Leita í fréttum mbl.is

Tippið á Hilmi Snæ...

 ..hefur skráð sig á spjöld íslenskrar kvikmyndasögu, svo eftir hefur verið tekið.  Það eru amk. ekki mörg æxlunarfæri sem fá um sig frétt í Mogganum.  Maðurinn sem er við hinn endann á tippinu, Hilmir Sær vonar reyndar að það sé ekki bara vegna reðursins, sem myndir hans og önnur verk, slái í gegn. 

Nú hefur limur þessi verið tilnefndur til dönsku klobbaverðlaunanna og þess vegna er þessi frétt í Mogganum í dag.

Okokok, reynum aftur.  Það er engin sýnileg ástæða fyrir þessari frétt, tippið er bara til umfjöllunar sí svona, án sýnilegrar ástæðu.

Næst fáum við að vita um sigurför rasskinna Kristjáns Jó.

Æi, er gúrka?

Ædóntþeinksó.

Úje!


mbl.is Hilmir Snær nakinn í kvikmyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki til gúrkutíð í fréttamensku bara latir fréttamenn.

Gunnar Pétur (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 08:55

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Leiðinlegt ef satt er, þó ég hafi nú brosað að vitleysunni, en bros eru holl.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 08:59

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Jeminn...þetta er fyrsta bloggið sem ég les á þessum ágæta degi og það fjallar um tippi......ég varð bara hálf vandræðaleg en fór fljótt að brosa .... ég er bara svo tepruleg í morgunsárið !

Eigðu góðan dag

Sunna Dóra Möller, 1.11.2007 kl. 09:12

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hilmir Snær er náttúrulega svakalega fagur maður... þeas það sem maður hefur séð af honum. Varla færi hann að sýna sig á sprellanum ef það væri líklegt til að ...tja, minnka hann svona fagurfræðilega séð

Heiða B. Heiðars, 1.11.2007 kl. 10:01

5 Smámynd: krossgata

Jedúddamí, þetta er nú alveg ekki-frétt aldarinnar.  Ég er enn að reyna að finna út af hverju þetta er frétt eða tilganginn með umfjölluninni og er nú farin að klóra mér í höfðinu með báðum höndum. 

krossgata, 1.11.2007 kl. 10:53

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahaha mér þykir þetta afar þörf frétt og fróðleg... eða þannig

Jóna Á. Gísladóttir, 1.11.2007 kl. 11:24

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vonandi að þetta sé EKKi frétt fyrir konuna hans Hilmis Snæs, skiptir minna máli fyrir okkur hinar addna

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 11:37

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Beta,  búin að kíkja og það er rétt, þetta er nokkuð merkilegt allt saman. Smjúts á þig annars og farðu að blogga kona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 11:43

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha ég varð náttúrulega fyrir vonbrigðum, þegar ég opnaði fréttina og þar var ekkert typpi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2007 kl. 12:01

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá Beta hvað ég "öfundast"

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 12:22

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Beta þarna átti þessi að fylgja með

Ásthildur mín: Gat ekki misboðið mínum viðkvæmu lesendum með MYNDEFNI að þessu sinni

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 12:23

12 identicon

Kannski ég ryðjist hér inn í kvennahópinn  og legg eftirfarandi inn:

1. Hilmar Snær fær frítt inn á reðursafnið á Húsavík (sem ég hvet alla til að skoða)

2. Typpi er líklegast með tvöfölldu (ég meina y-i)

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 13:07

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, alveg laukrétt hjá þér, engin SÝNILEG ástæða fyrir fréttinni og það í mörgum skilningi og þetta í raun engin frétt!

En samt gerir þú þitt elsku Jenný til að auglýsa "ekkifréttina"

Og Moggamenn eru auðvitað hæstánægðir með þig og hina, tilgangnum sannarlega náð með birtingunni!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.11.2007 kl. 18:11

14 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hann Hilmir er bara svo flottur leikari að typpið fellur ( sem betur fer kannski, í skuggann) þegar maður horfir á hann perfomera skiptir ekki máli, skil samt ekki alveg þessa frétt, hvað er pointið með henni?

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 1.11.2007 kl. 18:17

15 identicon

Iss mér finnst þetta ekkert merkileg frétt eftir að hafa séð typpið á Viggo Mortensen í fyrrakvöld  ..... sko í myndinni Eastern Promises  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 19:51

16 Smámynd: Fríða Eyland


Fríða Eyland, 3.11.2007 kl. 03:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband