Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Þriðjudagur, 19. júní 2007
OG ENN EITT BLEIKT TIL VIÐBÓTAR
Það linnir ekki látunum í fréttum af konum í dag. Dásamleg tilbreyting. Steinunn Valdís kveður borgarstjórn Reykjavíkur með stæl og flutti tillögu um að láta fara fram könnun á launum karla og kvenna í starfi hjá borginni. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Það er eftirsjá að Steinunni Valdísi úr borgarmálunum, en hún kemur til með að slá í gegn á þingi og þetta segi ég þrátt fyrir að hún sé í stjórnarliðinu. Aðdáun mín á henni, ISG og Jóhönnu sig, ásamt auðvitað fleiri konum úr SF nær út fyrir allt pólitísk þrætutal.
Flott Steinunn Valdís!
![]() |
Samþykkt í borgarstjórn að gera launakönnun meðal borgarstarfsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. júní 2007
ENN EIN BLEIK FÆRSLA..
..og ekki svo gleðileg í þetta skipti. Ef fram fer sem horfir verð ég handtekin af litalögreglunni en ég er komin með dómdagshöfuðverk af öllum þessum hressilega bleika lit, enda ég þekkt fyrir að vera í svörtu. Konur bjóða körlum hærri laun en konum og karlar bjóða kynbræðrum sínum ennþá hærri laun. Konur reikna með að konur sætti sig við lægri laun en karlar. Munurinn er frá 13-19%. Þetta er niðurstaða rannsóknar á óútskýrðum launamuni kynjanna sem kynnt var í dag.
Ég er ekki hissa á að karlar bjóði körlum mikið hærri laun en konum. Það veit ég bæði af eigin raun og vegna fjölda rannsókna um málefnið. Það er hins vegar sárara en tárum taki að konur skuli mismuna kynsystrum sínum svona. Það eru sorgarfréttir á þessum annars yndislega degi.
Við áfram í bleiku stelpur og bítum á jaxlinn!
![]() |
Bæði kynin reikna með því að konur sætti sig við lægri laun en karlar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. júní 2007
SILFURMAÐURINN SLOPPINN
Egill Helga er laus úr prísundinni hjá 365. Úff hvað mér léttir. En ykkur? Það virðist ekki kjaftur mega hætta hjá þessu fjölmiðlafyrirtæki án þess að vera hótað lögsókn og vera svo borinn út í fjölmiðlum fyrirtækisins, þar sem samræður og bréf milli manna eru birtar, almenningi til lesturs. Vó eins gott að fólk gæti sín á risanum.
Til hamó Egill moggabloggari (sem leyfir EKKI athugasemdir á sínu bloggi og fær fyrir það feitan mínus í kladdann).
![]() |
Egill og 365 ná samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. júní 2007
MOGGINN..
..fær dúlluverðlaun dagsins, þessa fallegu slaufu, fyrir að hafa alla hausa á forsíðunni bleika í tilefni dagsins og minna um leið gesti og gangandi á að í dag er 19. júní! Stundum er Mogginn einfaldlega dúllurass og ef hægt væri að knúsa fyrirbærið myndi ég gera það og klípa í hann í kinnina líka.
STYRMIR ÉG ER Á LEIÐINNI!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 19. júní 2007
ÉG ER KLÁR Í SLAGINN..
..eins og fram hefur komið í færslum hér á undan. Hin 19.júní 1915 fengu konur kosningarétt. Nokkrir hópar hafa skipulagt atburði í tilefni dagsins undir heitinu Málum bæinn bleikan. Allir sem vilja sýna stuðning við jafnrétti í verki eru hvattir til að bera bleikt í dag.
Ég fer í minn bleika kjól og hatt. og gott ef ekki bleika skó líka.
Dagskrá dagsins er í viðtengdri frétt.
Sjáumst stelpur.. í bleiku.
![]() |
Málum bæinn bleikan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. júní 2007
STELPUR TIL HAMINGJU MEÐ 19. JÚNÍ
Hafið þið pælt í því dömur mínar að fjallkonan er einstæð án barna? Flott kerla í fullu starfi og má ekki vera að neinu veseni uppi á fjöllum. Einhver var að leiða getum að því að hún væri lesbísk. SÓ??? Hvaða máli skiptir það? Konan er flottust.
Ég tek hattinn ofan fyrir konum í dag. Gleðilega hátíð.
Mánudagur, 18. júní 2007
FUGL Á LEIÐINNI
Um næstu helgi ætlar Jenny Una Erriksdóttirrr að gista hjá ömmu og Einarrrrri og það stendur mikið til. Það á að fara og kaupa páfagauk, bláan, segir Jenny en miklar umræður hafa verið um hvort kaupa skuli fuglinn. Jenny slær svolítið í og úr með páfagaukinn af því hún er líka hrifin af kanínum. Amma kaupa kanínu, pínu-pínu-litla, bláa kanínu (fólk tekur kannski eftir að blár er uppáhaldslitur barns þessa dagana) segir hún til að draga úr dramatiskum áhrifum orða sinna á ömmuna. Nei fugl skal það vera, blár og í gylltu búri sem verður látið hanga neðan úr loftinu. Við erum búin að skíra í fjarveru fugls en hann mun heita sama nafni og fyrirrennari hans (sem fékk hjartaáfall um árið í miðri aríu) eða Birdy. Jenny segir auðvitað BIRRRDY.
Hér er nokkrar myndir frá helginni.
Farmor og farfar í herbóinu hennar Jenny og Jenny hugsar og hugsar
Einarrr, farfarsfólkið og amman Pabbinn á trommunum, langflottastur
Mánudagur, 18. júní 2007
OG ENN Á NÝ..
..senda íslenskir dómstólar þolendum nauðgana og annars kynferðisofbeldis, skýr skilaboð. Það er ekki mjög alvarlegt mál að verða fyrir nauðgun. Tvö ár telja þeir mátulegt fyrir mann sem áður hefur verið dæmdur í 2-1/2 árs fangelsi fyrir samskonar brot.
Það er ekkert samræmi á milli dóma í fíkniefnabrotum t.d. og hinsvegar alvarlegum kynferðisafbrotum. Hamarþungi dómara er öllu meiri í fíkniefnadómunum án þess að ég sé að gera lítið úr þeim.
Er ekki að koma tími til að kynferðisbrot verði dæmd með tilliti til alvarleika þeirra og í samræmi við það sem fólkið í landinu telur að réttlátt sé.
![]() |
Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 18. júní 2007
ÉG ER MOLBÚI
Það segir að minnsta kostinn bloggarinn www.fridjon.blog.isþegar hann skrifar um orður og molbúa. Annars les ég Friðjón reglulega og mér finnst hann skeleggur og skemmtilegur penni þrátt fyrir að vera sjaldnast sammála honum. Mér er sko nokk sama þótt ég sé kölluð molbúi og svo hef ég ekkert á móti athygli á blogginu, þar sem ég er svo mikill perri að ég blogga ekki bara fyrir sjálfa mig heldur er ég skammlaust á því að fólk vilji láta lesa það sem það skrifar.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 18. júní 2007
AÐFÖR AÐ ÍSLENSKUM lLANDBÚNAÐI..
..garðyrkjubændum eða íslenskum heimilisiðnaði? Tveir menn voru handteknir í síðustu viku vegna framleiðslu á fullt af kannabisplöntum nálægt Hellu.
Það er sko ekki grín gerandi að fíkniefnaframleiðslu en sem alki hef ég aldrei skilið inntöku á þessu efni sem kyrrsetur fólk, fær það til að úúúa og váááa með því einu að stara á vegginn. Nýjar rannsóknir á fíkniefninu kannabis sýna hins vegar fram á að það er mun hættulegra en haldið hefur verið fram. En það hafa þeir á Vogi vitað í áraraðir og ekkert nýtt þar á ferðinni. Hollusta kannabis er stórlega ofmetin eða er réttara að segja að alvarlegar afleiðingar þess séu stórlega vanmetnar?
Síjúpípúl!
![]() |
Fíkniefnaframleiðsla stöðvuð í nágrenni Hellu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.9.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2988575
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr