Leita í fréttum mbl.is

Af Jenný Unu, Bördí Jennýjarsyni, sem nú kallast dúskur dúllurass og götustelpum!

Vó, þetta er löng fyrirsögn.  Allt að því "Ellísk".  En ég þarf að koma eftirfarandi á framfæri  (þið getið litið á þetta sem skilaboðatöflu).

Jenný Una kom hér í dag eins og ég var búin að segja ykkur, og hún var mjög, mjög skemmtileg.

Við endurnýjuðum kynnin við "GÝLU" (var ekki búin að læra að segja GRÝLA fyrir síðustu jól).  Hún horfði lengi á myndina og sagði svo:

"Hún er reið og hættuleg. Nei, nei, hún er góð, hún er bara þreytt í bakinu." (Vott, er barn farið að vinna á sænska sjúkrasamlaginu?)

"Amma farðu úr herbergi mín og hættu trubbla mig meir, é er að versla matinn." (Fyrirgefðu fröken).

"Franklin Máni Addnason er kærastiminn, allir krakkarnir eru kærastir, öll í kór." (Ég er enn að reyna að ná þessum, held að allir eigi kærasta, hver einasti einn).

Hafi fjölskyldan hér á kærleiksheimilinu einhvertímann haldið að hún hefði stjórn á Bördí Jennýjarsyni, þá hefur sú hugsanavilla verið leiðrétt.  Bördí er núna í algjörri lausagöngu, fer í búr til að borða, hangir á spegli eins og skreyting og leggur sig uppi á bókahillunum.  Nú hefur hann búið sér til athvarf milli tveggja bóka (nei, segi ykkur ekki hvaða tímamótabókmenntir þetta eru, því höfundarnir eru enn og lífi og trúa því að þeir hafi eitthvað að færa heiminum með bókum sínum).  Bördí kallast nú dúskur dúllurass, af því hann hleypur upp í vöndul þegar hann sefur.  Er eins og fagurblár garnhylkíll með dassi af svargrænu. Dúskurinn heitr í höfuðið á Dúu nokkurri, ekkibloggara.

Jájá.

Þið sem hélduð að nú kæmi kafli um götustelpur, verðið nú fyrir vonbrigðum.  Hann verður birtur síðar.  Mun síðar.

Ójáhá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 00:37

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

krakkinn er rassgat.. eins og amman

Jóna Á. Gísladóttir, 30.10.2007 kl. 00:42

3 Smámynd: Ragnheiður

Barnið er frábært ! Ég kem í heimsókn þegar ég verð búin að finna mér nógu stórt fuglanet...ég er í alvöru hrædd við dúskinn (nei ekki Dúu!!)

Ég kem samt muhahahaha...láttérbatnaadda....það er svo klént að vera með flensu !! Segðu húsbandi að hann fái bara áfram gráan bíl, þessi græni er ekki nógu vel tilhafður fyrir hann.

Ragnheiður , 30.10.2007 kl. 00:50

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Húsband segist alsáttur, grænn/grár wassðediffrens.  Smjúts á ykkur esskurnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 01:22

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragga mín, sko kvikindið verður látið í búr þegar þú kemur.  Það er loforð.  Og auðvitað er græni efstur á óskalista en Einar er svo hógvær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 01:33

6 Smámynd: Hugarfluga

*reita hár* Krútttttttttt!!!

Hugarfluga, 30.10.2007 kl. 08:14

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan daginn hér ! Jenný Una er alveg óhemju krúttlegt barn  og þessi fugl.......held því statt og stöðugt fram að hann sé manneskja í álögum...!

Eigðu góðan dag....ég held það stefni í óveður !

Sunna Dóra Möller, 30.10.2007 kl. 08:16

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

FLott færsla aldeilis yndæl þessi litla stúlka hún Jenný Una  Og fuglinn hehehehe 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.10.2007 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband