í andlitið, þau standa þó upprétt við það. Rassskelling er alveg ótrúlega niðurlægjandi og held ég að niðurlægingin vari lengur en sársaukinn.

Helga Magnúsdóttir, 22.1.2009 kl. 20:20

12 Smámynd: Anna

Og hvad gerir bjorn bjarnason??? Anskotan ekkert. Sjaid doma kynferdisglaepamanna sem eydileggja lif barna??? Hann ma nu fara ad taka pokann sinn. Tegar hann fer og dabbi aetla eg ad opna campavinsflostu. Kvedja anna leikskolakennari.

Anna , 22.1.2009 kl. 20:27

13 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Alveg ótrúlegur anskoti

Anna Margrét Bragadóttir, 22.1.2009 kl. 20:56

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir þátttökuna öll sem eitt.

Sko, er búin að vera að hugsa þetta en það er auðvitað eitthvað að hugsunarganginum í dómskerfinu.

Allt ber að sama brunni.  Dómar í nauðgunar- sifjaspells- ofbeldismálum eru allir linir, gefa engin skilaboð sem mark er á takandi.

Það þarf að stokka upp dómskerfið.

Það þarf að fá þetta steinsofandi lið til að  átta sig á alvarleika ofbeldis.

Að það skuli vera löglegt að leggja hendur á börn á Íslandi 2009 er mér óskiljanlegt og það gerir mig brjálaða.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 21:45

15 identicon

Dómskerfið ber vissulega ábyrgð en allt ber þó að sama brunni á endanum. Alþingi setur lög, þeirra er að vanda svo til verka að ekki orki tvímælis þegar um ofbeldi gagnvart börnum er að ræða. Er reyndar ekki lagafróð en það virðist stórt gat þarna ef þetta er ekki túlkað sem ofbeldi. Jafnvel kynferðislegt ef lýsingin er rétt. Er það tilfellið að við séum ekki búin að staðfesta barnasáttmálann? Hvaða hræsni er það?

Solveig (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 00:22

16 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Mér finnst þetta mál viðbjóður.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985774

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband