Leita í fréttum mbl.is

BANNAÐ - BANNAÐ - BANNAÐ

1

Nú er bannað að reykja í öllum kvikmyndum sem Disney fyrirtækið framleiðir.  Ég minnist þess nú ekki sérstaklega að í myndum félagsins hafi reykjandi fólk vaðið mikið uppi.  En hvað með það, um að gera að láta allt sem tilheyrir raunveruleikanum bara hverfa.

Nú má ekki reykja (handritahöfundar heimsins - út með retturnar)

Næst verður bannað að drekka áfengi

Svo verða allir að vera í kjörþyngd í bíómyndum

Síðan verður bannað að geraða í bíómyndum, kyssast og sollis

Ekki væri verra ef ruslfæði hyrfi af matarborðum söguhetjanna

Svo endar þetta með steingeldum engladansi.

Ég hlakka alveg svakalega til.

Jeræt


mbl.is Engar reykingar í kvikmyndum Disney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

*Púúúúh*  Mér finnst fínt að reykja, og ekkert rugl.

Maja Solla (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 11:19

2 Smámynd: Edda Jóhannsdóttir

Er ákaflega hugsandi yfir þessu. Vorum einmitt að ræða það um daginn að allt stefndi í að verða eins og í vísindaskáldsögu þar sem fólk klæðist kyrtlum, gengur um í einhverskonar útópísku ástandi og gerir ekkert nema með leyfi yfirboðaranna. Hrollvekjandi tilhugsun. 

Edda Jóhannsdóttir, 26.7.2007 kl. 11:58

3 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Síðan verður það að skilyrði að allir séu í "rétta" flokknum, sem er Disney þóknanlegur.

Ingi Geir Hreinsson, 26.7.2007 kl. 12:12

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Soldið eins og markmiðið sé að selja fólki það sem á að vera eðlilegt og rétt........fela öll fráik undir teppi. Staðalmyndirnar verða þá ríkjandi.......ekki venjulegt fólk sem er bara mannlegt......reykir, fitnar, kyssist, borðar stundum sveitta borgara osfvr..........ekki góð þróun !

Sunna Dóra Möller, 26.7.2007 kl. 12:25

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef ekki undan að kommenta hjá þér yfirduglegabloggstelpa.  Reyni þó. Geturðu klónað Jenny Unu og sent mér eitt eintak mér til skemmtunar, hún er algjört æði heyri ég. Ég endurtek að ég ætla að byrja að reykja 67 ára (hægt að skipta um skoðun) og segðu mér svo hvaða grænu púkar eru að stríða þér? ég skal eitra fyrir þeim 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.7.2007 kl. 12:31

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hvernig ætla þeir þá að fara að því að gefa í skyn hverjir séu vondu kallarnir . Það er nebblega alltaf gert með sígó. Í öllum Disney myndum hingað til eru þeir vondir sem eru með vindling hangandi í munnvikinu.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 12:35

7 identicon

Já Jóna þetta er rétt hjá þér.. en kanski láta þeir bara vondu kallana vera alla hrukkótta , orðljóta með tannstöngul. Það gæti líka hjálpað að láta þá alltaf vera með byssu....

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:36

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Eða lambúshettu......það lúkk klikkar aldrei

Sunna Dóra Möller, 26.7.2007 kl. 12:43

9 identicon

Oh! Bömmer! Var að bíða eftir myndinni : Bambi bjargar sígarettuverksmiðju

Dúa (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:46

10 identicon

Hehehe Sunna, já með götum fyrir augu og munni, og svo er hún einhvernveginn alltaf skökk á andlitinu þannig að þeir eru voðalega sceary eitthvað.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:49

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð frábær

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.7.2007 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband