Leita í fréttum mbl.is

Þjóðverjablús

Þessi frétt um Bretann sem fékk bætur frá breskri ferðaskrifstofu vegna þess að of margir Þjóðverjar voru á hótelinu og öll skemmtidagskrá var á þýsku, kallar á Þjóðverjabrandara.

Ég kann enga.  Ég held að allir brandarar um þjóðerni geti verið vafasamir en auðvitað á ekkert að vera hafið yfir húmor.

En af Þjóðverjum ganga ákveðnar sögur.  Hvort sem mönnum líkar betur eða verr.

Einn af mínum mörgu eiginmönnum vann í Fríhöfninni.  Það klikkaði aldrei að Þjóðverjarnir vissu upp á krónu hvað þeir áttu að fá til baka.  Klikkaði aldrei.

Annar af mínum fjölmörgu eiginmönnum rak heimagistingu.  Undantekningalaust tóku Þjóðverjarnir allt lauslegt með sér af morgunverðarborðinu.  Það klikkaði heldur aldrei.

Þetta segir mér bara eitt.  Það er engu logið um þýska nýtni og og sparsemi.

Það er bara hið besta mál.

Reyndar var ég á hóteli á Mallorca fyrir fullt af árum síðan með Maysuna og Söruna litlar.  Þar var hópur af Þjóðverjum.  Ég kunni ljómandi vel við þá sem ég varð málkunnug.

Allir þeir sem ég kynntist og fleiri til borðuðu hverja máltíð á hótelinu.  Keyptu matarkort áður en þeir lögðu af stað.

Þetta skil ég ekki, enda nánast bara Þjóðverjar og einn og einn Hollendingur í matsalnum.

Allir hinir voru í tilraunastarfsemi út um alla eyju.

En mikið rosalega held ég að Bretinn hafi verið pirraður.  Og satt best að segja skil ég hann smá.

Úje.


mbl.is Fær bætur vegna of margra Þjóðverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég man eftir því þegar ég var einmitt í fríi á Spáni með mö og pa þegar ég var yngri, þá voru Þjóðverjarnir mættir eldsnemma fyrir allar aldir út í garð og á ströndina til að ná bestu bekkjunum til að liggja á í sólbaði, þetta var alveg örugglega um 6 á morgnana....mér fannst þetta alltaf svo ótrúlega fyndið að nenna að leggja þetta á sig

Sunna Dóra Möller, 1.6.2008 kl. 15:12

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ég man eftir þessu líka.  Algjörlega óþolandi.  Þeir eru svo búralegir.

Muhahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2008 kl. 15:24

3 identicon

Það hefði toppað annars frábæra færslu ef einn að þínum fjölmörgu eiginmönnum hefði líka verið ... Þjóðverji

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 17:09

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég skal viðurkenna hér að blessaðir Þjóðverjarnir eru dálítið spes.  Ég á nokkra góða þýska vini og þeir eru bara misjafnir eins og þeir eru margir og fer mikið eftir því hvaðan þeir koma frá Þýskalandi.

Ía Jóhannsdóttir, 1.6.2008 kl. 17:54

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

vann einu sinni á  hóteli,einmitt med morgunmatinn og thad var bara fyrir vist..thegar thjódverjarnir mættu á svædid vard allt TÓMT  efast ekki um ad vasar og tøskur voru vel kýldar af rúnstykkjum og smurosti  en svo var fyrirskipun " ekki setja of mikid á hladbordid..thad er hópur af thjódverjum á  leid i morgunmatinn.."  svo thetta er ekkert "myth" sko... en their eru alveg ágætir eins og gengur

María Guðmundsdóttir, 1.6.2008 kl. 18:42

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Íslendingar mættu taka sér Þjóðverja til fyrirmyndar í mörgu s.s. sparnaði og umgengni við landið okkar. -

En stundum ganga Þjóðverjar of langt. - Ég man eftir einu dæmi endur fyrir löngu. - Sat ég til morgunverðarborðs með Þjóðverjum á hóteli í Róm. - Þar voru m.a. borin fram stór rúnstykki sem litu út eins og módel af Vatikaninu. - Nema að ég hafði ekki lyst á að klára mitt brauð eftir að ég var búin að taka einn eða tvo bita. - Og viti menn, Þjóðverjarnir tóku afgangana sem ég skildi eftir og pökkuðu því inn í servíettu, og fóru með það. - Það fannst mér hámarkið.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.6.2008 kl. 18:57

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LG: Hahahaha, það ber öllum saman um morgunverðarhegðun Þjóðverja.

María: Einmitt.

Anna: Fjölmargir eiginmenn mínir eiga ekki ættir að rekja til Þýskalands.  Einn var hálfur Kani, einn íslenskur í báðar, einhver var af dönskri hástétt í aðra og svo mætti áfram telja.

Guðlaugur: Ég er svo helvíti minnug að ég man heilu innkaupalistana.  Þess vegna man ég eftir öllum mínum fjölmörgu eiginmönnum.

Hallgerður: Við tökum það besta og hendum hinu.

Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2008 kl. 19:30

8 identicon

Það eru fáir leiðinlegri en þjóðverjar. Austurríkismenn toppa þá nú samt.

sigga (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985791

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband