Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Sunnudagur, 24. júní 2007
ENN EIN FJÖLDAÁRÁSIN..
..um helgina og enn einn þolandinn liggur höfuðkúpubrotinn á gjörgæslu LHS. Árásin var gerð í íbúð við Hjaltabakka. Ég er reyndar orðlaus, það er enginn endir á djöfulganginum. Ríkir blóðugt stríð hérna í borginni?
![]() |
Sex í yfirheyrslu eftir fjöldaárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 24. júní 2007
ÉG BÍÐ ÞOLINMÓÐ..
...eftir frétt í sunnudagsblöðunum þar sem segir frá því að borgarbúar hafi ekki hagað sér eins og víkingar á sveppum, ælt og migið þar sem þeir stóðu, ekki hálf-drepið náungann né keyrt dauðadrukknir. Ég veit að horfurnar eru ekki góðar um að þetta gangi eftir en ég er bjartsýn kona. ARG
![]() |
Mikil ölvun í miðborginni í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 24. júní 2007
AF HENNI JENNY UNU ERRRIKSDÓTTUR
Hún Jenny Una Errriksdóttir kom til ömmu og Einarrrs í gær til að fylla líf þeirra enn frekari gleði og hamingju. Hún var í besta laugardagsskapi og sagði okkur að nú væri hún komin á Kroppakotsdeildina á leikskólanum sem er fyrir STÓRU BÖRNIN. Jenny er sífellt að bæta við sig og nú svarar hún hugsi öllum spurningum sem til hennar beinast með "ég held ekki". Ekkert verið að fullyrða og þykjast vita alla hluti. Við lásum Emmu í gærkvöldi og dáðumst að hugrekki Emmu sem fór ekki að gráta þegar læknirinn saumaði sárið á enninu hennar. Svo fékk Jenny leið á Emmu og ömmu reyndar líka og kallaði í Einarrr í staðinn og hann söng hana í svefn.
Nú er kókófíllinn orðinn að krókódíl, jákarlinn er enn á sínum stað og gívaffinn líka, en í þessum hverfula heimi, verða þeir orðnir að hákarli og gíraffa áður en varir. Lífið er ein örskots stund.
Jenny sendir saknaðarkveðjur til Olivers í London og hún elskar hann svakalega mikið.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 24. júní 2007
HVAÐ ER AÐ?
Hverja einustu helgi má lesa um alvarleg ofbeldisverk sem afleiðingu af "skemmtanalífi" í borginni. Hvenær er komið nóg af þolendum? Einn maður er höfðkúpubrotinn og annar var stunginn með hnífi í bakið í nótt.
Ég er svo hrædd um að við verðum ónæm fyrir þessum hroðalegu atburðum.
![]() |
Einn höfuðkúpubrotinn og annar stunginn í bakið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 24. júní 2007
ÉG MENSUMEÐLIMURINN (EÐA ÞANNIG)..
...er auðvitað greindust af öllum mínum systrum og bróður. Ég er enda lang elst. Sumt þarf ekki að rannsaka því það liggur allt þráðbeint fyrir. Við þessi elstu kennum yngri systkinum okkar og leiðbeinum þeim. Hm.. Greta systir sem er næst mér í aldri er héraðsdómari.. hm.. en ég er OFVITI.
![]() |
Elsta systkinið gáfaðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 23. júní 2007
ÓTRÚLEGA HEPPIN HÚN ÉG!
Tveir skiptu með sér lottóvinningi kvöldsins. Ég var sá þriðji. Jibbí, ég er hreint ótrúlega heppin.
![]() |
Tveir skiptu á milli sín lottóvinningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 23. júní 2007
ÉG MÆLI MEÐ ÞVÍ..
..að biðja um gistingu hjá löggunni ef fólk er í ferðalögum og veðrið til dæmis reynist óhagstætt. Eini kostnaðurinn við það er að skutla í sig töluvert af eldvatni, verða þvoglumæltur og láta smá ófriðlega. Þetta er bókað gistirýmis-sukksess.
Ég prófaði þetta einu sinni í Kebblavík, þegar ég hafði farið í Stapann með vinkonunum og við fengum flotta gistingu í fangaklefa hjá löggunni. Klefinn var reyndar töluvert undir sjávarmáli, dálítið rakur svona en sviðakjammarnir sem við höfðum með okkur í ferðalagið, brögðuðust yndislega vel. Þetta var því notaleg gisting.
Síjúgæs!
![]() |
Bað um að gista í fangageymslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 23. júní 2007
IMELDU MARKOSAR HEILKENNIÐ
Ég elska skó, sérstaklega háhælur. Ég er í fjölskyldu sem er brjáluð í skó. Systurnar mínar sex eru allar meira og minna skótrylltar. Í gegnum árin höfum við haft vöruskipti í skóm. Ágirnumst alltaf fótabúnað hvor annarrar og höfum lagt heilmikið á okkur til að ná honum af hvor annarri.. Sama máli gegnir með dætur mínar. Skór eru uppáhalds. Maysan mín sem skildi eftir afganginn af fötunum sínum hjá mér (eftir að hafa selt góðan hluta þeirra áður en hún flutti út) er með stóran kassa afgangs af skóm í geymslunni hjá mér. Ætli þetta sé eitthvað sem Erfðagreining ætti að rannsaka?
Ég á hóp af hælaháum. Rosaflottum og nánast ónotuðum. Ég veit ekki hvað er að gerast með mig en ég er meira og minna alltaf í sömu skónum núorðið. Þe. svona fimm pör í gangi og engar háhælur. Er ég orðin gömul? Get ég ekki gengið eins lengur létt á fæti eins og það sé ekki stórmál að vera á pinnum? Að það sé bara asskoti þægilegt? Nógu vön er ég enda með meirapróf í að klæða mig til ólífis. Ég held að ég viti núna hvar "skóinn kreppir". Tilfellunum til að klæðast fótabúnaði dauðans hefur fækkað. Ég er ekki lengur í háhælubransanum. Ég er orðin svo svakalega dómestikk. Núna sit ég með flottu skóna, strýk þeim og legg þá undir vangann en skelli mér svo í einhverja þægilega og tekst á við lífið. Tímarnir eru svo sannarlega breyttir.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 22. júní 2007
AÐ KVÖLDI DAGS!
Ég reyni oftast að gera samantekt á deginum áður en ég fer að sofa. Ég ætla ekki að hafa um hann mörg orð. Mér komu á óvart rosaleg viðbrögð sumra við færsluna mína hér fyrir neðan þar sem ég kalla ritstjórn Moggans til ábyrgðar á hlutum sem geta misboðið fólki alvarlega og birtast á blogginu. Ég var hissa á að flestir gætu ekki fallist á það sjónarmið mitt og margra annarra, að einhver mörk þyrftu að vera varðandi hvað við getum sett á bloggið.
En hvað um það, svo lengi lærir sem lifir.
Las að Katrín (www.katrinsnaeholm.blog.is) vinkona mín er að hætta að blogga. Það finnst mér leiðinlegt ef rétt er. Vona að hún endurskoði hug sinn.
Á morgun kemur Jenny Una Errriksdóttirrr til okkar og við ætlum að dekra hana til tunglsins og hafa svakalega gaman.
Skellti inn einni mynd af litlu gullmolunum mínum Jenny og Oliver. Þau bæta, hressa og kæta.
Gúddnæt gæs!
Föstudagur, 22. júní 2007
ÞÓTT FYRR HEFÐI VERIÐ?
Nú vill ríkisstjórn Bandaríkjanna loka pyntingarbúðunum í Guantánamo Flóa. Þeir vilja fangana í fangelsi í sínum eigin löndum og vilja tam. hjálpa til við að byggja fangelsi í Afganistan. Ég spyr eins og asni? Hví fangelsi? Hafa þessir menn verið dæmdir fyrir eitthvað? Það hefur amk. farið fram hjá mér.
Því fyrr sem þessum skelfilegu búðum verður lokað, því betra og ég held að Bandaríkjamenn ættu að láta heimalönd þessara manna um afdrif þeirra. Þetta er orðið gott hjá þeim.
![]() |
Guantánamo fangar fari til síns heima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.9.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2988574
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr