Leita í fréttum mbl.is

GAMALT VÍN Á NÝJUM BELGJUM?

 1

Stundum get ég ekki annað en brosað yfir nýjum orðum sem eiga að rétta við ímynd ákveðinna hugtaka eða fyrirbæra.  Það sem kemur strax upp í hugann er hin gamla "Félagsmálastofnun" sem varð að "Félagsþjónustunni", en þar er orðið þjónusta auðvita mun jákvæðara en orðið stofnun.  Það orð  sem var okkur lengi til skammar og lýsti hugarfari stjórnvalda (og kannski þjóðarinnar) til innflytjenda var  "Útlendingaeftirlitið", það hefði smell passað inn í eftirlitsstofnun í Hitlersþýskalandi. Er hægt að að kalla stofnun sem sjá á um innflytjendamál, neikvæðari nafni?  Nú heitir Útlendingaeftirlitið sum sé "Útlendingastofnun".  Af tvennu illu þá er það eitthvað skárra.

Ég var að lesa blöðin áðan og rakst þá á frétt um "lögblinda" og "seinfæra" stúlku, án þess að ég ætli að fara gera þá sérstöku frétt að umtalsefni. 

En nú spyr ég, af því þessi hugtök eða skilgreiningar hef ég ekki rekist á áður,

er lögblinda orð yfir að vera blindur?

Er seinfær, það sama og vera hreyfihamlaður eða þroskaheftur?  Kannski bæði?

Mér finnst ég ekki hafa við að fylgjast með sk. "orðatísku".  Það er skelfilegt að vera allt í einu pólitískt rangur í orðavali og verða sjálfum sér til skammar og koma út sem fordómafullur dóni.

Skýring, einhver?

Súmí


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ef þú ert seinfær þá ertu seinni til..... ekki alveg þroskaheft en sein.....

Lögblindu hef ég aldrei heyrt um áður!!

Hrönn Sigurðardóttir, 20.8.2007 kl. 16:23

2 Smámynd: krossgata

Ég velti fyrir mér hvort lögblinda sé fínna orð yfir siðblindu.  En það gæti alveg eins verið að þegar sjónskerðing sé komin á tiltekið stig sé maður löglega blindur.  T.d. eins og 75% örorka er full örorka, sama og 100%.  Þannig að þetta gæti verið einhvers konar mælieining m.t.t. réttinda og bóta.

Seinfær hef ég heyrt áður og þýðir það sem Hrönn sagði að vera á eftir.

krossgata, 20.8.2007 kl. 16:33

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég hef aldrei heyrt orðið lögblinda.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.8.2007 kl. 16:52

4 identicon

"Félagsþjónusta" er ótæk í Reykjavík.  Réttþenkandi noti "Velferðarsvið Reykjavíkurborgar."

Páll Lúðvík Einarsson (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 16:54

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

"lögblinda" er búið að vera lengi til, það er notað þegar sjón manna er orðin það skert (en ekki alveg blindir) að þeir geti illa bjargað sér sjálfir  og eigi rétt á allri þjónustu hjá blindrafélaginu og örorkubætur. Þekki þetta því mamma mín er búin að vera "lögblind" í 2 ár.

Huld S. Ringsted, 20.8.2007 kl. 16:58

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hefði ekki getað orðað þetta betur en Huld.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 17:04

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú er ég öllu nær.  Takk fyrir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 17:24

8 identicon

Tek undir með þér að þessi orð virka stundum ankannaleg. Svo er þeim stundum einhvern veginn hent inn í málið og fara að þvælast hingað og þangað í greinum án þess að vera útskýrð í leiðinni, ávísun á alls kyns óþægilegan misskilning.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 20:39

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Útlendingaeftirlitið var auðvitað arfavitlaust heiti. En er ekki kominn tími á að henda líka nafninu Útlendingastofnun? Væri ekki snilld að fara að fordæmi Félagsmálastofnunar og láta stofnunina heita Útlendingaþjónustan? Mikið myndi nú slíkt heiti lýsa jákvæðri hugsun

Ragnhildur Sverrisdóttir, 21.8.2007 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985859

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband