Leita í fréttum mbl.is

Vondi og asnalegi dagur

 Hefði með réttu átt að vera flottur dagur í mínu lífi, ný sjálfrennireið keypt til heimilisins, eitt og annað borgað, ég byrjuð að undirbúa allskyns framkvæmdir í mínu eigins eldhúsi og þá hviss bang.

Ömurlegur dagur tróð sér inn í líf mitt gjörsamlega óforvarandis. Róleg enginn veikur.

Ónýtur var hann,  fyrir mér að minnsta kosti.  Nei, þið fáið ekki að vita af hverju fyrr en allt er yfirstaðið, seinna sem sé, en takið orð mín fyrir því að hann var í verri kantinum.

Og hvað gerir maður eftir að hafa grenjað úr sér augun, rifist við alla sem maður nær til, gengið um með skeifu (þetta hljómar eins og sjálfsháð en mér er dauðans alvara).  Jú maður sast einhversstaðar með sjálfum sér og starir út í loftið.

Svo var loftið orðið þreytandi og þá fór ég að fletta Fréttablaðinu frá því í gær og í því stóð eiginlega bara :"Axla ábyrgð" og svo var eitthvað að smáorðum með til uppfyllingar. Nú í leiðindum mínum og sálarkvölum fór ég að telja öxluðu ábyrgðirnar og lausleg talning sýndi 45 stykki.

Ég komst að því að ég er með illvígt ofnæmi fyrir þessum frasa.

Tillögur að nýjum ábyrgðum án axla óskast.

Dæmi:

Ég ösla ábyrgð upp að brjóstvörtum.

Ég veð ábyrgð upp að eyrum.

Ég hoppa hæð mína í ábyrgð.

Ég legg æru mína að veði fyrir ábyrgð nei gleymum þessum.

Ég aulýsi sem sagt eftir tillögum.

Svo megið þið senda mér fallegar kveðjur, ef þið nennið. 

Getur aldrei skaðað.

Lovejúgæs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Auðvitað færðu frábærar kveðjur elsku Jenný, vona bara að úr rætist með það sem er að skemma daginn fyrir þér og vonandi er þetta ekki eitthvað sem ergir þig til frambúðar.  Þú ert búin að takast á við stóra og erfiða hluti svo þú hefur reynslu og hefur staðið þig vel, en til er það sem slær mann út af laginu.  Þú átt endalausar hlýjar hugsanir frá mér mín kæra.   I Wove You 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: Hugarfluga

Fúlt ... hundfúlt!

En má ekki bara nota annan líkamspart í frasann. Eins og t.d. að "hnéskelja" ábyrgð eða "ilja" ábyrgð eða þegar maður er fúll og pirraðar að "rassgata" hana??

Kremjur í klessu. 

Hugarfluga, 13.2.2008 kl. 20:30

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Leiðinlegt að heyra hvernig þér líður....vonandi ekkert að sem ekki er hægt að yfirstíga á einn eða annan hátt...en við bloggvinir erum hér nærri

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 13.2.2008 kl. 20:34

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hoppa hæð sína í Ásbyrgi?

Sendi þér stórt faðmlag

Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 20:47

5 identicon

Ha...ábyrgð...axla...?? er það í tísku? í evrum...nei eyrum... Knús..gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 20:52

6 Smámynd: Ragnheiður

Knús á þig elskan mín.

Ragnheiður , 13.2.2008 kl. 21:03

7 identicon

Sendi risaknús til þín Fallega kona

Brynja www.skordal.bloggar.is (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 21:05

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég sendi þér líka mínar bestu og hlýjustu hugsanir! Ég vona hlutirnir lagist og þú eigir betri dag framundan!

Góða nótt og sofðu rótt

Sunna Dóra Möller, 13.2.2008 kl. 21:06

9 Smámynd: Garún

Svona er þetta stundum...dagurinn minn byrjaði vel en endaði í taugaáfalli yfir engu.....maður er stundum svo f...... glataður...en á morgun er nýr dagur

Garún, 13.2.2008 kl. 21:27

10 Smámynd: Tiger

Jenný mín.. Sendi hér með mjög ábyrgaðarfulla ósk um að þú munir eiga ljúf tímamót er þú verður með milljónafléttingablogg uppá arminn - eða voru það Axlirnar - æi veit ekki - en ég Axla þá ábyrgð að hvetja alla til að ábyrgjast  vera duglegir við að flétta blogginu þínu svo þú verðir alveg milljón - sem þú reyndar getur alveg tekið ábyrgð á eftir sirka 12 tíma eða svo.

Ég er ábyrgur bloggari, tel ég- held ég- minnir mig.

Ég er ábyrgðarfullur - eða kannski bara fullur - ábyrgðar.

Ég neita allri ábyrgð.

Ég hvet ykkur til að axla mína ábyrð.

Ég ábyrgist orðið en neita að axla það.

Ég Axla ábyrgð mína - minnir mig.

Ég man ekki hver ábyrgð mín er svo ég get ekki Axlað hana. 

Þið fáið að ábyrgjast ykkar Axlir áður en ég Axla mína ábyrgð.

Þið Axlið ykkar ábyrgð - á meðan ég kem mér undan minni.

Ég ábyrgist það að ef þið Axlið ykkar ábyrgð mun ég gera slíkt hið sama - ef ég man eftir því...

ATH.. ég tek enga ábyrgð á ofanskrifuðu og óska eftir einhverjum til að Axla þá ábyrgð fyrir mig, laun í samræmi við vilja, samstarfshæfni og laumupokastöndumsamanámótiborgurunhæfni...

Tiger, 13.2.2008 kl. 21:50

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þetta VAR frekar myglaður og andlaus dagur, ég er sammála. Ég er meiraðsegja svo andlaus að ég ætla að rassgata þessa ábyrgð eins og hugarfluga leggur til.

Ég sendi þér samt alveg massa hugheilar yndiskveðjur Eigðu gott kvöld yndæla kona!

Laufey Ólafsdóttir, 13.2.2008 kl. 22:10

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi takk asnarnir ykkar, þið eruð krútt.  Dúa ekki einu hjarta ofaukið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 22:32

13 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Æ Æ

VIltu ekki koma í leik bara?  Kíktu yfir

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 13.2.2008 kl. 22:34

14 Smámynd: Ragnheiður

998062

Ragnheiður , 13.2.2008 kl. 22:41

15 identicon

Ertu nú einu sinni enn orðin eðlileg? - Til hamingju með þig - elska eðlilegheitin þín líka - knús að norðan

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 22:58

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Risastórt knús, elskan!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 13.2.2008 kl. 23:31

17 Smámynd: Berglind Inga

Knús     p.s. 998280...  

Berglind Inga, 13.2.2008 kl. 23:40

18 identicon

PS: SKyldir þú ekki alveg konuna að norðan? Bara að spá. Mér finnst nefnilega við þurfa að minna okkur á það reglulega að við erum mannleg og rífumst og verðum fúl - Vonandi lagast þetta vonda sem fyrst

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband