Leita í fréttum mbl.is

Sumir ættu að setja tappann í flöskuna..

..fyrr en seinna.  Að hefja ferð og slútta henni á sama stað án þess að hreyfa sig út úr flugstöðinni er töluverður bömmer.

Æi, svo "leiðilett" að lesa um, en mun verra að upplifa, get ég ímyndað mér.

Rosalega er ég fegin að hafa ekki drukkið og ferðast í leiðinni.

Var svo lítið í ferðalögum meðan ég var í "víninu" (understatement aldarinnar).

Baráttu- og batakveðjur til Farþegarns.

Ójá.


mbl.is Svaf af sér utanlandsferðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Frekar neyðarlegt!

Huld S. Ringsted, 28.10.2007 kl. 22:47

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Við Nick erum farin að rífast yfir þessu. Ég spyr; afhverju var aumingjans maðurinn handtekinn? Það fylgir ekki fréttinni. Nick vill meina að það sé nóg að maðurinn hafi ætlað drukkinn um borð. Ég segi að hann ætlaði ekki neitt, hann var dauður. Það væri eins og að handtaka einhvern áður en hann keyrir yfir á rauðu ljósi. Ég vil restina af fréttinni takk fyrir. Núna STRAX

Jóna Á. Gísladóttir, 28.10.2007 kl. 23:22

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna það er bannað með lögum að hleypa drukknu fólki um borð í vélar. Svo er bannað með lögum (ekki að djóka) að vera drukkinn á almannafæri.  Ójá elskan mín

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2007 kl. 23:25

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Já er þetta ekki merkilegt. Það má gleypa í sig gullinn vökva að vild í Leifsstöð (eða svona eftir því sem fjárráð leyfa) og svo á maður bara von á löggunni

Jóna Á. Gísladóttir, 28.10.2007 kl. 23:37

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dóra: Vá þetta er óheppni. 

Lögin eru eins og vegir Guðs Jóna mín, órannsakanleg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 00:07

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Heyrðu... ég er manísk út af þessu. Er ekki bara bannað að drekka á almannafæri, þ.e. utandyra? má ekki alveg vera rúllandi fullur til dæmis á Ingólfstorgi?

Jóna Á. Gísladóttir, 29.10.2007 kl. 00:24

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei Jóna mín, þú mátt ekki vera full á Ingólftorgi, það er af og frá, þú verður að hætta þessum ósið.  Það er hinsvegar í lagi með að vera drukkin á Hlemmi (bara færa sig). 

Í alvöru darling, þá er bannað að vera drukkinn á almannafæri amk. í Reykjavík.  Veit ekki með Leifsstöð.  Dubbelmoral? Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.10.2007 kl. 01:09

8 identicon

Rétt hjá Jenný. Leifstöð hlýtur að vera almannafæri. Er ekki almenningur þar? En þú mátt kaupa bjór og brenni vín í Leifstöð og drekka það en ekki verða fullur af því. Og á öðru almannafæri eru sömu lög.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband