Leita í fréttum mbl.is

Búhú-færsla!

 

Nú kem ég með eina Búhúu.  Þetta er ekki hægt. Ég er of jákvæð.  Ég hef ekki grátið á blogginu mjög, mjög lengi.  Þetta er búhújöfnun.

Ég á bágt, ég er veik.

Ég finn til í hálsinum og mig verkjar í beinin.

Mér er kalt og ég hósta eins og mófó.

Hefur einhvern verkjað í hárið?

Mig verkjar eimmitt mjög mikið  hárið, sérstaklega vinstra megin.W00t

Vont, vont..

og það versnar.

Búhú..

ójá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Kannast við þetta hárvesen, ég og móðursystir vorum oft svona, illt í hárinu. Rest af familíu taldi okkur klikk

Láttér batna...

Ragnheiður , 28.10.2007 kl. 10:14

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kús til þín Jenný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2007 kl. 10:38

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sendi þér knús og feitar batakveðjur, elskan. Hér í himnaríki mætti líka alveg vera betra ástand ...

Guðríður Haraldsdóttir, 28.10.2007 kl. 10:40

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Farðu vel með þig - og hárið

Hrönn Sigurðardóttir, 28.10.2007 kl. 11:09

5 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Ég kannast við að vera heitt í hárinu en sonur minn kvartaði oft yfir því þegar hann var lítill "mamma, méð eð so heitt í háðinu"

Prófaðu að setja eitthvað kalt á "bágtið" og farðu vel með þig, Jenný mín

Þóra Sigurðardóttir, 28.10.2007 kl. 11:14

6 identicon

Flensan komin í Jennýjar-bæ? Þá verður manni illt í hárinu. Ég var svoleiðis í minni flensu. Ekkert íbúfen er til í borginni en Voltarene-Dolo og parataps virkuðu þokkalega á hárverkina. Góðan bata ljúfust

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 11:15

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Má bjóða þér á hátæknisjúkrahúsið Huld, það er búið að starfa í viku þrátt fyrir að eini starfskrafturinn sé búin að vera lasinn líka. En þetta með hárverkina kannast ég ekki við!

Láttu þér batna Jenný mín

Huld S. Ringsted, 28.10.2007 kl. 11:38

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Nýbúin með þennan pakka!! Fékk svo mikinn hita að ég var með hálfgert óráð... heyrði í hestum frammí stofu af og til alla nóttina
En hárið á mér finnur aldrei fyrir neinu í svona pöddukasti... en ég verð ferlega aum í skinninu;)

Heiða B. Heiðars, 28.10.2007 kl. 11:52

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Flott mynd sem þú setur með færslunni! kemst ekki alltaf yfir bloggið þitt, sé samt að þú hefur verið að blogga um áfengi hér á undan, það er mjög merkileg forystugrein í Mogganum í dag um áfengi sem hættulegasta fíkniefnið - jafnvel. Láttu þér batna eskan, þú veist að ég´skanna allt hjá þér þótt ég komist ekki alltaf til að kommenta. Inga vinkona skannar líka reglulega bloggin okkar og svo hringir hún í mig ef hún þarf að tala um eikkað á blogginu, skrifar aldrei. Knús á þig.

Edda Agnarsdóttir, 28.10.2007 kl. 12:31

10 Smámynd: halkatla

líttu á björtu hliðarnar: það er kominn vetur og þá er bara kúl að vera með flensu.

nei annars, ég skal þegja. Láttu þér bara batna 

halkatla, 28.10.2007 kl. 12:32

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

búhú

Laufey Ólafsdóttir, 28.10.2007 kl. 13:04

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 28.10.2007 kl. 13:10

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk, þið eruð flottur þrýstihópur.

Heiða mín: Velkomin í mannheima.

Edda: Hún Inga mætti nú fara að hringja í vinkonu sína mig. Hm...

Jóna: Vá þetta eru margir kallar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2007 kl. 13:12

14 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Farðu vel með þig, það er svo gremjulegt að vera lasin !

Batakveðjur

Sunna Dóra Möller, 28.10.2007 kl. 13:25

15 identicon

Þú átt sko samúð mína alla  Ég fékk þennan fjanda og mér var illt í öllu andlitinu (þar með talið hársverðinum), meira að segja í munninum, tannholdinu nánar tiltekið. Ég hef aldrei vitað eins asnalega pest. Hún endaði reyndar í lungnabólgu með tilheyrandi pillufargani, asthma-lyfjum o.fl. - svo passaðu þig, farðu vel með þig elsku Jennsla - þú ert svo dýrmæt

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 13:37

16 Smámynd: Hugarfluga

Góðan bata, Jennýmús. Farðu vel með þig.

Hugarfluga, 28.10.2007 kl. 14:08

17 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

míns líka lasin og í bólinu. Muuuu.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.10.2007 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985823

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.