Leita í fréttum mbl.is

Af engu tilefni..

..bæti ég um betur og birti lista yfir það sem ég vil láta banna.

Ég bendi á færsluna mína frá í gær yfir allt það sem ég vil ekki láta banna og nú leyfi ég mér að bæta um betur.  Ekki að það hafi komið fram neinar upplýsingabeiðnir þar um, en ég er að springa úr ofurtrú á eigin mikilvægi og treð þessu að.

Bannlisti Jennýjar (óskalisti fyrir jólsveininn):

Bönnum:

Súlustaði,

Vændi,

Skötu,

Kjötfars,

Tólg,

Lýsi,

Fordóma,

Playboy,

Ráðherrabíla,

Enska boltann og

allan pakkann af leiðinlegum hlutum bara,

Ójá,

Pistill til að laga meltinguna og lækka hitann hjá mér fyrir svefninn.

Vegna sótthita verður ekki tekin ábyrgð á ofansögðu.

Ég er með óráði.

Cry me a river,

Úje

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolgrima

Skötu?!

Kolgrima, 29.10.2007 kl. 00:22

2 Smámynd: Bara Steini

Eimitt....Skötu...

Bara Steini, 29.10.2007 kl. 00:29

3 Smámynd: Kolgrima

Hvað verður þá eiginlega um Þorláksmessu? Þessir femýniztar vilja alltaf banna allt sem er skemmtilegt

Kolgrima, 29.10.2007 kl. 00:32

4 identicon

Skata er eitt af 7 undrum veraldar. Það besta sem ég fæ.....

Hólmdís Hjartardóttir (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 00:40

5 identicon

Gleymdirðu ekki framsóknarmennskunni?

Brjánn Guðjónsson (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 00:44

6 identicon

Heil og sæl, Jenný Anna og aðrir skrifarar !

Tólg og lýsi hafa fylgt okkur, frá öndverðu. Fyrr skildi ég liggja 18 fetunum neðar (lögboðin eru 6 fetin); áður en ég féllist á þessar röksemdir þínar, Jenný mín.

Hætt við; að ég yrði illvígur draugur, Jenný Anna; yrði þér að ósk þinni, um bann við ofangreindum nauðsynjum.

Er ekki smjörið; eitt og sér, full þunnur Þrettándi út á fiskmetið, Jenný mín ? Hamsatólgin er reyndar langbezt.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 01:00

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessir bölvaðir femýnystar eira engu Kolgríma og já skata er umhverfismengandi og skemmir skynfæri fólks.  Hehe, á Þorláksmessu borða ég hangikjöt.

Öll fita, lýsi, innmatur og sollis á að banna, ekki spurning.  Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 01:06

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Beta ætli Óskar yrði ekki bara glaður með súlustaðina og allan pakkann í jörðinni Ha?? Híhí.

Dúa: Þótt þú sért enn einn ganginn búin að taka út færslurnar þá ertu bloggari aulinn þinn

Talk in two tounges?  Það er svo krúttað ekkað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 02:06

9 Smámynd: Kolgrima

Svo má alltaf láta sig dreyma; um snjólausar götur og kæsta skötu

Kolgrima, 29.10.2007 kl. 02:53

10 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hvað með ljóshærða, bláeygða þingmenn undir fertugu?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 29.10.2007 kl. 07:41

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég vil skipta út enska boltanum og lýsi, fyrir heimskt fólk og nýnasista

æ dónt læk sillí pípól

Hrönn Sigurðardóttir, 29.10.2007 kl. 08:18

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er ein af þessum hissa-íslendingum á fyrsta snjódag hvern einasta vetur. Var svakalega hissa í morgun til dæmis. Best að blogga um það.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.10.2007 kl. 08:59

13 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þó að ég sé sammála flestu sem að hér kemur fram á bannlistanum, þá gladdi það mig mest að sjá kjötfarsið...! Það á að vera löngu búið að banna það ... !

Vonandi fer þessu flensuómynd að fara og þú að hressast

Sunna Dóra Möller, 29.10.2007 kl. 09:44

14 identicon

Jenný mín. Bestu þakkir fyrir að hringja tilbaka áðan, Vonandi ertu búin að jafna þig á hóstanum.  Heyrumst. Bless á meðan!

Hrefna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 10:11

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi eins og Kolgríma samþykki aldrei að banna skötuna.  Hún er meinholl alveg eins og hákarlinn.  Ef ég hef hausverk eða illt í maga, sýð ég mér skötu.  Nægilega sterka, og hausverkurinn hverfur.  Lýsi hef ég drukkið í nær 30 ár núna, mér til heilsubótar, vegna slitgigtar og myndi aldrei samþykkja bann við því heldur elskuleg. 

Nó way sko !

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2007 kl. 10:34

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Banna mánudagsmorgna sem byrja fyrir hádegi og vínlausar flugferðir. 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.10.2007 kl. 10:40

17 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Enska boltann? Jenný, þú ert nú meiri femínistabeljan! Hamsatólg? Þetta gerir þú bara til að kvelja hann Óskar, vin minn! Skammmm!

Elska þig samt!

Guðríður Haraldsdóttir, 29.10.2007 kl. 11:07

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásgeir Kristinn: Já bætum þeim á listann

Tómas Örn: Alveg til í að banna vinstri menn ef þú ert til í að koma með málamiðlun.  Ertu geme með aðhúmorslausum mönnum verði bannað að tjá sig á mínu bloggi?

Hrönn: Tillaga samþykkt ´sskan.

Jóna: Get over it darling, nema þú ætlir að missa andlitið á hverjum morgni OFAN í skaflana

Hrefna: Takk.

Ásthildur mín: Þið eruð ekki í lagi þarna fyrir vestan

Ásdís: Samþykk og slegið hæstbjóðenda

Gurrí: Sjálf geturðu verið femýnyztabelja, hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 11:17

19 Smámynd: krossgata

Tek undir flest, en ekki skötuna!!!!!  Það ætti auðvitað að banna að borða hangikjöt á Þollák það sér hver feministi í hendi sér að hangkjöt á að borða á jóladag!!! 

krossgata, 29.10.2007 kl. 11:20

20 identicon

Hehehehehehe. Lýsi er gott fyrir sundfólk. Banna Framsóknamenn,Borða ekki hangið kjöt svo það má banna það. Banna svínakjöt.Og BANNAÐ að PISSA í sundlaugina

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 11:45

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dharma: Er þér illa við femýnyzta og VG? Nebb, þér getur ekki verið alvara.  Ég væri hins vegar alveg til í að banna þig, skítkastaran nafnlausa, amk. myndi ég ekki gráta það ef þú hættir að bloggga ljósið mitt

Birna Dís: Ætlarðu að fokka upp jólamatnum fyrir fjölda Íslendinga sem verða að borða reyktan svínahrygg á jólunum?

Krossgata: Hefðir eru til að brjóta þær ´sskan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 12:18

22 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Nokkuð góður listi en ég hef þó ekkert á móti lýsi og kjötfarsi.

Steingerður Steinarsdóttir, 29.10.2007 kl. 12:37

23 identicon

Kommi Kommi Kommi farðu til Kína Jenný

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:34

24 identicon

Draumlisti listi minn yfir hluti sem ætti að banna

 Öfgafeminista eins og jenny Stigamót SÁÁ Vinstri Græna Framsókn Kommunista og Che gevura aðdáendur

Alexander Kristofer Gustafsson (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:36

25 identicon

Heil og sæl, sem fyrr Jenný Anna og skrifararnir !

Jah, nú þykir mér stungin tólgin. Súlustaðir; svonefndir eru slík lastanna bæli, að frekar hneigist ég nú, að lokun þeirra, um alla eilífð, mætti ég einhverju ráða, hér í heimi.

Jenný og Elísabet ! Ekkert að því, að liggja 18 fetunum neðar, byðist slík forláta steinkista, sem Páll Jónsson Skálholtsbyskup (1155 - 1211), frændi minn; var til lagður í, eftir sína burtköllun til Guðs. A.m.k., maðka- og pöddufrír búnaður að kalla.

Þið munið; tiltölulega heilleg beinagrind, sem bagall frænda, þá hinn ágæti flokkur Kristjáns heitins Eldjárn gróf hann upp, og kuml hans allt, árið 1956.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband