Leita í fréttum mbl.is

SKELFILEGUR RAUNVERULEIKI

1

Fimmta hvern barn á grunnskólaaldri hér á landi hefur sætt líkamlegu ofbeldi á heimili og er hlutfall svipað á vettvangi skólans.  Þriðjungur telur sig hafa sætt andlegu ofbeldi og eitt af hverjum tíu segir frá kynferðislegu ofbeldi í einhverri mynd.

Þetta kemur mér ekki á óvart.  Það vita allir sem fylgst hafa með rannsóknum um heimilisofbeldi, að ofbeldi á börnum hér á landi er því miður, algengt og hluti af heildarmyndinni.  Það er auðvitað bara gott ef börn eru farin að segja frá og raunveruleikinn kemur upp á yfirborðið.  Aðeins þannig er hægt að taka á vandamálinu.

 

 


mbl.is Fimmta hvert barn á grunnskólaaldri hefur sætt líkamlegu ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Andskotinn

Jóna Á. Gísladóttir, 3.7.2007 kl. 14:35

2 Smámynd: krossgata

Þetta eru svipaðar tölur og maður hefur heyrt í nokkur ár.  Ber að skilja það sem svo að aukin umræða og það sem reynt er að gera til að vernda börn sé ekki að skila árangri?  Þurfum við þá ekki að breyta aðferðum?

Niðurstöður rannsóknarinnar segja auðvitað mikið meira en fréttin um þær.  Þar finnst mér áberandi að þeir sem beita ofbeldinu sem spurt er um eru í miklum meirihluta annað barn eða ungmenni.  Ég spyr því hvað erum við að kenna börnunum okkar í samskiptum við aðra, sem veldur því að þau koma svona illa fram hvert við annað? 

krossgata, 3.7.2007 kl. 15:19

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Mig langar að vita hvernig þessar niðurstöður eru fengnar. Hvernig eru svona kannanir gerðar?

Helga R. Einarsdóttir, 3.7.2007 kl. 15:40

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er nú alveg gáttuð

Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2007 kl. 16:15

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er til margskonar ofbeldi, sennilega er andlega ofbeldið algengast og erfiðast að komast að.  En andskotinn, meðan engar kröfur eru gerðar til foreldra, þá er ekki við öðru að búast.  Þú þarft að sýna fram á allskonar hæfni til að gera hin ýmsu störf í þjóðfélaginu, en það sem er allra heilagast og mest í húfi að takist vel upp, þarf ekkert próf, enga sýnilega hæfileika  og allt í nafni frelsis.  Spáið í þaða. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.7.2007 kl. 19:16

6 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég hugsa reyndar líka að sum börn kalli eðlileg takmörk foreldra andlegt ofbeldi. Uppeldið á börnum þessa lands er í molum. TD

Brynja Hjaltadóttir, 5.7.2007 kl. 19:56

7 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég hugsa reyndar líka að sum börn kalli eðlileg takmörk foreldra andlegt ofbeldi. Uppeldið á börnum þessa lands er í molum. Td sakaði 16 ára sonur minn mig fyrir andlegt ofbeldi þegar ég lét taka bíl sem hann hafði eignast af númerum og afhenti þau Frumherja til vörslu, þegar ég stóð hann að því að aka án réttinda. Ofbeldi? So be it..

Brynja Hjaltadóttir, 5.7.2007 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.