Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

ÁFENG SULTA

1

Hún amma mín, sem ég ólst upp hjá, var hörku sultugerðarkona.  Hún bjó til rabarbarasultur og stundum líka rifs- og sólberja.  Hún gerði líka saft, ef einhver skyldi nú hafa áhuga á því. 

Til að gera langa sögu stutta, þá hljóp einhver ári í eina krukkuna, sennilega hefur hún ekki verið nógu vel lokuð eða eitthvað.  Sultan var sterk á bragðið en ákaflega ljúffeng.  Ég smurði henni á brauð en það gerðum við í denn.  Mér líkaði þetta svo vel að ég fékk mér aftur og aftur.  Áður en hægt var að segja "hættuaðborðaþettabarnsultufjandinneráfengur" var ég orðin vel hífuð (bráðung) og var á þessu stigi máls komin með skeið í sultuna og hætt að skeyta um brauðið.

Ég kastaði síðan upp og svaf í hálfan sólarhring.

Þetta var mitt fyrsta fyllerí.

Ef grannt er skoðað borðaði ég sultuna mjög alkahólískt.  Þarna hefðu átt að kvikna viðvörunarbjöllur, þe ef einhver hefði haft hugmynd um hugtakið alkahólismi.

Sennilega hefði áfenga sultan hennar ömmu unnið allar sultukeppnir.

I´m all jam!

Úje


mbl.is Leitin að bestu sultunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVEFNSNÚRA

 

1a

Þó ekki megi lesa það af færslunum mínum í dag, þá hefur þessi dagur verið hund erfiður.  Allt hefur vaxið mér í augum, ég hef drattast áfram og átt alveg svakalega bágt.  Sumir dagar eru svona og stundum koma þeir í kippum.  Þ.e. einn eða fleiri saman í röð.  Dagurinn í gær og í dag eru kippudagar.  Ferlega erfiðir og ekkert eins og það á að vera, þó ég hafi ekki nokkurn skapaðan, guðsvolaðan hlut að benda á mér til varnar.

Að vakna með tilfinninguna um að allt sé ómögulegt er eitthvað sem ég almennt, er ekki í stemmara fyrir. Stundum hlýt ég þó að hafa þörf fyrir að eiga hörmulega bágt, því annars myndi ég sennilega reka blámann á brott.  Það hlýtur að vera alkinn og þá auðvitað dramadrottningin í mér sem þarf að fá útrás. 

Einu skiptin, í dag,  sem ég var ekki umhverfi mínu hálf hættuleg, var þegar ég settist niður og bloggaði.

Eftir kvöldmat hristi ég af mér slenið.  Hringdi í trúnaðarkonuna og las AA-fræðin.  Ég fer ekki á fundi þessa dagana, svimandi af blóðleysi, langar ekki til að hníga að fótum fundarfélaga minna, þrátt fyrir að það sé ákaflega myndrænt og fallegt, ef ég get gert það almennilega.

Eftir AA-fræði og sollis, var ég farin að skammast mín töluvert yfir vælinu og eymdinni í sjálfri mér og lífsgleðin kom smátt og smátt til baka.  Þegar ég svo var búin að hlusta á nokkra góða með Stones, var ég farin að brosa í gegnum tárin (okok ég var ekki með tárvot augu, má maður).

Ég er svo innilega glöð með að vera edrú og sigli hraðbyri inn í árs edrúmennsku.

Haldiðiaðþaðsé?

Úje

 


ANGIE FYRIR SVEFNINN

Var að hlusta á gamla klassíkera með Stones og er með fimmfalda gæsahúð.  Datt í hug að deila með mér.  Gjörsvovel.

http://www.youtube.com/watch?v=bbZcslc9M78


RADDBANDAÖRYRKINN ÉG

3

Ég er fæddur öryrki.  Þ.e. raddbandaöryrki.  Frá unga aldri hef ég haft ráman undirtón í röddinni, sem hefur ágerst eftir að ég "fullorðnaðist" og reykti mér til vansa.  Núna er ég með meðal karlmannsrödd.  Okokok, smá ýkjur.  Mín rödd er reyndar eins og hunang miðað við röddina í Hilmu systur.  Ég hef aldrei heyrt ungabarn segja agú með viskírödd, fyrr en hún kom í heiminn.  Hvorki fyrr né síðar.

En aftur að fötluninni.  Mig langar í kór.  Ekki vera með aulafyndni og segja mér að ég sé í femínistakórnum.  Mig langar í alvöru kór.  Það þarf ekki einu sinni að vera kvennakór, hann má alveg vera blandaður.  Ég er game.  Ég syng mjög vel í huganum en á svolítið erfitt með að skila því til áheyrenda, en það brestur alltaf á fjöldaflótti þegar ég hef upp raust.  Nema Jenny Una Eriksdóttir,er alltaf "kurr"  hún glottir smá, þegar ég syng fyrir hana og segir sífellt: Amma, meira.  Nú þekki ég fullt af fólki í kórum, víðsvegar, og ég veit að þetta er ofsalega skemmtilegur félagsskapur.  Allir saman, hlægjandi, vitandi að þeir geta sungið og svona.  Einhver listrænn skilningur og samkennd í gangi þar sem mér finnst eftirsóknarverð.

Því er spurningin þessi:

Heyrist eitthvað í einni röddu sem er úr takt, ef hún er í stórum hópi syngjandi fólks?

Old man river!

Úje


ÍSLENSKA KJÁNAHROLLSVEITAN EHF

1

Á hverju ári kemur einhver snillingurinn fram með "tibute" til þekktra útlenda söngvara og/eða hljómsveita.  Þarna er meðalmennskan lofsömuð með örfáum undantekningum þó, svo ég gæti nú sanngirni. 

Í fljótu bragði minnist ég nýlegrar sýningar um Tinu Turner og Queen.  Hvorutveggja sá ég aðeins í sjónvarpi og takk fyrir mig.  Mér var ekki skemmt án þess að ég fari lengra út í þá sálma.  Kona sem ég þekki slysaðist inn á Tinu Turner sýninguna, með vinnustaðahóp og sagði mér að hún hafi verið komin langleiðina undir borðið, undir skemmtilegheitunum.  Þetta er kona sem er ekki neitt sérstaklega andstyggilega þenkjandi. 

Nú á að taka Presley "tribute".  Kannski er það flott.  Ég myndi alveg vilja hlusta á Bjarna Ara taka Presley, en maðurinn syngur Presley betur en Presley sjálfur, fjárinn hafi það.

Ég ætla að sitja heima. 

Love me tender!

Úje


BRILLJANT HUGMYND

1

Ég er ekki hrifin af París Hilton, né heldur því sem hún stendur fyrir, en hún má alveg vera eins og hún er í friði fyrir mér.  París og systir hennar vilja 500 þúsund dali fyrir að mæta í veislur á gamlaárskvöld.  Sniðug hugmynd.  Ætli þær séu fjárvana?

Ég þekki til fólks, og hef gert í gegnum tíðina. sem rekst illa í veislum. Það eru kallaðar gleðifælur í minni fjölskyldu. Þessar krúttsprengjur skandalisera með víni, rífa kjaft, móðga, æla á stofugólfið og verða verulega illskeyttar.  Er ekki þjóðráð fyrir íslenska veisluhaldara að koma sér upp sameiginlegri verðskrá fyrir vandræðagemlingana og borga þeim fyrir að halda sig heima?  Þekkja ekki allir svona gleðimorðingja?  Alveg er ég viss um að veislurnar verða mun menningarlegri ef hægt er að losan við  þennan illviðráðanlega fylgifisk.

I am a genius, yes I am, yes I am.

Úje


mbl.is Hilton systur vilja 500 þúsund dali fyrir að mæta í teiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í DAG HEF ÉG..

1

..hringt út um allar trissur og útréttað til hægri og vinstri.  Ég hef líka búið um mig, farið í sturtu, burstað tennur, neh róleg bara, ætla ekki að fara út í smáatriði og skemmta þar með skrattanum.

..farið til læknis sem sagði mér að hætta að reykja (hvaða læknir gerir það ekki?), borða heilsusamlega (sem ég núþegar geri) og hreyfa mig.  Það gerir ég reyndar ötullega, þið ættuð að sjá taktana, þar sem ég sit fyrir framan tölvuna.  Alveg stöðugt á hreyfingu.  Fyrir þessar ráðleggingar, borgaði ég eitthvað af fjármunum.  Alesatt.

..reynt að troða mér inn hjá sérfræðingi nokkrum, sko fyrir jólin en komst að því að sérfræðingar og Jesú eiga það sameiginlegt að það er nánast vonlaust að fá hjá þeim deit.

..arkað í búð og keypt döðlur.  Það er alltaf verið að predika yfir manni um gæði lífrænt ræktaðs fæðis og ég keypti þekkt merki úr þeim geira.  Þegar heim var komið, þurfti ég næstum stækkunargler til að geta virt fyrir mér döðlukvikindin, þær voru agnarsmáar, krumpaðar og ljótar. Ég henti þeim.

Ég ætla að leggja mig.  Vaknaði svo snemma vegna læknisheimsóknarinnar.  Ég er ein af þeim sem klæði mig til heilsu.  Í dag varð það svarta Jackie Onassis dragtin, svartar sokkabuxur og svartir skór.  Var að hugsa um að skella mér í jarðaför á heimleiðinni, bara af því ég var klædd í það, en hætti við.  Fór heim og bloggaði fyrir ykkur aularnir ykkar.

Ég er farin að halla mér í hálftíma eða svo.

Woman is the nigger of the world

Újejeje


DANIRNIR ALLTAF SVO ÓÞEKKIR

Það kemur mér ekki á óvart að Danirnir hunsi reykingabanni á veitingahúsum, sem reyndar gekk í gildi á miðnætti. 

Dönum hefur alltaf verið uppsigað við reglur að ofan.  Ég á erfitt að sjá fyrir mér að reykingabannið verði virt á pöbbunum, t.d. í Köben.  Reyndar er lyktin á hverfispöbbunum í borginni ekkert sérstaklega góð.  Þar er súr brennivíns- og tóbakslykt, sem er ekki alveg að gera sig hjá mér.  Svona lykt sem minnir á langvarandi partý, þar sem allir hafa drukkið þar til þeir gátu ekki meir, reykt á sig óþrif og sofnað síðan hist og her.  Semsagt, þefur dauðans.  Það mætti alveg koma einhverjum böndum yfir reykgleðina hjá þessum frændum okkar, en að sjálfsögðu að hafa mannréttindin í heiðri, sem er meira en hægt er að fara fram á, búi maður á Íslandi á dögum Þorgríms Þráinssonar og því sem hann er samnefnari fyrir.

Það er til eitthvað sem heitir hinn gullni meðalvegur.  Ég er að leita að honum.

Það mættu tóbaksvarnarnefndir heimsins líka gera.

Cry me a river!

Úje


mbl.is Reykingabann hunsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVONA HUGMYND MYNDI SETJA U.S.A. Á HÖFUÐIÐ

1

Bæjarstjórinn í Varallo Sesia, sem er bær á N-Ítalíu ætlar að borga fólki fyrir að grennast.  Sniðug hugmynd en fólk þarf að missa minnst 3 kg. á mánuði til að fá greitt.  Hm.. en hvernig ætli þetta myndi ganga ef USA tækju upp á þessu til að minnka offituvandann sem er ekki lítill þar í landi?  Nú er þetta einn af alvarlegri s.k. velmegunarsjúkdómum og ekki vitlaust að hvetja fólk með þessum hætti.  En mikið rosalega fjármuni myndi það kosta.  Mér er sagt að þar sé ekki óalgengt að sjá fleiri fermeta víðáttur aftan á einni manneskju.

Vildi að ég gæti sagt að þetta hefði hjálpað mér á megrunarárunum. En hjá mér var megrun listgrein, lengi vel.  Engar greiðslur hefðu þurft að koma til í mínu tilfelli þar sem ég var ánetjuð allri mögulegri vanlíðan og þar á meðal var innifalinn tómur magi og meinlætalifnaður, af og til.

Íslendingar eru lean and mean og þurfa ekkert á þessu að halda.

Úje

P.s. Enn eitt fréttabloggið.  Hvar endar þetta?  Ætli ég fari ekki á endanum upp í 1. sætið þrátt fyrir að það sé mér algjörlega á móti skapi?


mbl.is Fá greiðslur fyrir að megra sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÖLVAÐUR HROKAGIKKURINN

 

Ég legst hér með á hnén og bið til allra Guða í alheiminum, að Giuliani endi ekki sem forseti Bandaríkjanna.  Maðurinn fær Georg W. Bush til að hljóma eins og friðardúfu. 

Giuliani telur það ekki þjóna hagsmunum Bandaríkjanna, að stofnað verði sjálfstætt Palestínuríki, sem þá "styðji við bakið á hryðjuverkamönnum."

Halló, Hr. Paranoja!  Heimurinn snýst ekki bara í kringum hagsmuni Bandaríkjanna.

"Þetta kemur fram í grein sem Giuliani skrifar í tímaritið Foreign Affairs. Þar segir hann ennfremur að of mikil áhersla hafi verið lögð á friðarumleitanir Ísraela og Palestínumanna, sem hann segir að fari í sífellda hringi."

Alltof mikil orka sem eytt er í friðarumleitanir.

Get a lvie, geta a grip.

Úhúje

P.s Þetta er fréttablogg, alveg ferlega ódýrt af mér ég veitða.


mbl.is Giuliani kveðst mótfallinn stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2988567

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.