Leita í fréttum mbl.is

Hemlar í heilanum

 Heiða var að blogga um aðkallandi mál.  Ég vil biðja ykkur að fara inn hjá henni og lesa þessa færslu og svo megið þið linka á hana líka.

Við megum ekki láta setja upp olíuhreinsunarstöð fyrir vestan.  Bara alls ekki.

En að öðru og skemmtilegra máli.  Fyrir mig eða þannig.  Miðað við heilastarfsemina stundum mætti halda að ég væri með hemla í heilanum.

 Það verður seint um mig sagt að ég þekki bíla. Hef reyndar bloggað um kunnáttuleysi mitt hér áður.  Stundum verður vitneyskjuleysi mitt auljósara öðrum en aðra daga.  Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að leggja ekki á mig mikla vinnu við að kynna mér það sem skiptir litlu máli.  Ég hef samt verið að reyna.

Í dag áttu eftirfarandi orðaskipti sér stað á kæleiksheimilinu:

Húsband: Var xxxx ekki að kaupa sér bíl?

Moi: Jú, hún fékk hann í gær, hann er ógeðslega flottur.

Hb: Já er það, hvaða tegund?

Moi: Ha, tegund, æi hann er svona silfurgrár, frekar langur!

Húsband: #%%&/%"$=/&$%! Þú ert ferleg, hvað heitir bíllinn okkar?

Moi: (Góð með mig, lagði það á minnið um daginn) Honda Civick

Hb: Jenný, ertu ekki að fíflast (orðinn æstur alveg), hann heitir H-y-o-n-d-ay Sonata. (Örugglega vitlaust stafað). 

Moi: Já ég vissi að það var eitthvað sollis.

Síðan hefur húsband ekki sagt orð.

Ekki halda að ég sé svona tornæm, áhuginn er bara ekki til staðar.

Farin í bíltúr á Hondunni.  Lalalalalala

Cry me a river


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

 þeink jú lov

Heiða B. Heiðars, 3.6.2008 kl. 21:16

2 identicon

Góða skemmtun í bíltúrnum á Hjondunni. Bið að heilsa bílstjóranum á Sónötunni 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 21:41

3 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

ha ha skil þig stundum er maðurinn minn þvílíkt hissa á áhugaleysi mínu hvað varðar bílakost heimilisins en eins og ég segi ef ég kemst á milli staða er ég sátt en það nægir honum ekki.

Eyrún Gísladóttir, 3.6.2008 kl. 22:29

4 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe já já einmitt...hér er þetta alveg öfugt. Konan heima hjá mér þekkir bíla. Vissirðu að þinn bíll er með spoiler aftan á ?

Hyundai Sonata er það gæskan.

Búin að grípa til áróðurs með Heiðunni

Ragnheiður , 3.6.2008 kl. 22:37

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú ert nú meiri stríðnispúkin, kelluangin þinn haha!

Ég veit nú t.d. hvað Vespré, Lotus og Always standa fyrir, en hef nú nákvæmlega ENGAN áhuga á fyrirbærinu, hvað þá að ég hyggist nota það!

Öðlaðist meira að segja þvílíka aðdáun einnar ónefndrar "áður fyrr á árunum" fyrir þessa þekkingu, sem og hvurslags blóðsúthellingar væru tempraðar með áðurnefndum þarfaþingum, að hún varð um síðir ólm að sýna mér "Staðsetninguna" en förum nú ekki nánar út í það!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.6.2008 kl. 22:45

6 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha Magnús Geir, svakalega hefurðu slegið í gegn þá

Ragnheiður , 3.6.2008 kl. 22:49

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

knús - búin að sendua Heiðu orðsendingu og Bryndísi mail!

Edda Agnarsdóttir, 3.6.2008 kl. 23:08

8 identicon

Hahahahah  Góð Jenný... alltaf góð.   Maður man það sem skiptir mann máli. Það er bara þannig.

Knús á þig.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 23:18

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Magnús Geir: Ég er í kasti.  Takk stelpur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2008 kl. 23:28

10 Smámynd: Tiger

Ljúft að lesa þig hérna. Alveg brilljant hjá þér að leggja þó allavega eitthvað nafn á minnið hvað bíla varðar, eða eru annars ekki til bílar sem kallast honda civic? Hahaha ... þú ert alveg milljón samt.

Oft hef ég hugsað um hve dásamlegt líf það væri að vera fluga á veggjum kærleiksheimilisins - svo framalega sem engin kemur auga á kvekendið. *sprey-Gasgas*...

Hahaha ... Heiða who? Njee .. segi bara svona sko. Knús á þig Jenný mín og eigðu yndislegt kvöld/nótt!

Tiger, 3.6.2008 kl. 23:30

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Búin að afgreiða þetta mál hjá Heiðu, mjööög nauðsynlegt.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 23:30

12 Smámynd: Linda litla

Ég er svona líka, ég meina kommon þetta heitir bíll og hana nú. Það er sko alveg nóg. Þeir eru jú misjafnlega langir.... annað hvort eru þetta bílar eða jeppar.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 00:01

13 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehhe er að fá nýjan bíl í vikunni, hef ekki séð hann veit bara að hann er svartur með TOPPLÚGU  vegna þess að ég bað um það og hann er svartur. Mér var sagt að hann væri með öllum græjum hvað sem það nú þýðir.   

 Soooo hann kemur til með að koma mér næstu þrjú árin á milli A- Ö (auðvitað með minni aðstoð )og þá er allt í góðum málum.  Held reyndar að það sé þessi nýi Skoda Superb.  Segi eins og þú Jenný örugglega stafað vitlaust.   Gæti ekki staðið meir á sama.

Ía Jóhannsdóttir, 4.6.2008 kl. 00:32

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þegar ég keypti bílinn minn árið 1999, var ég alveg rosalega montin og kom akandi á fína bílnum mínum í jólaboð - og þá sagði 9 ára frændi minn:

  Vá Lilja átt þú þennan bíl,  flottur með 2 spoilerum maður, meiriháttar. - Ha já, sagði ég og hafði ekki hugmynd um, um hvað drengurinn var að tala. - En bílinn á ég enn og hann er alveg meiriháttar, og nú veit ég hvað spoilerar eru. - og þeir eru enn 2.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.6.2008 kl. 01:05

15 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá, gott að geta skemmt einhverjum með blaðrinu, en ei skal því gleymt, að "Hafa á klæðum" er háalvarlegt mál og ekki tekið út með sældinni fyrir ykkur margar elskurnar!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.6.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband