Leita í fréttum mbl.is

Og skipað gæti ég væri mér hlýtt

 garbage%20can

Bandaríkjamenn óska eftir því að við hættum við að flytja út hvalkjöt til Japan.

Ég er dedd á móti hvalveiðum af því það kemur illa út fyrir okkur og svo getur fólk bara borðað eitthvað annað en hvalkjöt.

En það liggur við að ég skipti um skoðun bara til að geta æst mig yfir bölvaðri afskiptaseminni í Guðs útvöldu, hinni sjálfskipuðu alheimslöggu sem er með heilu sorphaugana í eigin garði.

Bandaríkjamenn trúa því glerhart að hvalir séu menn í dulargervi.  Þeir trúa því að þeir tali, skilji mannamál og ég veit ekki allt.

Þetta er í fínu lagi á meðan maður er 6 ára og yngri, jafnvel fram að 8 ára aldri en þá eiga fyrirliggjandi upplýsingar um hvalinn að hafa skilað sér til smáfólksins.

Þeir eru öskrandi og æpandi um allan heim, alls kyns skammir á heilu þjóðirnar en standa svo í manndrápum í útlöndum og milljónir manna svelta heima hjá þeim.

Og skipað gæti ég væri mér hlýtt.

En ég vil að Íslendingar hætti þessum barnaskap með hvalina og snúi sér að öðru.

Hvað eru margir sem hafa atvinnu sína af hvalveiðum?  Og hvað er þjóðarbúið að fá fyrir þetta auma kjöt sem af hvalnum fæst?

Somebody?

Úje farin að lúlla.


mbl.is Bandarísk stjórnvöld gagnrýna útflutning á hvalkjöti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Bandaríkjamenn óska eftir því að við hættum við að flytja út hvalkjöt til Japan......... Hvað kemur bandaríkjamönnum við hvað VIÐ seljum öðrum löndum ?

Gúdd næt Jenný og slíp vel.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 01:09

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Þetta er soldið eins og að pissa í skóinn sinn að leyfa þessar hvalveiðar...við erum að byggja upp ferðaþjónustu á landinu meðal annars með hvalaskoðunarferðum... þá gengur ekki að veiða hann líka, við skemmum  fyrir okkur með þessari vitleysu, þetta hefur áhrif á ferðaþjónustuna...hef áreiðanlegar upplýsingar um það frá húsbandi sem er umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu...það stoppar ekki síminn hjá þeim, símtöl sem koma alls staðar frá heiminum þar sem fólk lýsir hneykslan og undrun á þessari ákvörðun okkar Íslendinga.........

svo er ég innilega sammála þér með það að hvalur er hvalur en ekki maður í dulargerfi

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 4.6.2008 kl. 01:29

3 Smámynd: Tiger

 What the   

Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að við værum fyrst hvalir og svo þegar losnar búkur á landi - þá erum við færð þangað! Alla tíð hef ég trúað því að hvalir eru menn - somebody hasn´t been telling me the truth .. MAMMMMMAAAAA!

Æi, ég hefði nú kosið að við værum ekki að æsa alls skonar fólk og samtök upp með þessum snubbótta veiðiskap. Held að það sé hverfandi lítið af fólki sem borðar þetta hérna og markaðurinn fer örugglega minnkandi með nýjum kynslóðum svo ekki er mikið á þessu að græða hérna heima, hvað  þá erlendis.

Persónulega finnst mér þetta skemma - hef lent í því að vinafólk erlendis hafi verið að hneykslast á okkur - og heyri víða að fólk sé að hætta við að koma hingað vegna þessa. Því í ósköpunum eru Íslendingar að standa í svona óþarfa æsing? Hættessu bara og hafa sjóinn lygnan og landann rólegan.

Eigðu ljúfa nótt mín kæra og ljúfan dag á morgun.

Tiger, 4.6.2008 kl. 03:00

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan daginn......! Ég er ekki hrifin af Hvalveiðum....enda finnst mér kjötið vont! Kjúkling og Lambakjöt á diskinn minn !

Sunna Dóra Möller, 4.6.2008 kl. 09:02

5 identicon

Þeir láta alltaf svona kanarnir og sérstaklega Bush-administrationen. Nú er stærsta dýrið hjá þeim: Olmert.

Ætli hann verði snæddur?

ee (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 09:12

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Bíddu, á ekkert að blogga um "litla sæta " Ísbjörninn sem var "myrtur" í gær? Múhahahahah

Þröstur Unnar, 4.6.2008 kl. 09:21

7 Smámynd: Þröstur Unnar

a

Þröstur Unnar, 4.6.2008 kl. 09:21

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég held að BNA menn veiði fleiri hvali en nokkur önnur þjóð. Ég vil hval á diskinn minn

Hólmdís Hjartardóttir, 4.6.2008 kl. 11:07

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gúdmorning U.S.A. og Jenný!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.6.2008 kl. 11:19

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég myndi frekar borða engisprettur en hval.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.6.2008 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband