Færsluflokkur: Hneyksli
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
ANSINN AÐ ÉG MISSTI AF ÞESSU!
Búningarnir úr sjónvarpsþáttunum Dallas voru á uppboði í París. OMG hefði ég fílað eins og einn "eighties" kjól af Sú Ellen, en viprurnar kringum munninn voru örgla ekki á uppboðinu. Konan sem getur ekki leikið túlkaði samt ótrúlega vel hið blóðuga fórnarlamb mannsins, sem getur hvorki farið - né verið. Það var óvart leiksigur hjá "hvaðhúnnúheitir". Einu sinni sagði kona við mig, sem elskaði Dallas og missti aldrei úr þátt, "finnst þér hún Sú Ellen ekki líta mikið betur út eftir að hún hætti að drekka?" Ég fékk krúttkast á viðkomandi konu. Að tala um að lifa sig inn í verkið.
En allavega þá man ég eftir að Súan var oft í flottum drögtum. Ætli þær hafi staðist tímans tönn eða séu allar með þriggja hæða herðapúðum? Sjitt, ég kemst ekki að því, ég missti jú af uppboðinu.
Dem, dem, dem
![]() |
Búningar Dallas boðnir hæstbjóðandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
ÞRÍR FENGU AÐ KENNA Á MÉR
..í kvöld af því ég er í vondu skapi. Ég reifst við þrjá aðila einu sinni (sko í sitthvoru lagi) eða reifst ég við einn aðila þrisvar sinnum? Úff ég er ekki viss um að ég muni það. Hehe, ég er sem sagt búin að vera frekar pirruð í kvöld og hvað gerir maður þá? Jú rífst við húsbandið, í símann ef ekki vill betur. Hann í sínum síma frammi í eldhúsi, ég í mínum inni í stofu. Um að gera að nota tæknina til samskipta.
Meiri fíflagangurinn í mér. Ég tuðaði töluvert (reifst ekki beint) þrisvar sinnum á einum klukkutíma. Af hverju var þetta svona en ekki hinsegin? Af hverju var soandso alltaf að bögga mig og af hverju eru hlutirnir í eina átt en ekki hina? Engin svör fengust, ég gafst upp og fór í bað.
Stundum er maður illa stemmdur og eyðir mikilvægri orku í að láta einskis verða hluti fara í taugarnar á sér. Dálítið vont fyrir mig sem er annars svo fullkomin. Arg.. Það sem ég er að reyna að segja að mér hættir til að gleyma því hvað mér finnst lífið skemmtilegt og missa mig í vol og víl. Ég lofa sjálfri mér, hér með, hátíðlega að vera eins og Jenny Una Erriksdóttirrr, "alltaf glöð", "alltaf góð" og "alltaf að skiptast á". Það er einfaldasta og besta lífsreglan sem ég hef fengið súmmeraða upp með skeið fram að þessu. Jenny Una sýnir mér á hverjum degi að það virkar.
Lofjúgæs.
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
KLUKK-KLUKK, ARG
Iss hvað ég er ekki í skapi til að láta klukka mig. Tvær vinkonur hafa slegið mig hvasst í bakið og frussað kvikindislega; klukk Jenny, klukk. Þær hrossið og beta. Hm.. Hvað á ég að segja um sjálfa mig sem ég er ekki þegar búin að segja?
1. Ég græt reglulega vegna vonsku heimsins.
2. Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn
3. Ég er hrædd við kindur, hænur, hesta og flest öll dýr nema kisur og hvolpa.
4. Ég er þokkalega hugrökk svona oftast og hendi mér í djúpu.
5. Ég er ótrúlega minnug, upp á gott og vont.
6. Ég læt mig dreyma um að búa í húsi með svefnherbergjum uppi á lofti.
7. Ég elska óveður og myrkrið veitir mér öryggi.
8. Ég er hamingjusamari en nokkru sinni.
Þar hafið þið það. Ég klukka:
Ásdísi, Zou, Guðnýu Svövu, Gurrí, Evu, Þröst Unnar og Kristínu Kötlu
Og í Guðanna bænum ekki klukka mig meira. Ég hefði átt að setja þetta í hinar átta játningar en vill ekki að fólk komist að því að ég þoli ekki klukk, keðjubréf og sollis. Það er svo mikil skuldbinding fólgin í því.
Og þannig standa nú mál krakkar mínir.
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
BANNAÐ INNAN SEXTÁN
Stúlkum undir 16 ára aldri ætti að vera óheimilt að taka þátt í fyrirsætustörfum á tískuvinnunni í London í september. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem breski tískuiðnaðurinn lét framkvæma.
Halló, hvernig væri að banna innan 20? Það væri flott tilbreyting að sjá konur sýna föt fyrir konur, ekki smábörn sem ekki eru einu sinni búin að missa barnatennurnar. Fyrir hverja er þessi ofuráhersla á smátelpur í tískuiðnaðinum? Okkar kvenna sem kaupum vörurnar?
Ég held ekki.
Fruuuuussssssssssssssss
![]() |
Ekki fyrir yngri en 16 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
HALLÓ VAR FUGLINN Í BÚRINU??
Ég meina það hér er sagt frá að slökkviliðið hafi farið í tvö útköll með dælubíl í dag. Í bæði skiptin var um eld út frá eldavélarhellu að ræða. Á Gunnarsbraut í Rvk. kviknaði í fuglabúri en þvotti á Kleppsvegi
Ég VIL vita hvort fuglinn hafi verið í búrinu. Ég meina lítið páfagaukskrútt. Arg..
![]() |
Kviknaði í fuglabúri og þvotti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
ARG, HREFNUVEIÐAR AÐ HEFJAST AFTUR
Rosaleg tregða er þetta. Af hverju er þessum fáránlegu veiðum ekki hætt? Það stendur í fréttinni að eftirspurn eftir kjötinu sé mikil, að mér skilst hér innanlands. Góðan daginn, sé Íslendinga í anda úða í sig 34 stykkjum af Hrefnu. Það eru einhverjir örfáir sérvitringar og svo Japanir sem borða þetta kjöt.
OMG við verðum að hugsa um "immidsið".
![]() |
Hrefnuveiðar hefjast aftur í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
NÝJAR KARTÖFLUR
Ég er svo gömul (eða þannig) að ég man eftir kartöflueinokuninni margfrægu. Þá voru kartöflur seldar í 5 kg. pappírspokum og þær voru vondar, trúið mér. Amk. 30% af hverjum poka fóru í ruslið, fyrir nú utan að þær sem eftir voru og ég notaði til manneldis voru á mörkunum boðlegar.
Ég elska kartöflur og bý til allskonar kartöflurétti. Nýjasta æðið hjá mér eru litlu aflöngu frönsku kartöflurnar (nei ekki franskar), pomme de terre, sem eru brjálæðislega góðar. Ég sýð þær eða set í ofnfast mót, með olíu, pipar, salat- eða rauðlauk þangað til meyrar í gegn og skelli þá smá Maldon yfir og þær eru tilbúnar á diskinn.
Ég er orðin svöng.
Bestar eru nýju kartöflurnar og mín er búin að fara í Hagkaup og kaupa slatta. Nú verður kartöfluveisla krakkar mínir.
Bætmí!
![]() |
Fyrstu íslensku kartöflurnar teknar upp í Þykkvabæ í morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
MUNIÐ ÞIÐ EFTIR...
..því um daginn, þegar fréttir komu í Mogganum um að rannsóknir hefðu sýnt að elsta barnið væri gáfaðra en þau yngri? Hélt það.
Vildi bara minna á að ég er elst.
Vá hvað ég er æðisleg.
Nananabúbú!
Flokkast undir sjálfsdýrkun.
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
LÚSUGT BYRGI
Þar sem óhreinindi eru inngróin, þar má oft finna lús. Ég er ekki hissa á þessum fréttum.
Og nú klæjar mig brjálæðislega í hausinn.
Aumingja Mummi í Götusmiðjunni, fyrst var tekinn feill á honum og Guðmundi vonda (sem ég fæ ekki skilið) og svo þarf hann að þrífa eftir hann og félaga hans sem aftur leiðir til þess að hann getur ekki opnað á tilsettum tíma fyrir skjólstæðinga sína.
Síjúgæs!
![]() |
Skæð lús í fyrrum húsnæði Byrgisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 10. júlí 2007
SYNDANDI BENEDIKTAR ÞESSA HEIMS..
..er það eitthvað í nafninu sem kemur mönnum til að reyna að synda yfir Ermasundið? Ég bara næ ekki þessari víkingaáráttu sem felst í að klífa tindi og synda á milli landa.
Hvað er að lestum, flugvélum og öðrum farartækjum?
Nei ég er ekki svo vitlaus að halda að þetta sé spurning um smekk á ferðamáta en hví að leggja sig í hættu við svona barnaskap?
Greta systir mín er hins vegar amma fallegasta Benedikts í heimi. En það er önnur og skemmtilegri saga sem bíður þar til ég er búin að heimsækja hann og sjá hann læf.
Jabbogjei
Ég átti smá erfitt með að finna flokk fyrir þessa færslu. Sjá flokkun, bara svo allt sé á hreinu.
![]() |
Bakslag á Ermarsundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr