Leita í fréttum mbl.is

Veiting æðruleysisorðunnar

Rosalega er Gordon Brown vanstilltur og taugaveiklaður stjórnmálamaður.

Hvað á það að þýða að fara fram með þessum hætti?

Hann hræðir líftóruna úr breskum sparifjáreigendum án þess að mál séu komin á hreint.

Ó, ég gleymdi, hann er í vondum málum vinsældarlega séð.

Hann hefði mátt telja upp að tíu karlinn áður en hann fór að hrópa, súsúsú.

En að annarri og öllu kvalarfyllri vanstillingu.

Ég finn til inn að innstu hjartans rótum með þingmönnum Samfó.  Þeir eru svo brímandi brjálaðir út í Davíð Oddsson fyrir gasprið í honum í Kastljósinu í gær, sem reyndar orsakaði nærri því heví milliríkjadeilu milli okkar og Breta, að þeir eiga erfitt með að sitja á sér í viðtölum.

Ég vil sæma þá Árna Pál Árnason og Lúðvík Bergvinsson, æðruleysisorðu þessarar síðu fyrir aðdáunarverð kúlheit í viðtölum núna áðan, Árni Páll hjá Íslandi í dag og Lúðvík hjá Helga Seljan.

Þeir komu því samt ágætlega frá sér hvað þeim fannst um framgöngu Davíðs, þeir gátu bara ekki blótað ærlega í fréttunum.

Karlinn verður auðvitað að fjúka.  Áður en einhver fer fram með vopnavaldi gegn íslensku þjóðinni.

En nú kemur að smá tjilli.  Það er ekki hægt að hugsa bara um fjármálabömmera allan daginn.

Kiljan er á eftir.  Það verður talað við Orra Harðar um nýju bókina hans Alkasamfélagið sem ég hef reyndar bloggað um áður.

Og svo verður fjallað um Stein Steinarr ofkors.

Svo fer ég fram á jákvæðar fréttir á morgun.

Sounds like a plan?

Úhújeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee

Sjá nánar um Kiljuna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Best að snúa sér að menningunni í allri kreppunni svo maður verði nú ekki andlegur öreigi í ofanálag!

Farin að horfa á Kiljuna

Ofurskutlukveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 21:00

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já verum jákvæð.Nenni ekki að tala um Gordon.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.10.2008 kl. 21:14

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jamm ég flissaði þegar ég horfði á viðtalið við Lúðvík! Það sauð á honum en hann missti aldrei kúlið - flottur á því líka svona órakaður

Hrönn Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 21:20

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bros og knús í þitt hús

Jónína Dúadóttir, 8.10.2008 kl. 21:34

5 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Við getum horft á björtu hliðarnar - við erum allavega að upplifa stærstu tíðindi Íslandssögunnar í fjármálum.  Er það cool or what

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.10.2008 kl. 21:51

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

jámm, afkomendur okkar munu tala um kreppuna miklu 2008.  Spurningin er bara 2008 til hvaða árs...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 8.10.2008 kl. 21:59

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála með Lúðvík, flottur og kúl utan en eldheitur innan  Já karlinn verður að víkja, ekki spurning.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.10.2008 kl. 22:26

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Brown er "bitter" "Bitter" er brown.  Hvernig Samfylkingarfólk fer að því að halda kúlinu er mér algerlega óskiljanlegt.  Árni Páll var helv. góður, sá ekki hinn.

Sigrún Jónsdóttir, 8.10.2008 kl. 22:42

9 identicon

OK þeir eru kannski flottir en alls ekki nógu vel að sér! Lúðvík heldur því t.d fram að Seðlabanki hafi brugðist eftirlitsskyldu sinni. Hann hefur ekki eftirlitsskyldu! Halló! Þú er þingmaður for kræst seik! Það er fjármálaeftirlitið sem á að sjá um þetta! Óþolandi.

Soffía (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:29

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sástu B.Inga í fyrradag?  sá fékk fullt af prikum hjá mér.   Kærleikskveðja til þín yndið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 23:33

11 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Davíð var brattur - og sagði sitthvað af viti. En hann talaði ekki eins og Seðlabankastjóri ætti að gera.

Gordon Brown er svipljótur náungi.

Auðvitað er Samfylkingin pirruð - hvernig ætti annað að vera. En þetta er traust fólk og vel innréttað. Nú gefur á bátinn, og þau munu sitja við árarnar á meðan sætt er.

Góða nótt.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 8.10.2008 kl. 23:49

12 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Ólína: Ég tek undir þín orð.

Einar Örn Einarsson, 9.10.2008 kl. 00:18

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Nú segir www.dv.is að Davíð hafi með orðum sínum í Kastljósi fellt Kaupþing. Enn einar stórfréttirnar í fyrramálið? Garg ...

Guðríður Haraldsdóttir, 9.10.2008 kl. 00:19

14 Smámynd: Smjerjarmur

Heyrst hefur að Árni Páll þessi hafi unnið mjög ötullega að því að kynda undir framsóknarmönnum þegar þeir fóru út í að hækka lánshlutfall til húsnæðiskaupa á sínum tíma.  Ég reikna með því að honum veiti ekkert af æðruleysinu. 

Smjerjarmur, 9.10.2008 kl. 00:34

15 identicon

Ég skil ekki þessa gagnrýni á Davíð hann útskýrði á góðu mannamáli og með samlíkingum sem venjulegt fólk skilur, flott viðtal og ég skil ekki þessa viðkvæmni, það er eins og þeir sem hafa keypt aðrahverja sjoppu við Oxfordstreet og flottustu byggingar Kaupmannahafnar reka fótboltalið sem tómstundargaman og ferðast á einkaþotum allt upp á krít hjá okkur, eigi að vera verndaðir fyrir gagnrýni þó þeir hafi sett þjóðina á hausinn. Það eru nú meiri lýkur að Baugur leggi upp laupana en Kaupþing samkvæmt Breskum blöðum. Þeir sem þó hafa staðið sig best í þessari orrahríð eru tvímælalaust Geir Haarde og Björgvin Sigurðsson ég dáist að samstöðu þeirra þeir fá báðir tveir 10. fyrir frammistöðuna. Ég var að hlusta á viðtölin við Árna Pál og Lúðvík ég skil nú ekki húrrahrópin yfir þeim, það er reyndar áberandi að það eru konur sem hafa heillast, enda báðir þekktir kvennamenn.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 00:43

16 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hafdu gódan dag

María Guðmundsdóttir, 9.10.2008 kl. 07:08

17 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

... og Kaupþing farið líka undir hatt ríkisins, eins og dv.is spáði í gærkvöldi.

Góðan dag, annars, ljúfa snót!

Guðríður Haraldsdóttir, 9.10.2008 kl. 07:28

18 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ekki bent upplífgandi að vakna á morgnanna og sumir segja að þetta sé rétt smjörþefurinn.  Góðan dag og bjartan.

Ía Jóhannsdóttir, 9.10.2008 kl. 07:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband