Fimmtudagur, 18. október 2007
Ég fer á Vog - Snúra
..vona ég, eftir inngrip sem ég þarf að fara í fljótlega og kostar innspýtingu á hættulegum lyfjum, í boddíið á mér, fyrir alkahólista. Ég er að minnsta kosti búin að biðja um innlögn.
Vegna misskilnings og skort á upplýsingastreymi, bíð ég enn eftir þessari rannsókn sem ég þarf að fara í.
Ég er búin að vera að bræða með mér hugmyndina um að fara beint á Vog úr rannsókninni og í morgun tók ég ákvörðun. Ég tek enga sénsa með allsgáða lífið mitt.
Stundum er sagt að þetta sé spurning um hugarfar, þ.e. hvort maður lendir í tómu tjóni, við lyfjagjafir og svæfingar (lyf sem hafa áhrif á miðtaugakerfi eins og áfengið gerir), en ég tel mig vera með þetta líka glimrandi edrú hugarfar. En allsgáða lífið mitt er mér það dýrmætasta af öllu. Vegna þess að án þess, gæti ég ekki notið neins af því sem lífið hefur gefið mér. Fjölskylduna mína, vinina og að geta lifað mér sjálfri mér, horft framan í spegil og þolað við, að vera ég.
Þess vegna steðjar kona á Vog. Þ.e. ef það er pláss. Ég elska Vog. Þar var lífi mínu bjargað og mér hjálpað á fætur.
Þórarinn, Valgerður - einhver!! Plís, er ekki einhversstaðar beddi sem ég get fengið að liggja á, ha??
Úje.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Snúra, Vinir og fjölskylda | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Þú ert svo ótrúlega flott Jennslukrúttið mitt
Jóna Á. Gísladóttir, 18.10.2007 kl. 11:49
Mér finnst þú svo mikil hetja og svo heiðarleg og meðvituð gagnvart sjálfri þér! Þú ert sannarlega sterk kona! Leiðinlegt að heyra að allt sé að dragast og ég er viss um að Þórarinn muni taka fra aukabedda fyrir þig, annars hringi ég í hann !
Gangi þér ótrúlega vel í þessu öllu saman og láttu þér líða vel og farðu vel með þig
Sunna Dóra Möller, 18.10.2007 kl. 11:50
Auðvitað á ekki að taka sénsa ef maður er ekki viss, og nota alla þá þjónustu sem til er, þegar svona mikið er í húfi. Gangi þér bara vel rosalega vel.
Þröstur Unnar, 18.10.2007 kl. 12:04
Langar bara að óska þér góðs gengis Jenný og ég hef fulla trú á að þú fáir bedda á vogi að þessu loknu...
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.10.2007 kl. 12:18
Flottasta skvísan..frábært hjá þér elskan mín
Ragnheiður , 18.10.2007 kl. 12:18
Gangi þér vel. Þú mætir bara til Þórarins með viðlegubúnaðinn ef ekki vill betur.
krossgata, 18.10.2007 kl. 12:25
Ef ég réði einhverju um það hver fær bedda og hvenær á Vogi myndi ég ekki þora annað en að finna einn svoleiðis handa þér í snatri!!
Annars meiga þeir eiga von á fjöldapóstsendingum frá bloggheimi eins og hann leggur sig
Heiða B. Heiðars, 18.10.2007 kl. 12:32
Þú ert svo flott Gangi þér vel í þessari rannsókn. Veit að ég á eftir að sakna þín þegar þú ferð.
Kolgrima, 18.10.2007 kl. 12:34
Jenný ég óska þér góðs gengis í þessu öllu saman.
Gott hjá þér að gera ráðstafanir vegna verkjalyfjanna - vona bara að það verði engin vandræði fyrir þig að komast inn á Vog eftir rannsóknina.
Kær kveðja.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 12:46
Dem, krakkar, dem, dem, það má ekki blogga á Vogi. Sjitt, þá verð ég að biðja húsbandið um að blogga fyrir mig. Lalalala málið leyst.
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 12:54
Gangi þér vel Jenný auðvitað færðu bedda til að liggja á .Sammála Heiðu hér að ofan, þeir eiga annars ekki von á góðu frá bloggheimum
Guðný GG, 18.10.2007 kl. 13:05
Rifið með ráð undir rifi hverju! (Er konan ekki annars rif?)
Kolgrima, 18.10.2007 kl. 13:05
Kolgríma, ég er rif í beinagrind mannsinsog með ráð undir hverju einasta. Lalalala
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 13:22
Ég er nú þegar byrjuð að vorkenna húsbandinu að vera settur í það embætti að blogga fyrir þig. Ætli þú verðir ekki að fara að hanna námskeiðið "blogg a la Jenný".
EN - Þú átt það mörgum sinnum inni hjá Tóta að fá góðan afeitrunarbedda á Vogi eftir þessa rannsókn. Þú ert ekki svo lítið búin að leggja baráttunni lið með öllum þessum snúru-bloggfærslum.
Smjúts
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 13:50
Gangi þér vel!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.10.2007 kl. 14:17
Það hlýtur að ganga að svona jákvæð kona sem tekur ekki séns á neinni afturför, fái innlögn. Þú ert nú gangandi dæmi um vellukkaðan alka sem tók sig á og getur verið mörgum fyrirmynd. Gangi þér vel elskið mitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 14:40
Gangi þér vel - ljósið mitt
Hrönn Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 14:51
Jæja elsku rúsínan mín, það er eins gott að fylgja sannfæringunni eftir. Láttu það ekki storka þínum anda ef þú færð ekki beddann, það eru rosalega margir sem eiga viðlíkann bedda! Hljómfagrir tónar eiga eftir að fylgja þér og halda þér í jafnvægi.
Edda Agnarsdóttir, 18.10.2007 kl. 15:03
Auðvitað tekur þú ekki sjénsa - heldur skransar beint á Voginn. Hef nefnilega "lesið um" fólk sem hefur haldið að þetta myndi reddast - but no......... Konan er að taka ábyrgð á eigin lífi - ekki spurning! Við hin bíðum þá bara eftir blogfærslum - þegar Vogurinn er unninn!
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 18.10.2007 kl. 15:42
Gangi þér vel. Ég gerði þetta líka fyrstu árin mín á snúru og hef farið í stuðning þegar langar og leiðinlegar lyfjameðferðir hafa verið í gangi. Gott hjá þér að fjarstíra húsbandinu á meðan. Þú gætir hringt á milli prógramma og talað inná teip.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 16:26
Auðvitað eru sjénsar ekki inni í myndinni, ábyrg og flott afstaða hjá þér. Finnst reyndar fín hugmyndin hennar Birnu, þú talar inn á teip, og húsbandið situr sveitt og pikkar inn. Gangi þér annars vel, vona að þú getir nýtt þér dvölina í botn.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.10.2007 kl. 19:23
Þú ert ótrúlega dugleg, Jenný. Ég get bara rétt ímyndað mér hvað það þarf mikið átak andlega og líkamlega að takast á við Bakkusarbölið og aðra vímuefnafíkn. Kudos to you, my dear.
Hugarfluga, 18.10.2007 kl. 20:05
Bara einn karlmaður tjáð sig,best að slást í hópinn.Mér finnst þetta hárrétt afstaða hjá þér, veit vel um hvað málið snýst,og sjens á maður ekki að taka í þessum efnum ef við ætlum að halda áfram þurrviðrinu sem er alveg ljómandi.Þórarinn tekur þér örugglega fagnandi.Kýldu á þetta....
Ari Guðmar Hallgrímsson, 18.10.2007 kl. 20:59
kva! leyfir blog.is ekki símablogg? Þú mátt vera með síma, right? :D
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.10.2007 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.