Leita í fréttum mbl.is

ÁFENG SULTA

1

Hún amma mín, sem ég ólst upp hjá, var hörku sultugerðarkona.  Hún bjó til rabarbarasultur og stundum líka rifs- og sólberja.  Hún gerði líka saft, ef einhver skyldi nú hafa áhuga á því. 

Til að gera langa sögu stutta, þá hljóp einhver ári í eina krukkuna, sennilega hefur hún ekki verið nógu vel lokuð eða eitthvað.  Sultan var sterk á bragðið en ákaflega ljúffeng.  Ég smurði henni á brauð en það gerðum við í denn.  Mér líkaði þetta svo vel að ég fékk mér aftur og aftur.  Áður en hægt var að segja "hættuaðborðaþettabarnsultufjandinneráfengur" var ég orðin vel hífuð (bráðung) og var á þessu stigi máls komin með skeið í sultuna og hætt að skeyta um brauðið.

Ég kastaði síðan upp og svaf í hálfan sólarhring.

Þetta var mitt fyrsta fyllerí.

Ef grannt er skoðað borðaði ég sultuna mjög alkahólískt.  Þarna hefðu átt að kvikna viðvörunarbjöllur, þe ef einhver hefði haft hugmynd um hugtakið alkahólismi.

Sennilega hefði áfenga sultan hennar ömmu unnið allar sultukeppnir.

I´m all jam!

Úje


mbl.is Leitin að bestu sultunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, það hljóp oft aukakraftur í gamlar sultur.  En góðar voru þær.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 10:23

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, þetta hefur verið góð sulta!! Ávanabindandi í þokkabót. Er það ekki alltaf svo að allt það besta sé í raun manni verst? Skemmtileg frásögn. Knús

Bjarndís Helena Mitchell, 16.8.2007 kl. 10:25

3 Smámynd: Ester Júlía

Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt .... Yndislegar sögur.  Helv. hefur sultuskömmin verið góð .

Ester Júlía, 16.8.2007 kl. 10:28

4 identicon

thíhíhí  má mar fá ?? 

Ég verð nú samt að segja það Jenný, ég á voðalega bágt með að sjá þig fyrir mér með höndina á kaf í sultukrukku

Guðrún B. (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 10:41

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skemmtileg sagan þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.8.2007 kl. 11:08

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ahahaahah.... þú ert óborganleg...... skelfing hefur sultuskömmin smakkast vel...... mmm mar fær bara vatn í munninn...

Fanney Björg Karlsdóttir, 16.8.2007 kl. 11:39

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Snemma beygist krókurinn segi ég nú bara......gott að það var ekki áfengt smjörið sem maður borðaði beint uppúr dollunni í den með skeið. Fannst ekkert betra en hafði þó betri smekk en stelpan á neðri hæðinni sem þambaði lýsið beint af stút. Svona hálfa flösku í einu.

Annars langar mig að misnota hryllilega aðstöðu mína hér og fá lánaða þína bloggvini til að kjósa mína bloggvini... Mínir bloggvinir hafa skrifað frábærar sögur og ljóð í sögu og ljóðakeppni bloggara á síðunni minni og nú stendur kosning sem hæst og mér finnst bara að þau eigi skilið að sem flestir lesi verkin þeirra og gefi þeim atkvæði. Kosningar eru ekkert spennandi nema margir taka þátt skiluru??? Lofa að gera þetta ekki aftur fyrr en í næstu keppni sem haldin verður..ok? Viltu sultu?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 11:39

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Það er ekki oft sem maður situr aleinn og skellihlær við lesturinn!  Ég man líka eftir svona úps-sultu en aldrei að einhver hafi hakkað hana í sig. Þú ert aldeilis frábær.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.8.2007 kl. 12:15

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær frásögn Jenný mín.  Þú ert gangandi lærdómsbók í fræðum AA, og ég er viss um að þú opnar miklu fleiri dyr en þú ímyndar þér með snúrubloggið þitt.  Þú gefur svo sannarlega mikið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.8.2007 kl. 12:36

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk stelpur.  Beta mín við segjum sulta og skellum saman sódavatnsflöskunum. 

Stelpur, takið þátt hjá henni Katrínu, það er ekki leiðinlegt að fá að taka þátt í listrænum gjörningum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 13:14

11 identicon

Hahahaha!!!  Get alveg séð þetta fyrir mér, eins og sena í góðri gamanmynd

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 19:44

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna mín; líf mitt er brandari

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985891

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband