Leita í fréttum mbl.is

Og litla gula hænan sagði ekki ég...

Skelfing verð ég hallærislega mikill almúgi þegar ég les fréttirnar af því að Randver Þorláksson, verði ekki með í Spaugstofunni í vetur.  Ég er sum sé að drepast úr forvitni sem hinn nafnlausi sjónvarpsáhorfandi.  Mig langar í alvörunni að vita hvað það er sem stendur ekki í fréttunum af þessu máli. 

Það vísar hver á annan hérna.  Randver segir ekkert, Örn vísar á Þórhall og Þórhallur á Randver.  Kommon, hver er ástæðan fyrir því að Randver, sem mér finnst einn af þeim betri í Spaugstofunni, er látinn fjúka?  Og fyrirgefið, má ekki setja upp leikverk, leikþátt, gamanþátt, fjölskylduþátt eða bíómynd án þess að Hilmir Snær skreyti þá með nærveru sinni?´

Mér finnst Hilmir Snær magnaður leikari en þeir eru bara svo margir góðir sem við eigum og suma sjáum við allt of sjaldan. 

Ég tek fram að þetta er svo sem ekkert hitamál hjá mér, enda enginn sérstakur Spaugstofufan síðustu árin, en ég horfi samt þegar ég hef ekki eitthvað annað spennandi að gera.  Mér finnst stelpnahúmor skemmtilegri, enda hefur maður fengið óverdós af karlahúmor í gegnum árin.  En Randver er flottur.  Hvað er í gangi?

Þegar maður segir A þá er það náttúrulögmál að á eftir fylgi B.. og

Komasho


mbl.is Randver hættir í Spaugstofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sammála....mér fannst líka ansi skrýtið hvernig allir vísuðu þvers og krus á hvern annan í blöðunum í morgun......en eiga bræður ekki að standa saman og hætta bara allir sem einn í mótmælaskyni og til að sýna einum af stofnendum spaugstofunnar stuðning.......bara smá hux hérna! Njóttu dagsins annars.....kveðja frá Magdölum þar sem ég dvel þessa dagana !

Sunna Dóra Möller, 13.9.2007 kl. 11:50

2 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Uh, það er nú kannski ekki alveg á svo vísan að róa með störf í staðinn, eða mynduð þið segja upp ykkar aðalstarfi ef náunginn á næsta bás yrði rekinn?

Var annars ekki aðallega vísað á Þórhall Gunnarsson og hann neitaði að tjá sig, enda í fullum rétti með það. Þeir vilja lífga eitthvað við þarna, og reyna að fá yngra liðið til að horfa. Ég þekki eiginlega engan lengur sem horfir á Spaugstofuna (jú, mamma og pabbi en varla mikið fleiri).

En það verður eftirsjá í Boga og Örvari...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 11:56

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég er að dreeeeeeepast úr forvitni! Segi það sama og þú koma svo!.....knús og kveðja í kotið þitt darling.

Heiða Þórðar, 13.9.2007 kl. 12:29

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já ég  hvað er í gangi og mér finnst þetta skrýtið.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.9.2007 kl. 12:30

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ákvörðun dagskrárstjóra RÚV!!??? hmmm... skrýtið.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.9.2007 kl. 12:31

6 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Boycott the bastards.

Æhópúagríandjóínmíinsælentprótest.

Ingi Geir Hreinsson, 13.9.2007 kl. 12:36

7 Smámynd: Ibba Sig.

Bara af því að ég sé að hér er fólk að fara með staðlausa stafi.

Aðeins fleiri en mamma og pabbi Hildigunnar horfa á þáttinn. Að minnsta kosti helmingur þjóðarinnar og oft vel það horfir á Spaugstofuna í hverri viku. Þátturinn er meðal þeirra vinsælustu á vetrardagskránni. 

Ibba Sig., 13.9.2007 kl. 13:04

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er gífurlegt áhorf á Spaugsstofuna, það er hárrétt hjá Ibbu. 

Ég er ekki að fara fram á að ekki séu gerðar breytingar hjá sjónvarpi eða öðrum stöðum yfirhöfuð, mér finnst bara að þarna liggi eitthvað að baki sem ekki er sagt og ég er að drepast úr forvitni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 13:21

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já ég gæti alveg trúað því líka að þarna sé ekki allt með felldu á ferðinni. En ég er nú bara að sjá þetta hér fyrst.

Edda Agnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 13:26

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

jájá, að sjálfsögðu var ég með heilmiklar ýkjur. Var hreint ekki að segja að enginn horfði, en Spaugstofan er nær gersamlega búin að tapa yngri kynslóðinni. Meira að segja krakkarnir mínir (7, 11 og 15 ára) nenna ekki að horfa, og alls ekki fólk á aldrinum 18 ára til þrítugs eða svo. Vel skiljanlegt að sjónvarpið vilji reyna að hrista upp í þættinum, sem oft hefur gert mjög góða hluti, til þess að ná þessum stóra hóp aftur.

Kannski tekst það, sérstaklega vegna þess að þættir eins og Strákarnir hafa algerlega gengið sér til húðar og það á mun skemmri tíma en Spaugstofan, þó þar hafi óneitanlega verið þreytumerki að sjá stundum.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 13:27

11 identicon

En getur verið að markhópur þeirra sé bara alls ekki yngra fólkið?

Fólkið sem hefur gaman af Sveppa og Strákunum er ekki sá hópur sem horfir á Spaugstofuna. Spaugstofan er með svona "eldri húmor" þar sem gert er grín að pólitíkusum og málum sem eru í gangi í samfélaginu. Krakkarnir sem horfa á Sveppa eru ekkert að pæla í svoleiðis málum eftir því sem mér hefur sýnst.

Guðrún (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 13:43

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

jú, samkvæmt þessum aðgerðum eru a.m.k. forsvarsmenn dagskrárdeildar Sjónvarpsins ekki sáttir við að missa þennan hóp frá aðalskemmtiþætti þeirra.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 13:50

13 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

(hvað svo sem Spaugstofumenn sjálfir sjá sem sinn markhóp...)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 13:51

14 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Vá, þetta verður þjóðinni erfitt.  Nú þurfum við að læra að hlægja að nýjum bröndurum.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 13.9.2007 kl. 14:30

15 identicon

Hef sagt það annars staðar og segi það líka hér: Þetta er samsæri, eitt risastórt samsæri sem gengur út á það að koma einshverjum Norsurum að í spaugstofunni!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 15:27

16 identicon

Hildigunnur. Hvenær hefur Spaugstofan haft þennan aldurshóp sem markhóp? Aldrei. Markhópurinn hefur alltaf verið annar, og ef RÚV vill endilega ná til aldurshópsins sem finnst Sveppi æðislegur þá er lausnin ekki sú að þynna út Spaugstofuna. Lausnin er þá bara sú að búa til þátt fyrir þá sem dýrka Sveppa.

Guðrún (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 16:16

17 Smámynd: halkatla

hnuss! er búið að reka mig útaf bloggvinarúntinum? maður er bara orðinn ansi fúll hérna

halkatla, 13.9.2007 kl. 16:34

18 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Þar get ég vel verið sammála, Guðrún, en þetta er greinilega ekki stefna dagskrárdeildar.

Við skulum sjá til hvort þetta verður útþynning eða ekki, það er nú útséð um það. Kannski ég nenni aftur að fara að horfa á Spaugstofuna... ;-)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 17:04

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna; góð.  Hahaha, annars hef ég ekki á móti því að það sé endurnýjað í sjónvarpi, þvert á móti, ég er bara að drepast úr forvitni fyrst og fremst.  Muahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 17:15

20 Smámynd: Heiða  Þórðar

KAFFIÐ ER AÐ VERÐA KALT HEIMA Á MINNI SÍÐU...............................og ég sármóðguð!

Þykir samt undurvænt um þig.

Heiða Þórðar, 13.9.2007 kl. 17:38

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við vitum ekki hver ástæðan er.  Það er samt smá svona undirliggjandi eitthverjar glæður.  Það að Randver vill ekki tjá sig, segir manni að annað hvort hefur honum verið lofað einhverju öðru, eða hanna veit upp á sig skömmina.  það er bara mannlegt.

Að hver vísi á annan segir manni líka að þarna sé eitthvað á ferðinni sem allir séu í raun sammála um að sé rétt að staðið, bara má ekki segja það.

Ég heyrði einu sinni konu sem vann í verslun þar sem Randver verslaði, segja að hann væri sá versti fýlupoki sem kæmi inn í verslunina.  Það segir mér að þessi ágæti maður eigi erfitt með skapið á sér.  Svo ef til vill er þetta bara mannleg samskipti sem ekki eru alveg að ganga upp, svona endalaust.  Og þessi leið farinn.  Þeir hljóta að hafa gert sér grein fyrir því að um þetta yrði fjallað og það mikið, þannig að þetta er ekki eitthvað léttvægt eða skyndiákvörðun.  Þannig blasir þetta við mér.  Annars mun ég sakna Randvers úr hópnum, hann var einn af þessari heild, svo mismunandi sem gæðin voru, þá held ég upp á þáttinn og dáist að því hve lengi þeir hafa getað haldið honum úti og ennþá jafn vinsæll.  Eins og Evróvision enginn þykist horfa, en allir fylgjast með.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2007 kl. 17:46

22 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Er komin í "unglingahúmorinn" og horfi örsjaldan á Spaugstofuna en finnst Randver takast vel upp í hlutverkum sínum. Skrýtið að láta hann hætta!

Guðríður Haraldsdóttir, 13.9.2007 kl. 17:52

23 identicon

Skelfing verð ég hallærislega mikill almúgi þegar ég les fréttirnar af því að Randver Þorláksson, verði ekki með í Spaugstofunni í vetur. 

Hvað ertu að meina?????

Patrekur (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 18:01

24 Smámynd: Heiða  Þórðar

Takk elskan. Þú ert á toppnum og ég var farin að halda að þú hefðir yfirgefið mig....fékk þvílíka höfnunartilfinningu svo sveið undan......elsku músasúkkulaðirúsína.

Ég tók þó allavega eftir því að þú kíktir ekki við......knús í bæinn.

Heiða Þórðar, 13.9.2007 kl. 18:01

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er oft talað um "almúgann" sem andlitslausan massa sem hafi sjúklegan áhuga á frægu fólki.  Ég var að fíflast með það. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 18:16

26 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég er líka forvitin. Það getur ekki verið að hann hafi verið látinn hætta til að búa til pláss fyrir yngra fólk. Enda var þremur bætt við og þótt Randver sé mikill karakter þá er hann varla þriggja manna maki. Þarna er eitthvað annað á ferð. En hvað er...veit ekki. 

Kristín M. Jóhannsdóttir, 13.9.2007 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband