Leita í fréttum mbl.is

JÚRÓ, KOSNINGAR OG STÓRAFMÆLI

22

...allt þann 12. maí nk.  Þá verður fallegasti smádrengurinn í heiminum tveggja ára.  Hann verður fjarri góðu gamni þetta krútt af því að hann er búsettur í heimsborginni London.  Amman ætlar samt ekki að sleppa afmælispartíinu því hún ætlar að grilla, bjóða upp á íþþþ og fleiri ullabjökk.  Það verður ekki nærri því eins gaman  og ef Oliver væri hér, en við látum ekki svona stórafmæli líða án þess að halda upp á það þrátt fyrir að afmælisbarn dagsins sé svona  fjarstaddur ásamt mömmunni og pabbanum.  Rosalega er yngsa ömmubarnið orðið stórt.  Úff Maysan ég veit að þú ert daglegur lesandi bloggsins hennar mömmu þinnar.  Komdu heim!!!

Það erum ekki bara við amma-Brynja sem teljum afmælið hans Olivers einn merkasta dag ársins.  "The eurovision song contest comitee" sér ástæðu til að halda upp á daginn með söngvakeppninni í Finnlandi.  Hið íslenska kosningabatterí var líka með Oliver í huga þegar kosningadagurinn var ákveðinn.  Kæra fólk þið getið líka tekið þátt í afmælinu hans Olivers Einars.  Þið farið og kjósið rétt, hlammið ykkur svo niður fyrir framan sjónkann og horfið á Eirík taka söngvakeppnina með vinstri.

Elska ykkur litla fjölskylda.

Og að lokum nokkrar myndir frá því að Maysan var hér í mars sl.

383940

Ímó, Andrea, Maysan og Oliver     Maysan ofvirka á hlaumpum     Andreasan og Mayshildur Djóns


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær flott og falleg, það er mjög skiljanlegt að þú sér stolt af þessum elskum Jenný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2007 kl. 18:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Enda er ég að rifna úr monti bæði af stelpunum mínum og barnabörnum Takk Ásthildur mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 19:21

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þú mátt það alveg elsku Jenný mín.  Þau eru bara svo flott.  Alveg eins og mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2007 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985840

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.