Leita í fréttum mbl.is

Steiktir heilar..

Ég veit ekkert hvort það er hægt að banna náttúruafurðir eins og sveppi sem valda eldamennsku í heilanum.  Ég veit ekki einu sinni hvort það er gerlegt að gera það að glæpsamlegu athæfi að týna sér jurtir til neyslu.  Ég er a.m.k. ekki að missa svefn yfir því. 

En myndbandið sem fylgir þessari frétt er alveg stórgott sem fyrirbyggjandi aðgerð.  Ef fólkið í mótmælahópnum er skoðað, sést að það er nú svona frekar veðrað og sjúskað af neyslu.  Svo segir það líka heilmikið um dómgreindarleysi fíkla, að taka börnin sín með sér í mótmælin, skreyta þau með teiknuðum sveppum og sjá nákvæmlega ekkert athugavert við það.

Ég sting því upp á að þeir í Amsterdam sýni bara myndbandið og ég er viss um að það á eftir að skila góðum árangri.

Hver vill ganga um og láta það standa utan á sér að heilinn sé gjörsamlega steiktur og kominn að fótum fram?

Efast um að það sé mikill áhugi á að taka sér það til eftirbreytni.

Algjör snilld.

Ójá.


mbl.is Mótmæltu fyrirhuguðu banni á sölu ofskynjunarsveppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er svipað og ég hugsaði þegar ég sá fréttina. Endilega sýna myndbandið,það er góð forvörn. Annars er þetta bara ein hlið á þessum hryllilega sjúkdóm sem ALKAHOLISMI er.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 13:25

2 identicon

Ég bloggaði um það sama og er sammála þér. Mér fannst myndbandið mjög lýsandi fyrir málstaðinn, að sjá börnin þarna í fanginu á foreldrunum skreytt með sveppum fékk mig til að nota orðið klikkhausar í færslunni minni. Það mæltist ekki alls staðar vel fyrir. Sínum augum lítur hver .....

Knús til þín

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 13:46

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Veistu að mér varð einmitt líka starsýnt á börnin......ég er eiginlega sammála henni Önnu að nota orðið klikkhausar! Það er bara eins og fólk stundum hætti að hugsa..........æi ég tek bara börnin með til að mótmæla banni á ofskynjunarsveppum, það er attílæ !

Stundum verð ég orðlaus...þetta er ein af þeim stundum !

Sunna Dóra Möller, 28.10.2007 kl. 15:15

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur, sammála og forvarnargildi myndbandsins er nokkuð öflugt. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2007 kl. 15:19

5 Smámynd: Jens Guð

  Dópistar eiga börn eins og annað fólk.  Er ekki betra að taka börnin með í gönguna heldur en skilja þau eftir í reiðuleysi heima' 

Jens Guð, 28.10.2007 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband