Leita í fréttum mbl.is

HILLARY MEGABABE!

22

Hillary Clinton er töffari sem ég myndi vilja sjá sem næsta forseta Bandaríkjanna.  Hún er eldklár kona með mikla reynslu að baki og svo hefur hún húmor fyrir sjálfri sér sem margir karlar í póltík mættu taka til fyrirmyndar.  Nú segir Hillary að hún muni gera eiginmann sinn að farandsendiherra og að hún geti ekki hugsað sér betri leið til að bæta ímynd Bandaríkjanna.  Hún segir að húsbandið Bill Clinton sé besta klappstýra sem hún geti hugsað sér fyrir USA.  Ég skil hana.  Heimurinn er ekki beinlínis ástfanginn af Bandaríkjunum vegna stríðsbröltsins í Írak og almennrar stórslysastefnu Bush forseta.

Áfram kona!

36


mbl.is Vill nýta vinsældir Clintons til að bæta ímynd Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Eggertsson

Hefði karlmaður skrifað þetta: "Hillary megababe", hefði hann verið dæmdur karlremba. Hvað kallast kona sem skrifar svona? Annars er ég hrifinn af Hillary sem stjórnmálakonu... en það er kannski ekki nóg?

Viðar Eggertsson, 22.4.2007 kl. 03:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sæll Viðar. Ekki veit ég hvort ég hefði kallað mann karlrembu sem hafði kallað Hillary þetta. Takk fyrir innlitið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 04:38

3 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Hillary sem næsta forseta Bandaríkjanna..ekki spurning

Brynja Hjaltadóttir, 22.4.2007 kl. 10:56

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með ykkur það er komin tími á konu í forsetastól BNA.  Og þó fyrr hefði verið.  Bill er góður í Péerrið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2007 kl. 11:19

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst hún æðisleg vonandi verður hún næsti forseti í USA.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.4.2007 kl. 11:35

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega og svo er hún svo kallað megababe bæði til orðs og æðis krakkar mínir

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 12:18

7 Smámynd: halkatla

ég er reyndar í óformleg bloggfríi þessa dagana - bara útaf því að ég er svo löt og komin með nóg af póilitík og fréttum, en humm, ég verð bara að tjá mig smá um Hillary. Hún er ábyggilega mun skárri en kallarnir sem eru í boði. Hún er alveg gella

Reyndar hef ég líka heyrt að hún og Bill sé involverð í samsæri og slíkt með Bush feðgunum og CIA, en ég neita að sjálfsögðu að trúa því. Þau eru svo krúttleg hjón, alvör sjarmatröll.

halkatla, 22.4.2007 kl. 12:36

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er að hlusta á Sóleyju í Silfrinu, ekki finnst mér varið í hennar málflutning. Hún er ekki málefnaleg.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.4.2007 kl. 13:00

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi sé ekki silfrið fyrr en á netinu.  Sóley er töffari hún hlýtur að vera að standa sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 13:11

10 Smámynd: Viðar Eggertsson

væri þá ekki betra að hún væri megabeib? Vona þá að hún hafi veið sexy og tælandi... hvernig skóm var hún í? Stjórnmálakonur verða sko að VERÐA sko að vera megabeib. Mér finnst Jóhanna Sig ekki vera megabeib, það háir henni sko sem stjórnmálakonu... er það ekki ?

Viðar Eggertsson, 23.4.2007 kl. 00:09

11 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Jesús minn hvað ég vildi óska að fólk væri ekki að pæla í útlitinu á stjórnmálamönnum.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.4.2007 kl. 07:15

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Viðar: Jóhanna er megabeib. Óþarfa hártoganir þetta. 

Gerður: Ég er ekki að tala um útlit í þessu sambandi. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2007 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband