Leita í fréttum mbl.is

ALVEG ÓTRÚLEGUR HÓPUR AF FÓLKI..

22

...29.941 svo nákvæmlega sé talið hafa heimsótt síðuna mína á þessum tveimur mánuðum sem ég hef bloggað.  Það er skemmtileg tilhugsun að svo margir hafi gengið um á mínu bloggi og vel flestir án þess að gefa sig til kynna.  Það setur reyndar að mér smá hroll við tilhugsunina.  Verður kona þá ekki að vera grafalvarleg og skrifa málefnalega um alvarlega hluti? Júbb og Neibb.  Ég ætla að halda áfram að vera grallari stundum, háalvarleg þegar við á og láta játningarþörfina fá útrás þegar mér líður þannig.  Nú kemur gestur nr. 30.000 að líkindum í dag.  Værir þú heiðraði blogglesari til í að kvitta fyrir komu þinni.  Höfundinum til ánægju og yndisauka.

LofjúgæsInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Dettur þér ekki í að að við höfum sumir heimsótt þig oftar en einu sinni

Haukur Nikulásson, 22.4.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Er ekki bara tekið svona til orða? Eins og þegar 100.000 manns hafa séð Harry Potter. Við vitum náttúrlega að einhverjir hafa séð myndina oftar en einu sinni. E'ha'ki? Til hamingju með áfangann Jenný.

Jóna Á. Gísladóttir, 22.4.2007 kl. 15:20

3 Smámynd: Kolgrima

Þú ert bara svona skemmtileg  

Kolgrima, 22.4.2007 kl. 15:27

4 Smámynd: Kolgrima

Þú ert bara svona skemmtileg  

Kolgrima, 22.4.2007 kl. 15:29

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Kom í heimsókn. En þarf maður endilega að skrifa um eitthvað sérstakt eða há alvarlegt á blogginu?

Vona ekki. Til hamingju með allan gestaganginn. Viltu vera "bloggvinur" minn? 

Þröstur Unnar, 22.4.2007 kl. 15:34

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Kom í heimsókn. En þarf maður endilega að skrifa um eitthvað sérstakt eða há alvarlegt á blogginu?

Vona ekki. Til hamingju með allan gestaganginn. Viltu vera "bloggvinur" minn? 

Þröstur Unnar, 22.4.2007 kl. 15:35

7 Smámynd: Kolgrima

Þú ert bara svona skemmtileg  

Kolgrima, 22.4.2007 kl. 15:38

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Haukur minn ég er svo skyni skroppinn að ég held að 30 þús. kennitölur hafi komið í heimsókn

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 16:28

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi gleymdi þér Þröstur Unnar, auðvitað vil ég vera bloggvinur þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 16:29

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er einn af þessum margra manna mökum. Kvitt kvitt.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 16:37

11 identicon

Hæ bara að kíkja á þitt skemmtilega blogg, úr því ég nú einu sinni búin að uppgötva það!

Kys og kram.

Auður

Auður Axelsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 16:44

12 identicon

kom aðeins í heimsókn á síðuna þína, og kem örugglega aftur, líkar vel við fólk sem að rabbar um daginn og veginn, það er svo þægilegt að fleiri hugsa svipað og ég.

HeidurH (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 16:47

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er stórmerkilegur dagur, þú ert fyrsta manneskjan sem ég kommenta hjá í nýju tölvunni minni. Haltu áfram að vera eins og þú hefur verið hress og skemmtileg og skrifaðu um allt sem þér dettur í hug, hinir ráða svo hvort þeir nenna að lesa.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.4.2007 kl. 16:49

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hér er allt löðrandi í endurtekningum! Mogginn bara alltaf að segja sömu hlutina

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 16:52

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Frábært!!!!Til hamingju..eins og það þurfti að reka á eftir þér að byrja að blogga kerling.

En þú hefur örugglega valið tímann vel og safnað upp kraftinum því það fyrirfinnast varla öflugri bloggarar en þú.

Smjúts

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 17:00

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elsku Katrín vinkona mín og það er þér að þakka að ég byrjaði að blogga og um leið að skrifa (þú veist) á ný.  Lofjú

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 17:24

17 Smámynd: Jens Guð

Ég gerði heiðarlega tilraun til að verða gestur númer 30.000.  En var aðeins of seinn.  88 voru fyrri til.

Ég veit ekki hvernig mælingin á heimsóknir gengur fyrir sig.  Ég giska á að hvert IP númer telji einu sinni á dag þó viðkomandi kíki á síðuna oftar en einu sinni.  En sama svo sem hvernig þetta er.  30.000 heimsóknir er glæsileg traffík burt séð frá því hvort í þeirri tölu eru einhverjir sem kíkja oftar en einu sinni á síðuna.  Það er einfaldlega meðmæli með síðunni þegar fólk hefur áhuga á að kíkja aftur í heimsókn.   

Jens Guð, 22.4.2007 kl. 17:31

18 Smámynd: Ester Júlía

Í guðanna bænum Jenný - ekki verða grafalvarleg.  Ástæða þess að fólk les bloggið þitt er auðvitað af því að þú ert þú sjálf.. einlæg og heiðarleg.   Og svu auðvitað bráðskemmtileg!!

Ester Júlía, 22.4.2007 kl. 17:38

19 Smámynd: Ragnheiður

30103!

Þú ert jafmskemmtileg hérna og bloggi og í raunveruleikanum,ekki breyta neinu. Í versta falli færðu bara yfir þig nafnlausar skammadembur eins og ég gerði í gær. Það er nóg til af heilögum kúm og við þurfum ekki að breytast í svoleiðis..

Ragnheiður , 22.4.2007 kl. 17:40

20 Smámynd: Ragnheiður

Ég er EKKI bleslind, þetta er prentvilla !

Ragnheiður , 22.4.2007 kl. 17:57

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég fer eiginlega oftar en einu sinni inn á bloggsíðuna þína Jenný mín sko !!  Það er bara svo notalegt að koma hingað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2007 kl. 18:55

22 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með allan þennan fjölda og góða reyndu nú að fara að verða alvarleg!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2007 kl. 19:23

23 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sjittttt, ég var númer 30.205! Flott að fá svona margar heimsóknir! Ég hrapa hratt niður vinsældalistann núna ... þarf að setja inn nekt eða eitthvað til að ná þér! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.4.2007 kl. 19:32

24 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ég var líka 30205 :-) Það er alltaf gaman að koma í heimsókn og fá heimsókn frá þér kæra bloggvinkona :-)

Kristján Kristjánsson, 22.4.2007 kl. 19:39

25 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Ég var hér ,og ekki í fyrsta sinn.kv.

Helga R. Einarsdóttir, 22.4.2007 kl. 20:10

26 Smámynd: Baldvin Jónsson

Úff, ég er númer 666 í dag (kaldur hrollur niður hrygginn)

Það er eins gott að Guð er með manni, eða eins og sá lesblindi sagði (eða sá bleslindi eins og sagði hér að ofan) : "There is a Dog"

Baldvin Jónsson, 22.4.2007 kl. 21:18

27 Smámynd: Baldvin Jónsson

Úff, ég er númer 666 í dag (kaldur hrollur niður hrygginn)

Það er eins gott að Guð er með manni, eða eins og sá lesblindi sagði (eða sá bleslindi eins og sagði hér að ofan) : "There is a Dog"

Baldvin Jónsson, 22.4.2007 kl. 21:19

28 Smámynd: Björn Heiðdal

Ég verð að kíkja oftar í heimsókn svo þú fáir fleiri heimsóknir.

Björn Heiðdal, 22.4.2007 kl. 21:57

29 Smámynd: Hlynur Hallsson

Til hamingju kæra bloggvinkona og til hamingju með 30.000-ustu heimsóknina! Ég rétt missti af heiðrinum og er númer rúmlega 30.325 !) Bestu baráttukveðjur,

Hlynur Hallsson, 22.4.2007 kl. 22:01

30 Smámynd: Anna Lilja

Til hamingju, skemmtilegir eru ávallt vinsælir

Númer 30 til að kommenta

Anna Lilja, 22.4.2007 kl. 22:26

31 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Til hamingju með þetta, alltaf gaman að lesa bloggið þitt

Björg K. Sigurðardóttir, 22.4.2007 kl. 22:30

32 Smámynd: Anna Lilja

Til hamingju, skemmtilegir eru ávallt vinsælir

Númer 30 til að kommenta

Anna Lilja, 22.4.2007 kl. 22:31

33 Smámynd: Anna Lilja

Til hamingju, skemmtilegir eru ávallt vinsælir

Númer 30 til að kommenta

Anna Lilja, 22.4.2007 kl. 22:31

34 Smámynd: Dagmar

Takk fyrir mig, mjög skemmtilegt blogg

Dagmar, 22.4.2007 kl. 22:52

35 Smámynd: Ibba Sig.

Voru verðlaun fyrir að vera númer 30.000?

Ibba Sig., 22.4.2007 kl. 22:56

36 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Nýjustu tölur eru: 30.397 og ef mér er bætt við, 30.398.

Benedikt Halldórsson, 22.4.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985757

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband