Leita í fréttum mbl.is

..ef stjórnin springur í beinni

Ég er að horfa á umræðurnar á Alþingi.

Ladídadída, og ég skrúfaði niður í Geir og svo aftur í Þorgerði Katrínu þegar ég heyrði að hún söng sama gamla sönginn.

Skilur almenning svo vel, kjósa seint á þessu ári og alls ekki tefja björgunaraðgerðirnar sem hafa farið fram hjá öllum sem ég þekki.

Fram hjá öllum segi ég nema þeim sem þykjast vera á kafi í þeim.

En..

ég mun að ég held aldrei kjósa Framsókn, það þyrfti að minnsta kosti mikið að gerast til þess.

En mikið rosalega er ég ánægð með stelpurnar Helgu Sigrún og Eygló Harðardóttur.

Það er ástæða til að óska Framsóknarflokknum til hamingju með þessar konur og svo endurnýjunina almennt svo langt sem hún nær.

En ég held áfram á alþingisvaktinni.

Læt ykkur vita hvað gerist, sko ef stjórnin springur í beinni eða eitthvað.


mbl.is Ekki hjá því komist að kjósa á þessu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Katrín jakobsdóttir er mín vonarstjarna en hun er sjálfsagt ekki eins svakalega skilningsrík og Þorgerður Katrín sem slær öllum við í þeim efnum.....

Soffía Valdimarsdóttir, 22.1.2009 kl. 12:58

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín er flott, Álfheiður Inga líka.

Það er fullt af flottum stjórnmálamönnum í FLESTUM flokkum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 13:08

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já endilega láttu okkur vita ef þetta springur allt í loft upp Jenný mín  ég hef grun um að þetta fylgi Framóknar endist ekki mjög lengi, eða þangað til fólki verður bent á að Birkir Jón var formaður fjárlaganefndar þegar allt sukkið var með Byrgismálið.  Ef menn standa ekki vaktina með minni málin, hvernig munu þeir þá standa sig í stóru bankamálunum?  Svo má líka segja að formaðurinn renni upp úr spillingardrullupolli af því að faðir hans komst yfir Kögun með svona ja útrásarlegu atferli eða eru menn búnir að gleyma ???

Nei spillingarflokkurinn Framsókn hefur ekkert endurnýjað, bara sett nýrra vín á gamla belginn sinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2009 kl. 13:36

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Framsókn er vitanlega ekki inni á stjórnmálakortinu hjá mér frekar en þér. Treysti þér til að standa vaktina og leyfa okkur að fylgjast með ef eitthvað gerist.

Helga Magnúsdóttir, 22.1.2009 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.