Leita í fréttum mbl.is

ÉG MENSUMEÐLIMURINN (EÐA ÞANNIG)..

1

...er auðvitað greindust af öllum mínum systrum og bróður.  Ég er enda lang elst.  Sumt þarf ekki að rannsaka því það liggur allt þráðbeint fyrir. Við þessi elstu kennum yngri systkinum okkar og leiðbeinum þeim.  Hm.. Greta systir sem er næst mér í aldri er héraðsdómari.. hm.. en ég er OFVITI.


mbl.is Elsta systkinið gáfaðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kenna eldri systkinin þeim yngri svona illa? Ég mótmæli þessu harðlega. Oft fær elsta systkinið mesta örvun ... og svo þegar næstu börn í röðinni koma þá eru foreldrarnir búnir að fá leið á börnum og nennissiggi ...ÞETTA ER ÁSTÆÐAN. (Ein fúl, næstelst)

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 00:52

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Híhí Gurrí mín, face it eldri systir/bróðir slær þér við.  Er viðkomandi kannski með mér í Mensunni?

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2007 kl. 01:38

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er þá líklega á grensunni.....?

Hrönn Sigurðardóttir, 24.6.2007 kl. 01:48

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hvað er Mensan? Svara núna.

Jóna Á. Gísladóttir, 24.6.2007 kl. 01:53

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta eldra kvikindi er kennari! Ekki er það nú gáfulegt miðað við launin þeirra ... múahahhahaha! Annars neitaði ég alltaf að viðurkenna yfirburði hennar sem stórusystur ... óxla leiðinleg þremur árum yngri systir. Ég hermdi allt eftir henni, tók tónlistarsmekkinn (Led Zeppelin, Deep Purple ofl.) hennar upp og fatasmekk. Svo góða stelpan hún Hilda, ári yngri en ég, gekk í terlínbuxum og hlustaði á Gylfa Ægisson, Ríó tríó og Brimkló! Gvuð hvað ég vorkenndi henni fyrir að vera svona hallærisleg ... ég reykti pípu, var í Álafoss-úlpu og rifnum gallabuxum með hekluðum dúllum!

Þess vegna er ég kannski svona gáfuð. Ég er heiðursfélagi í Akranesdeild Mensu! Þú átt ekki að hlusta á svona fréttir, hvað þá blogga um þær, Jenný mín. Það er gúrka núna og öllu bulli skóflað upp! Ég er bara hneyksluð á þér ... eins og öll systkini sem ekki teljast elst! (Hvað myndi gerast ef ég drep Míu systur? Telst ég þá gáfuðust í hópi systkina minna? Ég bara spyr af algjörri forvitni ... ekki að ég ætli eitthvað að gera sko)

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 01:54

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Annars er ég næstyngst (yngst af eftirlifandi systkinum) og ég er laaaaaaaaaaaaaaaaang gáfuðust.

Jóna Á. Gísladóttir, 24.6.2007 kl. 01:54

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mensa er algjört gáfumannna/-kvennafélag. Held að þú þurfir að vera með greindarvísitölu upp á 160 til að komast inn í hópinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 01:55

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ahh, Jenný, ég las fréttina. Ég verð gáfuðust í hópnum ef ég drep Míu systur. Flott að vita það. Spurning hvort þetta er marktæk könnun ... hún er norsk! Norðmenn eru svo ólíkir okkur, eiginlega bara öllum þjóðum ...hmmmm

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 01:57

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tjahhhhh mín greindarvísitala er yfir stofuhita....

.....og ég er svakalega happí

Hrönn Sigurðardóttir, 24.6.2007 kl. 01:58

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

You said it Guðríður og þess vegna er ég í þessum mikilsvirta félagsskap

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2007 kl. 01:59

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Er þetta í kvenlegg eða karllegg eða bara uppeldislegt? Ég er næstelst í karllegginn, þarnæst ef með er talið eitt stjúpsýstkini. Er hinsvegar einkabarn í móðurlegg og eldra barn ef með er talið yngra stjúpsystkin. Er þetta kannski ekki miðað við nútímafjölskyldur?

Norskir karlmenn? Uss!

Laufey Ólafsdóttir, 24.6.2007 kl. 02:05

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér finnst Jenný vera að breytast í algjört montrassgat eftir að hún varð svona fræg! Dissar okkur sem erum yngri systkini þvílíkt! Eða hvað, er hún kannski bara svona gáfuð að ég skil ekki tryllingslega greindarlegan húmorinn hennar? (broskarl eins og djöfull kæmi hér ef ég væri ekki í Makkatölvu)

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 02:18

13 identicon

Ætli gáfurnar aukist ef kona er í bloggvinkonusamfélagi með fullt af ofurgáfuðum konum??? Ég er nefnilega yngst í mínum systkinahópi og hef dotlar áhyggjur eftir að ég sá þessa frétt

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 02:19

14 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

...þess ber að geta að yngra stjúpbarnið mældist með um 140 í IQ þegar það var í grunnskóla. Ég er þá líkast til mensuefni skv. þessu.

Laufey Ólafsdóttir, 24.6.2007 kl. 02:37

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég get svarið það stelpur, hvað kona er heppin með svona flippaðar og skemmtilegar bloggvinkonur.  Iss þið sprengið alla skala og við stofnum okkar eigið gáfustelpnafélag og það á að heita "Ofurheilar".  Smjúts (ligg í hlátri, hvað er að ykkur, fyndin alveg að drepa ykkur?) skelfingarbroskarl-kvikindisborskarl-illkvittnisbroskarl (verður að stafa ofaní Gurrí).

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2007 kl. 07:25

16 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

uss, ég sá allt aðra skýringu á fyrirbærinu fyrir um 8 árum. Sel svo sem ekki dýrar en ég keypti, en samkvæmt þeirri skýringu gangi fyrsta barn á eitthvað heilafæðisforðabúr móður (omega3 fitusýrur eða þanniglagað, allavega átti lýsistaka að laga þetta), þannig að ef móðirin passaði ekki upp á að fá birgðir aftur, vantaði þær fyrir yngri systkinin. Tók lýsi alla meðgöngu yngsta barnsins og sveimérþá ef hann er ekki bara klárastur þeirra allra...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 25.6.2007 kl. 13:14

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna er komin skýringin Hildigunnur.  Við elstubörn rænum móður okkar ómegabúskapnum í heila þeirra.  Er það nema von að ég sé andlega dreneruð en elsta dóttir mín lögfræðingurinn, slær sér nú  upp á MÍNUM ómegasýrum.  Beinið á henni.  Geri hana arflausa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.6.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband