Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Ég asnaðist í búð..pirrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

 

p..og lenti þar í uppákomum eins og mér einni er lagið.  Mig vantaði slopp, hlýjan slopp, því ég eins og flestir aðrir eru að drepast úr kulda.  Ég rakst á þessa fínu svörtu þykku sloppa á borði í versluninni.  Sumir höfðu verið teknir úr kössum og svona, og ég leitaði að kassa merktum M.  Fann engan í kassa bara einn í lausagöngu merktan medium.

Ég: Er þessi sýniseintak og þarf hann að vera í kassa?

Kona: Nei, nei, fólk opnar bara kassana og skoðar og svo týnast kassarnir.

Ég: Það er þá öruggt að hálf Reykjavík er ekki búin að vera að máta þennan medíum slopp?

Hún: Ég get svarið það (hún sagði það nákvæmlega svona).

Ókei, ég tók sloppfjandann, ásamt einhverju öðru fatakyns og skellti í körfu og hóf svo að versla í matinn.

Kjúklingur hér, lambakjöt þar, ó sei, sei já, og ávexti, eitthvað af grænmeti, ég er nú hrædd um það, og ostar, einn danskur þar á meðal, ekki spurning og fleira sniðugt.  Karfa orðin kjaftfull þegar ég renni mér að kassa.

Afgreiðslustúlka (íslensk í báðar og í vondu skapi): Hvað marga poka?

Ég: Hvernig á ég að vitað það fyrirfram?  Bara nokkra.

Hún: Þrjá eða fjóra?

Ég: Já, já en get ég fengið fleiri ef þeir nægja ekki.

Ekkert svar. Pokar eru  nær óyfirstíganlegt vandamál í Hagkaupum.

Kona byrjar að skanna matvörur, hviss og bang, húsband týnir og raðar í poka.  Gæti ég fengið tvo í viðbót, spyr hann kurteislega (vel upp alinn)?

Kona: Ertu viss um að það sé nóg?

Ég: Villtu gjöra svo vel að rétta manninum pokana og klára dæmið.

Hún: Heldur áfram að skanna og það er komið að sloppi.  Heyrðu ekkert strikamerki hérna, það á að vera strikamerki og hún segir það við mig eins og ég sé yfir strikamerkjadeild verslunarinnar.

Ég (orðin illa pirruð) Þá er að fara og gá að viðkomandi strikamerki, ég passa pokana fyrir þig á meðan (ég brosi djöfullegu og blíðlegu brosi, eitruð blanda)

Hún. Það er best að þú gerir það þetta er þinn sloppur

Ég: Ertu að gefa mér sloppin, ég ef ekki borgað krónu fyrir hann.  Ég er ekki á launum hér þannig að ég held að það sé þín deild að útvega helvítis strikamerkið (þarna var ég farin að garga). Vinkona mín reif slopphelvítið með sér, var dágóða stund í burtu kom með sloppinn  til baka og hvæsti á mig: Þeir eiga að vera í kassa og svo tekur þú þann eina sem ekki er það.

Ég: Mikið skelfing þakka ég þér vel fyrir afgreiðsluna, ég verð endilega að benda honum Jóhannesi frænda á þig, varðandi pokadeildina.  Þú yrðir fín þar sko.

Lærdómur.

Maður er vondur við fólk þegar maður verslar pirraður á föstudögum.  Ég er með móral.  Konan á skítalaunum og ég hefði átt að vera góð við hana.

Fyrirgefðu honní, ég knúsa þig næst.

En ég er kominn í sloppinn, og mér er hlýtt og mér líður vel þannig, en ég er með djöfuls móral út af stelpunni á kassanum.  Arg.   Ég er vond kona.

Lallalalalallalala


Litir, merkilegt fyrirbrigði

 

Ég var að spá í litum, og aldrei þessu vant, ekki í sambandi við föt, heldur mat.

Ég sat hér með sjálfri mér og var að hugsa um hvað margt er fyrirsjáanlegt í lífinu, nærri því óubreytanlegt og í beinu sambandi af því fór ég að hugsa um að ég og fleiri væru þrælar vanans.

Ekki skrýtið þó maður pæli í litum á degi Valentínusar þegar allt er rautt, rautt og rautt.

Hvernig litist ykkur á að fá í sunnudagsmatinn eftirfarandi mat:

Himinbláan hrygg með rauðum doppum.

Eiturgrænar kartöflur

Bleikar baunir

og kolsvarta kornstöngla...

sósan væri dökkgrá eins og skipamálning.

Í alvöru, hefðuð þið lyst?

Eða ljósbleikt kók, gult súkkulaði og fjólubláan lakkrís.

Ég myndi hætta að borða.

Hvað segja bændur, hefur hefðbundinn litur á því sem við látum ofan í okkur eitthvað að segja?

Langar að vita.

Komasho

Gjarnan fleiri hugmyndir af ógeðsmat vel þegnar...

Úje


Vondi og asnalegi dagur

 Hefði með réttu átt að vera flottur dagur í mínu lífi, ný sjálfrennireið keypt til heimilisins, eitt og annað borgað, ég byrjuð að undirbúa allskyns framkvæmdir í mínu eigins eldhúsi og þá hviss bang.

Ömurlegur dagur tróð sér inn í líf mitt gjörsamlega óforvarandis. Róleg enginn veikur.

Ónýtur var hann,  fyrir mér að minnsta kosti.  Nei, þið fáið ekki að vita af hverju fyrr en allt er yfirstaðið, seinna sem sé, en takið orð mín fyrir því að hann var í verri kantinum.

Og hvað gerir maður eftir að hafa grenjað úr sér augun, rifist við alla sem maður nær til, gengið um með skeifu (þetta hljómar eins og sjálfsháð en mér er dauðans alvara).  Jú maður sast einhversstaðar með sjálfum sér og starir út í loftið.

Svo var loftið orðið þreytandi og þá fór ég að fletta Fréttablaðinu frá því í gær og í því stóð eiginlega bara :"Axla ábyrgð" og svo var eitthvað að smáorðum með til uppfyllingar. Nú í leiðindum mínum og sálarkvölum fór ég að telja öxluðu ábyrgðirnar og lausleg talning sýndi 45 stykki.

Ég komst að því að ég er með illvígt ofnæmi fyrir þessum frasa.

Tillögur að nýjum ábyrgðum án axla óskast.

Dæmi:

Ég ösla ábyrgð upp að brjóstvörtum.

Ég veð ábyrgð upp að eyrum.

Ég hoppa hæð mína í ábyrgð.

Ég legg æru mína að veði fyrir ábyrgð nei gleymum þessum.

Ég aulýsi sem sagt eftir tillögum.

Svo megið þið senda mér fallegar kveðjur, ef þið nennið. 

Getur aldrei skaðað.

Lovejúgæs


Lesbíur geta auðvitað ekki átt gæludýr

Samt sektaði sænskur áfrýjunardómstóll í Svíþjóð konu, sem neitað hafði að selja lesbíu hvolp, sagði hana seka um mismunun og sektaði kerlingarskömmina um ca. 200.000 þús. krónur.

Mér hefði fundist réttlátt að sekta kerlu gott betur fyrir heimsku og fordóma, milla hefði verið fín.

Kerlingin hafði heyrt að klæðskiptingar væru vondir við dýr.

Ég gæti sagt henni sögur af fólki í blokkum sem er algjörir dýrahatarar og það er slatti af Dönum líka sem er uppsigað við ketti og hunda. Eitthvað af Finnum líka.

En núna geta þessar lespíur látið eiga sig að vera að falast eftir hundum og köttum.

Í þeirra röðum gætu leynst dýrahatarar.

Sko ef þú getur ekki rökrætt við fólk þá er eina leiðin að verða aðeins vitlausari en það.  Það fær það stundum til að hlusta.

Ekki að ég ætli að fara að tala við kerlingarófétið í Svíþjóð.  Hún gæti verið hommi, hvað veit ég?

Ég er svo streit að ég er farin að lúlla.

Ója

Vóff


mbl.is Sektuð fyrir að neita að selja lesbíu hvolp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heitir það nauðgun?

Árið var 1964, fallegt sumarkvöld í vesturbænum.  Tvær vinkonur, á 13. ári, gengu brosmildar niður götuna sína, á leið í barnapössun, hjá ungri konu, sem stundum bað þær um að gæta drengsins síns.  Það var svo fullorðinslegt að fá að vera einar að kvöldi til að heiman, og þeim leið eins og þær sigldu hraðbyri inn í unglingsárin. Þær voru áþekkar þessar stelpur, nema önnur var ljós en hin dökk.  Nærri því jafn stórar, eða smáar, allt eftir því hvernig á það er litið.

Þegar þær komu á áfangastað var mamman farin, yngri bróðir hennar var inni í herberginu sínu með tveimur vinum sínum og þeir voru að spila Rolling Stones.  Það var leyndarmál, en þær voru báðar laumuskotnar í einum af strákunum,þessum sem kallaði sig Hannes, þeim fannst hann allavega spennandi og nærri fullorðinn, hann var 15 ára.  Sá litli var sofnaður og þær settust inn í stofuna og biðu eftir að strákarnir færu út.

Þeir komu og buðu þeim upp á kók en voru allir skrýtnir í augunum og það var vond lykt af þeim. Já takk sagði sú dökkhærða, af því hún var hálf hrædd við þessa stráka sem hún þekkti samt svo vel.

Hana, sagði einn, súptu á.  Hún ætlaði að kasta upp, það var brennivín í kókinu.  Sú ljóshærða prufaði líka og stökk fram á klósett til að æla.

Það gerðist snögglega.  Sú dökka var tekin af þremur stórum strákum, þeir rifu niður um hana og Hannes sem hún hafði verið soldið skotin í fór á milli fóta hennar með alla höndina og djöflaðist þar og á meðan hlógu þeir allir og sögðu ógeðslega hluti. Hún var viss um að hann væri að rífa hana og slíta að innan.

Hún var svo hrædd.  Ætlaði þessi martröð aldrei að taka enda?  Hún fann svo til.  Hún lokaði augunum og fór aðeins út fyrir sjálfa sig og hlustaði á lagið sem var á spilaranum inni í herberginu. Let´s spend the night together. Aftur og  aftur.

Svo endaði það jafn skjótt og það hafði byrjað.  Þeir fóru.  Hún sá að hún lá í blóðpolli og vinkonan var farin.  Lengi sat hún í horni stofunnar, án þess að hræra legg eða lið, dró fæturnar bara upp og lagði höfuðið á hnjákollana.  Hún var ekki til, í langa stund.  Hún var bara sek, hún hafði verið skotin í honum, það hafði hann auðvitað séð langar leiðir.  Svona henti bara druslur.

Hægt og rólega reis hún á fætur, fór og reyndi að þrífa sig en það blæddi stöðugt.

Hún sat og beið komu mömmunnar, sem borgaði henni.

Pollurinn var sýnilegur á gólfinu og mamman sagði, svona byrjar þetta hjá okkur stelpunum en við erum aldrei undir það búnar.  Það liður mörg ár áður en sú dökka áttaði sig á því að hún var ekki að tala um atburðinn sem átt hafði sér stað.

Vinkonurnar minntust aldrei á þennan atburð einu einasta orði.  Skömmin var jafn mikil hjá báðum.

Í raun lá þessi saga í þagnargildi þangað til mörg,mörg ár voru liðin og þeirri dökku var ljóst að hún var ekki ein um þessa reynslu.

Allan þennan tíma hefur hún fylgst með Hannesi úr fjarlægð.  Ekki til neins svo sem, hún er enn að reyna að átta sig á að eitt sumarkvöld fyrir löngu, framdi hann sálarmorð á smástelpu sem hafði ekkert til unnið annað en að vera á röngum stað á röngum tíma.

Þetta er saga úr lífinu krakkar mínir.


Moggastræk - á kona að hlaupa eða ekki?

 

Það sést undir iljarnar á hverjum bloggaranum á fætur öðrum út af bévítans auglýsingunni margnefndu.  Margir bara farnir. Púmm. Hurðum skell, þung orð látin gossa. Sumir á ný bloggsvæði, aðrir heima í verkfalli, hvað veit ég?

En hvað með mig, ég blogga eins og mófó, ég sem alltaf er svo hrifin af stærkum, mótmælagöngum, réttindabaráttum og afdráttarlausri fyrirlitningu á auglýsingum, eins og sannri vinstri konu sæmir?

Þegar ég sá auglýsingarfjandann fyrst, inni á síðunni minni, fauk nú heldur betur í mig, skrifaði Árna Matt, heimtaði skýringar, prósentur og ég veit ekki hvað og hvað.

Nú ég fékk svar um hæl, með skýringum sem ég er ekkert endilega sátt við, en ég ákvað í beinu framhaldi eftirfarandi.

1. Að ég er vanafastur tækifærissinni, þegar kemur að blogginu (og í öðru samhengi líka, að sjálfsögðu).  Mér finnst þetta vera mitt blogg, þó að Mogginn hafi tekið sér leyfi til að auglýsa á því, án þess að bera það undir mig eigandann.

2. Mér þykir undurvænt um síðuna mína (sem er strangt til tekið ekki mín en so fucking what?) og hef ekki nokkra löngun til að blogga á einhverju öðru bloggsvæði, sem er ekki eins heimilislegt og þetta.

3.  Moggabloggið er notendavænt, og aðgangur að öðrum bloggurum greiður.

4.  Mér þykir vænt um flesta meðbloggara mína, fyrir utan þessa örfáu sem ég hef skömm á og mættu blogga á grænlensku bloggsvæði mín vegna.

5. Svo vona ég að þeir sem stukku, sakni okkar svo skelfilega að þeir komi til baka einn af öðrum.

6. Ég er til í alls konar stræk, önnur en þetta.  T.d. er ég til í að standa úti manndrápsgaddi til hagsbóta fyrir öryrkja og aldraða eða til að sýna fyrirlitningu mína á ákvörðun Villa villta og jafnvel gegn hækkuðu matarverði og reykherberginu í Alþingishúsinu, svo dæmi séu tekin.

Annars verð ég hér í hlýjunni á mínu eðalbloggi, með Nova auglýsingu blikkandi við hliðina á mér,en minn heittelskaði segir mér reglulega að ég sjái það sem ég vilji sjá og heyri það sem ég vilji heyra, þannig að þetta verður no prob.

Áddni, ekki reyna að bæta við auglýsingaörðu inn á síðuna mína, því þá súa ég þig honní.

Tækifærisnefndin í góðum fíling.

Súmíædíæsörvitt!

Úje

P.s. Bara svona ábending.  Ég ber fulla og óskorðaða virðingu fyrir þeim sem stræka, endilega sýnið okkur sem gerum það ekki hið sama.  Manni fer að líða eins og liðhlaupa sem hefur ekki hlaupið af stað með herdeildinni.  Ef það er hernaðarlega mögulegt.

Lovfjúgæs


Davíð ég meina Vilhjálmur hefur talað

Nú vitum við að Vilhjálmur dinglar áfram og að fjölmiðlar eru búnir að vera að gera honum lífið leitt með því að beina athyglinni að því sem er leiðinlegt og honum í óhag.  Formaður Sjálfstæðiflokksins, Davíð, æi ég meina fyrrverandi, vill að Villi verði áfram og þá verður það þannig.  Geir hefur ekki tjáð sig enn.

Við vitum líka að Vilhjálmur er búin að axla ábyrgð.  Hvaða ábyrgð veit ég ekki, en einhverja ábyrgð allavega.

Það er liff í þessu og allir borgarfulltrúarnir voru fjarstaddir, en standa dedd með Villa.

Ég trúi þessu öllu.  Alveg inn að beini, en þið?

Nú getur borgin haldið áfram að vera óstarfhæf og allir geta andað léttar.

Ég er t.a.m. svo róleg að ég er farin að elda bara.

Eitthvað fljótleg svo ég nái fréttunum.

Kannski eru fleiri búnir að axla ábyrgð.

Fló á skinni hvað?

Þetta er sýning ársins.

Úje


700 stykki íslenskra ras- ég meina hálfvita

Af visi.is

"Búið er að læsa vefsvæði sem hýsti hóp sem kallaði sig Félag gegn Pólverjum á Íslandi. Í frétt sem birt var í gær var sagt frá því að um sjöhundruð manns, mikið til ungt fólk, hafi skráð sig í hópinn frá því hann var stofnaður á föstudaginn. Þar var farið niðrandi orðum um Pólverja sem búsettir eru hér á landi. Stofnandi síðunnar sagði þar meðal annars að Íslendingar þyrftu að losna við Pólverja áður en það væri um seinan. Eftir fréttin var birt í gær var vefsvæðið fært og því síðan læst. Refsivert getur verið að halda úti síðu sem þessari svo og að skrifa inn á hana. "

Það er í raun alveg með ólíkindum hversu mikið er af kyþáttahöturum á litla Íslandi.  Á nokkrum dögum eru 700 manneskjur búnar að skrá sig í félagið.  Pólverjar virðast verða fyrir hvað mestu aðkasti, nú um stundir a.m.k.

Ég hef ekki skrifað ófáar færslur um útlendingaandúðina sem fyrirfinnst á landinu, og ég ætla aldrei að hætta því, en ég hætti samt aldrei að verða hissa.  Fyrir mér er kynþáttahræðsla fyrst og fremst þekkingarskortur, fáfræði og hræðsla.

En hvað skyldi hafa verið á stefnuskrá þessa félags sem var stofnað til höfuðs Pólverjum?

Ráðast að þeim, leggja þá í einelti?  Ég spyr mig.

Ég þakka amk. fyrir að svona síður eru bannaðar.

Þið kynþáttahatarar, notið höfuðið til að hugsa með, það gerist ekkert meðan því berjið því stöðugt í veggi.

Súmíbítmíbætmí

Úje

 

 


Amy tók það með glans

Fyrir utan hvað ég er hrifin af röddinni hennar Amy Winehouse, þá snertir hún einhvern streng í mér, svona móðurlegan kannski.  Hún er svo ung og í svo vondum málum.  Kafaldsfíkill, sem hefur virst óstöðvandi í sjálfseyðingunni.  Ég er döpur yfir því.  Og svo hugsa ég, hvers lags þrumu listamaður þessi stelpa verður, fái hún að vaxa og dafna án dóps og áfengis.

Í gær fékk hún fimm Grammy verðlaun, en var að sjálfsögðu ekki viðstödd þar sem hún fékk ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.  Því var reddað á þann máta að hún söng lag með hjálp tækninnar, allt hægt.  Hún var sum sé á verðlaunaafhendingunni, en samt ekki.

Maður getur rétt ímyndað sér hverju þessi stelpa myndi áorka, nái hún að  verða edrú.  Röddin hennar er ótrúleg, það er eins og það séu samankomnar í barka hennar margar af bestu söngkonum heimsins.

Hún er á bænalistanum mínum þessi dúlla.

Svo vonar maður hið besta.

Cry me a river

Ójá


Ekki eru heilindi hátt skrifuð í borgarstjórnarflokki íhaldsins..

..ef rétt reynist að Vilhjálmur Þ.l Vilhjálmsson, njóti stuðnings þeirra.  Þetta segja ég í ljósi þess sem komið hefur fram í fréttum s.l. viku, svo ég fari nú ekki lengra aftur í tímann.

Og enn og aftur spyr ég:

Er Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, Borgarlögmaður í hjáverkum?

Það væri gott að fá svör við því

Jæja, það er sem sagt ekki von á breytingum í borgarpólitíkinni í næstu viku.

Ekki að ég hafi verið að búast við kraftaverkum hérna.

Fruuuuuuuuuuuusssssssssssss

og sveiattann.


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.8.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2988124

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.