Leita í fréttum mbl.is

Geta ekki allir samþykkt..

.. að femínisti sé sá sem telur að fullu jafnrétti kynjanna, hafi ekki verið náð?

Ég þekki engan sem ekki tekur undir það, amk. í orði.  Kannski er ég svona heppin með fólk sem ég umgengst og tala við!

Er þetta ekki nokkuð rétt lýsing á femínisma?

Ef svo er þá eru ansi margir femínistar út um koppagrundir.

Annars er þessi texti hér fyrir ofan, hrein snilld og undirstrikar hversu sjálfsagt og eðlilegt það er að aðhyllast femínisma. 

Það telst varla róttækni að líta á konur sem fólk.

Erum við ekki öll börnin góð, alveg bullandi femmar?

Eins gott fyrir ykkur.

Ójá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ó jú...Ég er femínisti og er stolt af því! Jafnvel ofurfemínisti   ef út í það er farið og hvika hvergi frá þeirri afstöðu!! Þetta er svo flott tilvitnun ! Feminismi er frábær, feministar eru frábærir og feminísk fræði hafa gert líf mitt skemmitlegra og ríkara.....það er nú bara þannig !

Sunna Dóra Möller, 18.10.2007 kl. 17:14

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er feministi en aðhyllist ekki ''ofsatrú'' í þeim efnum frekar en öðrum. Ég verð að viðurkenna það að stundum þykir mér fólk fara offorsi í nafni feminisma og þá verð ég svolítið pissed.. rétt eins og þegar ég verð pissed þegar fólk fer offari í nafni trúar.

Jóna Á. Gísladóttir, 18.10.2007 kl. 17:37

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Textinn er sjúklega góður

Jóna Á. Gísladóttir, 18.10.2007 kl. 17:37

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jónsí mín, þess vegna eru til frjálslyndir femmar og róttækir og allt þar á milli.  En grunnurinn er sá sami.  Úje.

Sunna Dóra: Sammála þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 17:41

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

P.s ef ég má bæta við að þá er ég er alveg sammála Jónu um að öfgar eru slæmar hér eins og annars staðar, myndi aldrei mæla ofsa femínisma bót frekar en ofsatrú sem að er beinlínis skaðleg!

Sunna Dóra Möller, 18.10.2007 kl. 17:42

6 Smámynd: Fríða Eyland

Ég er rauðsokka aðhyllist jafnrétti kynjanna 50/50 og vil fara að sjá það gerst.  Ráðum borgarinnar eru tildæmis kynjaskipt, alveg með ólíkindum að aðeins konur séu í mannréttindanefnd og karlar í framkvæmdaráði ein kona af sjö breytingar takk

Fríða Eyland, 18.10.2007 kl. 18:33

7 Smámynd: Guðný GG

Á ekkert að kíkja í heimsókn ?

Guðný GG, 18.10.2007 kl. 18:40

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég var kölluð "ofurfeministi" á bloggsíðu konu hér á dögunum í gær eða fyrradag og ég hafði raunar alrdrei pælt í þessu orði, en er virkilega sátt við það. Svo bið ég ykkur allar/öll að skoða þessa færslu Ólínu Þorvarðardóttur

Edda Agnarsdóttir, 18.10.2007 kl. 19:26

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

EKki slæmt að vera ofurfemmi, pant ég líka.

Guðný GG: Ég kíki í heimsókn og kvitta stundum, stundum ekki.

Fríða: Ok þú rauðsokka mítú.

Takk stelpur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 19:30

10 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég er bæði fólk og kona og gargandi femma. Þarf ég að tíunda það eitthvað frekar?

Laufey Ólafsdóttir, 18.10.2007 kl. 19:44

11 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég tók einmitt eftir þessu ofurfeminista nýyrði, og mér fannst það alveg ógó flott......þess vegna notaði ég það hér áðan (svona er mar alltaf að stela annarra mannarra hugmyndum)!!!

Sunna Dóra Möller, 18.10.2007 kl. 20:03

12 identicon

Það eru víst til ótal skilgreiningar og undirflokkar allavega miðað við það sem kemur upp þegar define feminism er slegið inn. Miðað við þær myndi ég líklega flokkast sem equality feminist. En ég varð nett frústreruð þegar ég fór að skoða þetta. Það skal nú bara viðurkennt (klórandiséríkollinumkéddling)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 20:06

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst þetta frábær frasi. Alveg í mínum anda við erum fólk. Og náttl. í framhaldi af því vil ég benda á að öryrkjar og ellilífeyrisþegar eru líka fólk, en ég veit að þú veist það og styður okkur. Takk fyrir það essskkan

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 20:07

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Ef þetta er að vera Femínisti, þá er ég það. En eru ekki fleiri karlfemmar til e.hvað, eða eruð þið feimnir við að viðurkenna það?

Þröstur Unnar, 18.10.2007 kl. 20:10

15 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei vitað almennilega hvað það er að vera feministi

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 18.10.2007 kl. 20:36

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Textinn er frábær, hann segir allt

Marta B Helgadóttir, 18.10.2007 kl. 21:10

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þröstur og Gísli: Nú vitið þið að þetta er einföld og góð pólitík.  Engin heimsyfirráð eða dauði stefna eins og svo margir vilja halda.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985831

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.