Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

ÉG HEF SAGT ÞAÐ ÁÐUR...

22Þetta er það sem átt er við með "blowjob".

..og segi það enn að allt á nú að geta valdið krabbameini.  Það er ekki í fyrsta sinn sem ég blogga um það.  Þetta er farið að verða fáránlegt.  Bandarískir vísindamenn við John Hopkins háskólann staðhæfa að vírus sem smitist við munnmök geti orsakað ákveðið tilfelli krabbameins í hálsi og sé mun stærri áhættuþáttur en tóbaks- eða áfengisneysla (nú??).  Þrjú hundruð manns tóku þátt í rannsókninni og voru þeir sem höfðu stundað munnmök líklegri til að greinast með þetta tiltekna og sjaldgæfa krabbamein í hálsi.

Það er þó gott að þetta er sjaldgæft.  Annars fer nú að verða fátt um fína "drætti" í svefnherbergjum heimsins.  Ég er mjög áhyggjufull.  Neh lifi það af en ég gat ekki látið hjá líðast að blogga um þetta.  Það er allt að verða fólki stórhættulegt.  Kommon,  rólegir á þessum óþarfa rannsóknum og notið peningana í lyf handa fátækum. 

Iss!


mbl.is Munnmök ein ástæða krabbameins í hálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EIKI DATT ÚT EN "GEORGE MICHEL DVELLINN"..

..er inni í Júróvisjón.  Ég man ekki einu sinni hvaða landi hann kom frá.  Hryllilegur plebbi.  Eiki var skammarlega flottur og má bara þakka fyrir að vera ekki með í þessu plebbasamfélagi.  Annars var ég hrifin af Ungverska laginu, blúsnum.  Hann var hann áheyrilegur.  En þessi nr. 2 frá Georgíu, æi þessi með sjálflýsandi góminn, hm.. rosalega verð ég hissa þegar sumar þjóðir komast áfram.

En þetta var skemmtilegur þáttur.  Einkum og sér í lagi vegna Simma sem fór á kostum sem þulur.  Ég lá í hlátri.

Iss hvað Evrópubúar geta verið miklir bjánar!

Eiríkur rúlar!!


Á HARÐASPRETTI ÚT Í VORIÐ

22

Hún Jenny Una Errriksdóttir á það til að vera svolítill villingur.  Í fyrradag slapp hún út í garð á meðan pabbi hennar var að ná í hrein föt handa henni.  Hún stökk um allt eins og lítill kálfur og það upphófst mikill eltingaleikur á meðan mamma hennar mundaði myndavélina.  Jenny finnst svo gott að láta sólina leika um kroppinn og finna lífið þjóta um æðarnar.

Nú eru amma og Einarrrr að farrrra á opið hús á leikskólanum (afsakið skólanum því þetta er háakademískt nám í sjálfu lífinu) og sjá allt sem hún Jenny er búin að búa til og skapa í vetur af miklu listfengi.

Bless á meðan.


15 FUKU Í DAG

22

Ca svona margir bloggvinir fuku í dag.  Ég er alltaf að fokka í bloggvinunum.  Þegar ég byrjaði að blogga var ég stofnandi til bloggvinasambanda út um víðan völl.  Svo hætti ég því en samþykkti alla sem vildu vera vinir mínir.  Svo hefur þetta hlaðið upp á sig.  Margir þessara vina minna hafa aldrei skilið eftir sig spor og það eina sem þeir leggja til míns blogglífs er að taka upp pláss.  Mér fallast stundum hendur þegar ég fer hringinn minn tvisvar á dag af því þeir eru svo margir.  Ég sleppi þeim sem aldrei hafa komið til mín, mér vitanlega og er löngu hætt að lesa hjá þeim.  Ég henti út 10 um daginn, einn kom aftur og nú fuku 15.

Þetta er að verða allt annað líf.  Ég elska nefnilega mína alvöru bloggvini.  Að gefnu tilefni, það þarf ekki að kvitta fyrir sig bara til að kvitta.  Í GUÐANNA BÆNUM!  Ég þekki mitt fólk og knúsa það héðan.

LofjúgæsHeart


ENN BÆTA VG OG SAMFYLKING VIÐ SIG

22

VG og Samfylkingin eru á fullri ferð.  Þetta endar með dásamlegu og langlífu sambandi við stjórn landsins eftir 12. maí.  Til lukku við vinstri menn og konur.

Þetta er könnun dagsins frá Capacent þessi sem sýndi "gífurlega" aukningu Framsóknar í gær.  Þeir eru á niðurleið aftur samkvæmt þessari könnun. Svona er spurt í þessari daglegu könnun sem gerð er fyrir Mbl. og RÚV:

"Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?“ Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“

Halló, halló, Ríkisútvarpið-Sjónvarp!!   Hvaða undarlegu vinnubrögð eru þetta?  Eruð þið ekki dýrgripur í þjóðareign?  Menningarlega ómissandi dásemdarfyrirkomulag?  Útvarp ALLRAR þjóðarinnar?  Hvaða hagsmuna eigið þið að gæta þegar þið spyrjið svona?  Ég skil vel að Mbl. vilji pressa á svör varðandi Sjálfstæðisflokkinn en RÚV!  Veit einhver tilganginn og hefur gleymt að segja mér það?

Úrtakið er 1097 manns og svarhlutfall 64,2%.  Það virðist vera náttúrulögmál að svarhlutfall í skoðanakönnunum er rétt yfir 60%.

Vér bíðum pen eftir könnun morgundagsins.


mbl.is Samfylking og VG bæta við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIG LANGAÐI AÐ SPYRJA..

22
..svo margra spurninga í dag en stjörnuspáin bannar mér það eins og sjá má:
Steingeit:Steingeit: Hvers vegna að spyrja spurninga þegar allt er í þessu fína? Eða á hvolfi? Engar spurningar í dag. Einbeittu þér að því að standa við gefin loforð.
Allir sem mig þekkja vita að ég bókstaflega lifi eftir stjörnuspá Moggans.  Nú verð ég að hemja mig í allan dag.
Mig langaði að spyrja um:
..Þetta undarlega talningafyrirkomulag sem er núna á blogginu.  Af hverju datt ég úr 13. sæti niður í hið alræmda 16. og stökk svo þaðan upp í það 12?  Ég botna ekki neitt í neinu.
..Af hverju það skíðlogaði í maríneraða grillkjötinu sem ég var með í gærkvöldi?
..Af hverju stjörnuspáin er að biðja mig um að standa við gefin loforð?  Af hverju er verið að ráðleggja manni að brjóta upp vanann?
..Af hverju ég læsti mig úti á svölum í morgun þegar ég fór og fékk mér sígó?
..Af hverju ég er viss um að Eiríkur skíttapar í kvöld þrátt fyrir að vera flottastur?
Neh. ég má ekki spyrja?  Ég verð að hemja mig í dag.  Stjörnuspáin er mín biblía og ég fer ekki að lifa lífinu á skjön við hana.  Geisp.. ég er of syfjuð til að geta pirrað mig á þessu.   Ég ætla að sofa í klukkutíma og fara svo að undirbúa heimilið fyrir Júró. 
Smútsj.

OG HÚN HRASAÐI OG DATT

22

Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Stöð 2.  Framsókn heldur áfram að minnka og hverfa en Sjálfstæðisflokkurinn heldur ágætlega sjó.  Vinstri græn fengu 11 þingmenn og Samfylkingin 19.  Mikið rosalega er þetta að verða spennandi.  Vinstri stjórn eftir kosningar er að verða vel raunhæfur möguleiki.  Ég hlusta nú ekki á svona kjaftæði eins og það sem kom fram hjá álitsgjöfurunum á Stöð 2 í kvöld um að það hafi verið eitthvað daður á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þe Sollu og Geirs.  Það var alla vega ekki í MÍNU sjónvarpi.

Nú brettum við upp ermar á lokasprettinum.  Ég hlakka til kosningadags og til útkomunnar sem ég er viss um að verður okkur VG í hag.  Og svo hlakka ég til að lífið komist í eðlilegt horf eftir alla pólitíkina sem hefur heltekið mann meira og minna frá því í fyrra.

Gúddnætbeibís!


mbl.is Ríkisstjórnin fallin samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS DEBATT Í SJÓNVARPI

22

Ég var orðin nær úrkula vonar um að sjónvarpsstöðvarnar myndu sýna almennilegar sjónvarpsumræður milli flokkanna nú fyrir kosningar.  Í kvöld rættist nú heldur betur úr þegar Stöð 2 var með langan og skemmtilegan þátt þar sem bæði voru umræður og yfirheyrslur mann á mann.  Ég held að þeir sem voru óákveðnir ættu að vera einhverju nær.

Mér fannst Steingrímur J. standa sig best eins og venjulega og Ingibjörg Sólrún var líka flott.  Guðjón Arnar hjá Frjálslynda kom vel fyrir.  Jón Sig. talar í frösum og er eins og gangandi yfirlýsingabók og eflaust skilja fáir nema innanbúðarmenn hvað hann er að tala um. 

Mér fannst hálf hallærislegt að vera með "dómara" til að dæma frammistöðu formannanna en þeir voru sammála um að ISG og Steingrímur J. hefðu staðið sig best.  Geir héldi sjó og Jón Sig. væri í vörn.  Að Ómar talaði bara um umhverfismál (sem er nú ekki alveg rétt) og að Guðjón Arnar kæmi vel út.  Ég held að það sé hugsjónahitinn og tilfinningin sem skilar sér til  áhorfandans og ræður mestu um hvað fólki finnst. 

Sigríður Dögg kom með þarfa ábendingu (að vísu aðeins of seint) um að það ætti að spyrja Framsókn og Sjálfstæðisflokk um femínisma.  Spyrja Ómar um annað en umhverfismál osfrv.

Jæja við fengum allavega flottan debatt.  Það bjargar sálarheill minni. 

Síjúgæs!


I MADE HIM AN OFFER HE COULDN´T REFUSE

Norska útlendingastofan ákvað nú síðdegis að skipta sér ekki af komu hóps rúmenskra ferðamanna til landsins frá Íslandi. 

Norðmenn vilja meina að fólkið hafi komið til landsins með lögmætum hætti inn á Schengensvæðið og geti dvalið í þrjá mánuði í landinu sem ferðamenn.

Ég skammast mín fyrir að vera íslendingur.  Löggan segir reyndar að rúmenunum hafi ekki verið vísað úr landi heldur boðin aðstoð við að fara.  Munið þið eftir myndinni um Guðföðurinn?  Þegar þeir gerðu fólki tilboð "sem þeir gátu ekki hafnað"?  Erum við rasistar við íslendingar?


mbl.is Norðmenn skipta sér ekki af komu Rúmena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÉG AÐ MISSA AF EINHVERJU?

45

Það er allt að verða vitlaust í kringum mig.  Spennan yfirgengileg þannig að það má skera loftið í strimla.  Hvað veldur?  Jú kosningarnar og Júróvisjón.  Allir í kringum mig hreinlega að flippa út.  Líka sumir í bloggheimum.  Ég las pistil hjá einni sem ætlaði sko að kaupa snakkið tímanlega því það seldist ALLTAF upp daginn fyrir Júró.  Margt er mannanna mein.  Þeir sem ég hef talað við í síma eru alveg að fara á límingunni.  Á að setja upp extra sjónvarp til að geta fylgst með bæði kosningasjónvarpi og Júró?  Eða á að notast við mósaikkið? Nebb mósaikkið er svo truflandi.  Hvað þarf eiginlega að kaupa mikið í ríkinu? Amk. tvöfaldan skammt.  Þetta kvöld hefur tvöfalt skemmtanagildi, búsinn verður því tvöfaldur.  Æti innkaupagengið í ríkinu viti þetta? Á að grilla eða elda inni í eldhúsi?  Flestir eru á því að grilla í auglýsingahlélnu í Júró þessu nr. 3.  Steikin verður snögg grilluð í ár! 

Hvar stend ég og mitt húsband í málinu? Við ætlum að horfa á kosningasjónvarpið, drekka kaffi og borða mat.  Einhvern mat.  Það er svona að verða edrú spenningurinn minnkar um nokkra á Ricter og ástandið verður þolanlegt - fyrir mig.  Uni fólki þess vel að skemmta sér á þann hátt sem það kýs.  Mér finnst skemmtilegast að tjilla með mitt sódavatn í rólegheitum meðan VG tekur heim sigurinn (enda eins gott ef ég ætla ekki að drepast úr alkahólisma langt fyrir aldur fram). 

Skál í bjóðinu!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.8.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 168
  • Frá upphafi: 2988320

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 166
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband