Leita í fréttum mbl.is

Stundum á fólk að þegja - steinþegja!

ts_soldier 

Stundum er gott að telja niður þegar manni er ofboðið.  Getið hvað ég er búin að vera að gera síðasta hálftímann? 1,2,3,4,5,6........500008

Og nú kemur það.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra kemur mér sífellt á óvart. Yfirleitt þá finnast mér skoðanir hans svo fornar, hugsanahátturinn, svo kaldastríðslegur og trú hans á her algjörlega úr takt við tímann.

Í huga mínum sé ég hann á gólfi ráðuneytisins í tindátaleik.  Fyrirgefðu Björn, en ég hef allt of fjörugt ímyndunarafl.

Hversu smekklaust er það að nota skelfilega atburði fimmtudagsins sem röksemd fyrir varaliðið sem Birni langar að koma á fót?

Mér finnst þessi skrif á bloggi Björns lýsa algjörum skorti á virðingu fyrir þolendum skelfilegs jarðskjálftans að mig skortir nærri því orð.

Björn Bjarnason er reyndar sá maður, fyrir utan Búss, sem getur gert mig kjaftstopp með fáránlegum hugmyndum sínum og skort á að skynja hvað er viðeigandi hverju sinni.

Svo skilja sumir aldrei hvar mörkin liggja.

Hvenær er best að þegja.

Eins og t.d. núna kæri dómsmálaráðherra.

SUSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS


mbl.is Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Var einmitt að spá í að blogga um þetta, mér finnst þetta hallæris komment hjá honum. Takk fyrir að tjá þig svona vel um þetta skottið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2008 kl. 21:00

2 Smámynd: Himmalingur

Sammála þér Jenný! Mundu að stjórnmálamenn kafa djúpt í skítinn ef þeir halda að það komi þeim vel. Merkilegt hvað margt laðast að skít og skítalykt!!!

Himmalingur, 1.6.2008 kl. 21:05

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er það ekki alltaf þannig að ef mann langar nógu mikið í eitthvað þá finnur maður allskyns rök fyrir réttlætingunni?

Hrönn Sigurðardóttir, 1.6.2008 kl. 21:11

4 Smámynd: Jens Guð

  General Björn er björn síns tíma.  Maður sem hefur aldrei vaxið upp úr tindátaleikjum eða þroskast upp úr kaldastríðsheimi pabba síns. 

Jens Guð, 1.6.2008 kl. 21:27

5 identicon

BB stendur náttlega fyri Big Brother and he is watching you now Jenný ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:11

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mail

Jóna Á. Gísladóttir, 1.6.2008 kl. 22:29

7 identicon

Var einmitt að tjá mig um þetta á öðru bloggi. Mér finnst hann Björn orðinn alveg hreint voðalega eitthvað Bush-ískur í þankagangi.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:37

8 Smámynd: Haraldur Davíðsson

BB er hættulegur fasisti

Haraldur Davíðsson, 1.6.2008 kl. 22:50

9 Smámynd: Ragnheiður

Hann er svo hallærislegur með þetta að það fauk í mig og ég skrifaði umhugsunarlaust blogg. Það gerist ekki oft en eins og sjá má þá entist móðurinn ekki lengi hjá mér.

Ragnheiður , 1.6.2008 kl. 23:09

10 identicon

Það er greinilegt að sumir sjá flísina í auga bróður síns. Hvernig væri að horfa í spegil og skoða bjálkana.

Ólafur B. Jónsson (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 23:29

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ólafur: Djúúúúpur!!!!!!!!!!

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2008 kl. 23:42

12 Smámynd: Alfreð Símonarson

100% sammála þér, hann ætti frekar að styrkja hjálpasveitirnar, þ.s. væntanlega flestir þessara 30 lögreglumanna voru í en ekki er mynnst einu orði á þá staðreynd. Svona orðalag BB og fréttamanna er einmitt ættað úr heilaþvottarbók frá USA ;)

Alfreð Símonarson, 2.6.2008 kl. 08:33

13 Smámynd: Yngvi Högnason

Svona sleggjudómar minna mig alltaf á stúlkuna sem að sagði er hún var spurð hvort hún borðaði síld:Oj bara, nei,ég hef aldrei smakkað hana.
Mér er spurn,hefur fólk lesið um hvað var verið að skrifa eða er bara farið í æsing yfir fyrirsögn á mbl.is þar sem að vitnað er í Björn Bjarnason og af því að það er hann? Það væri ekki vitlaust að skoða þetta: http://gislifreyr.blog.is/blog/gislifreyr/#entry-557109 og reyna svo að átta sig á því hver er kjáni og hver ekki.

Yngvi Högnason, 2.6.2008 kl. 09:46

14 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

     "Stundum á fólk að þegja - steinþegja!"

Og stundum á fólk að segja - af sér! Þetta er formleg áskorun til BB!

 Sjá nánar...

Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband