Leita í fréttum mbl.is

"RÚKJANDI RAGNARÖK; HANN GERÐI MIG AÐ ALGJÖRU FÍFLI JENNY", KVEIN Í TAKTLAUSU VINKONU MINNI, SEM ELSKAR AÐ DANSA SIG Í BEÐJUNA MEÐ ELSKHUGUNUM, EN ER EINS OG TAUGATREKKTUR TRÉKARL MEÐ RIÐUVEIKI Á DANSGÓLFINU.

1

Nú, nú, hugsaði ég ætli hún hafi í þetta skiptið toppað sjálfa sig í því sem hún kallar að dansa?  "Og hvernig gerði hann þig að fífli" spurði ég þunglyndislega? Jenny ég get svarið það, maðurinn er illur, hann gekk að mér á ballinu, bauð mér upp í dans og ég sagði auðvitað já og þá benti hann út á dansgólfið og sagði svo kvikindislegri röddu; dansaðu þá og svo gekk hann á brott".

Þorrí ég er með jónínubenheilkennið, alltaf að lofa að hætta en stend aldrei við það.  Nú er ég sko hætt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

Er nokkur ástæða til að hætta?  Það er alltaf verið að segja "aldrei of seint að hætta", svo það er þá líklega bar hægt að gera það síðar er það ekki?

krossgata, 3.7.2007 kl. 15:22

2 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Ó  - nó, ekki hætta strax. Mér finnst þetta miklu skemmtilegara en "annað sem ég las stundum í apríl". Ég get lifað mig inní þær aðstæður sem birtast hér. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 3.7.2007 kl. 15:43

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hhahahahaah! Snilld.

Guðríður Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 15:51

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ha, ha, ha, góð stelpa. Þú hættir náttl. ekkert það er ekki í boði. En þú ert alveg nógu vinsæl og frábær, þannig að þú þarft ekkert að ellýjast eða jónínast, þær kannski taka þetta til sín og sjá sækóið í þessu.    annars trufla þær mig ekki, les þær ekki.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2007 kl. 16:09

5 identicon

Þú slærð Ellý alveg út.... ekki hætta!

Díta (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 16:14

6 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Þú ert snillingur

Björg K. Sigurðardóttir, 3.7.2007 kl. 16:14

7 identicon

Jenný! Nú ertu endanlega búin að SANNA að þú getur hæglega rúllað henni upp ... nú eða niður ... svona eftir því hvernig á það er litið  ... en ... að því sögðu ..... VILTU að ég skipti yfir í Ellý???

Smjúts, knús og allt þar á milli

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 16:21

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ellý who? Þú skiptir ekki einu eða neinu frú Ólafsdóttir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 16:23

9 identicon

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 16:38

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég meina þú skiptir ekki einu eða neinu ÚT frú Ólafsdóttir, Híhí Djö getur maður stundum verið dónalegur bara með því að gleyma einu orði.  Ég sem elska þig Anna mín.  Þorrí

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 16:47

11 identicon

HjÚTkett!!! Ég get þá ÚT-talað mig um það núna að þetta ÚT-komment var algjörlega ÚT-i í ÚT-móa - en eikkað so ógisslega fyndið samt 

lovjútú  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 16:57

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Snilld. Ellý hvað? Las eina færslu hjá henni og það dugði mér.

Dansinn já, þetta er nákvæmlega það sem minn lék á sínum jammárum þegar maðurinn var ungur og sætur og flestar sögðu já takk. En er ekki viss um að öllum hafii fundist það fyndið  

Þröstur Unnar, 3.7.2007 kl. 17:36

13 identicon

EKKI HÆTTA. Ellý hver? Ég er löngu hætt að kíkja þangað.  Þetta er auðvitað hrein snild

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 17:44

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi hvað Anna varð skelfingu lostin þarna (bakfalla-hláturskall)

Jóna Á. Gísladóttir, 3.7.2007 kl. 18:18

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú ert óforbetranleg stúlka mín, ég hélt að ég myndi deyja úr hlátri þegar ég sá fyrirsögnina.  Og ég sem er svooooooooooooo þreytt og lúin, varð náttúrulega að skoða þessi undur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.7.2007 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985823

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband