Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
Sunnudagur, 13. september 2009
Koma svo BH
Ég vil óska nýkjörinni stjórn Borgarahreyfingarinnar til hamingju.
Ég gleðst persónulega yfir þessu kjöri en ég hefði svo sannarlega virt niðurstöðuna hver sem hún hefði orðið.
Það þarf ákveðinn félagsþroska til að taka þátt í pólitík krakkar mínir.
Það er líka nauðsynlegt að kyngja vonbrigðunum þegar maður verður undir í kosningu.
Látið mig vita það, hef þurft að lúta í gras oftar en ekki eftir að ég fór að kjósa og "mínir menn" oftast í minnihluta.
En þannig virkar lýðræðið.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að þingmenn hreyfingarinnar virði ekki niðurstöðu eigin landsfundar.
Ég ætla að skrifa barnalega hegðun þingmannanna að strunsa út af fundi í fússi vegna þess að þeir urðu undir í atkvæðagreiðslu, sem vanhugsaða í hita leiksins.
Það getur bara ekki verið að það sitji fólk á Alþingi Íslendinga (hehemm) sem myndi ekki meika dúkkuleik og matador án þess að fara í fýlu hvað þá alvöru stöff eins og landsfundi og kosningar almennt.
Það gengur einfaldlega ekki upp.
Svo vona ég að hreyfingin nái vopnum sínum og takist á við komandi vetur með blik í auga (já ég veit, smá sykur í tilefni dagsins) og skilji prímadonnustæla og sjálfshátíðartjöld eftir í geymslunni heima.
Komasvo.
Valgeir fékk flest atkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 12. september 2009
Brestir og breyskleiki
Svei mér þá alla mína daga ef íslenska þjóðarsálin er ekki í stórkostlegri krísu með sjálfa sig og þá er ég ekki að tala um hörmungarnar vegna kreppunnar.
Ég er er að tala um þá bresti og breyskleika sem fólk dregur á eftir sér í gegnum lífið og telur sér jafnvel til tekna.
Það er allt fullt af móðgunargjörnu fólki á þessu landi, fólki sem þolir ekki gagnrýni og fer í fýlu ef allt er ekki eins og það vill hafa það.
Hvað er með þennan Georg addna?
Hverjum kemur við hvort honum líki þessi eða hin umfjöllunin um hann og hans hómís hjá Gæslunni?
Hvað er hann að tilkynna Helga Seljan og kó að hann fljúgi ekki glaður með þá?
Er manngarmurinn ekki í vinnunni?
Er hann ekki opinber starfsmaður á launum frá okkur öllum?
Hverjum er ekki sama um hans særða egó.
Auðvitað á maðurinn að steinþegja og vinna sína vinnu.
Reyndar er ég sammála Hildi Helgu, þeirri frómu konu, að auðvitað átti Kastljósfólkið ekkert að láta dívuna Georg stoppa sig af.
Bra láta hann fljúga sármóðgaðan hefði engu skipt.
Hvar endar þetta stórlæti allt saman?
Í dag gekk svo prímadonnuarmur Borgarahreyfingarinnar út af landsfundi í fússi af því hann varð undir í lýðræðislegri kosningu.
Fólk þarf að lúta í gras og þekkja hlutverk sitt.
Sem er oftast minna í lífinu en við viljum halda.
Enginn er ómissandi (nema ég auðvitað, en ég er að meina venjulega fólkið), maður kemur í manns stað.
Sem er óskandi hvað varðar Georg og fleiri oflátunga.
Sem halda að þeir séu guðs gjöf til mannkyns.
Vó, hvað þeir eru úti að aka (fljúga).
Flýgur ekki glaður með Kastljósfólk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 12. september 2009
"Taste the humble pie please"
Þingmenn Borgarahreyfingarinnar eru ósáttir við þær samþykktir sem liggja fyrir á landsfundi hreyfingarinnar.
Margrét Tryggvadóttir segir þær verða til þess að hreyfingin breytist í stjórnmálaflokk.
Þingmennirnir þrír eru að íhuga stöðu sína.
Ef alþingismenn eru ekki stjórnmálamenn hvað eru þeir þá?
Er það ekki stjórnmálaflokkur sem fólk kaus og kom þeim á þing (illu heilli)?
Það má kalla það hreyfingu, samstöðuhóp eða saumaklúbb mín vegna.
En ef það gengur eins og önd, gaggar eins og önd ....
Þá er það líklegast önd.
Alþingismenn eru ekki að vinna sem iðnarmenn, ritarar eða áheyrnarfulltrúar á þingi, er það?
Sjitt, kannski eru þessir þrír áheyrnarfulltrúar amk. í í því máli sem skipti miklu ef ekki öllu fyrir þjóðina.
Ég þetta ofan í mig, þeir eru pínu áheyrnarfulltrúar.
En hvernig væri fyrir þessa þrjá þingmenn að kalla skóflu skóflu.
Þeir vilja ekki íblöndun í sín störf frá Borgarahreyfingunni og þeir haga sér eins og harðsvíraðir stjórnmálamenn til að ná því markmiði.
Auðvitað eiga þeir að sætta sig við lýðræðislega niðurstöðu landsfundar, ekki bara þegar það hentar.
Alveg: Fáum við ekki að ráða þá bara......
Komasvo.
Hætta að byggja hrokabrú og fá sér bita af auðmýktarbökunni sem ég og fleiri hafa fengið að snæða oftar en ég kæri mig um að muna.
Öllum hollt. Líka stjórnmálamönnum.
Svo er Dúan góð.
Átök innan Borgarahreyfingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 12. september 2009
Bygging hrokabrúar gengur vel
Þingmannaþríeyki borgarahreyfingarinnar leggur nú nótt við dag við að byggja hina stórmerkilegu hrokabrú frá þjóðinni á þing með aðstoð nokkurra stuðningsmanna sinna.
Hrokabrúin mun gera þeim fært að vinna í friði frá þreytandi grasrót sem kann ekkert að meta alla þá vinnu og elju sem leggja þarf í almenn þingstörf í þessu landi og vill sífellt hafa skoðanir á því hvað þessir mætu þingmenn eru að bralla.
Skiptir þá einu hvort um er að ræða sjúkdómavæðingu á fólki sem ekki er þremmeningunum sammála eða tittlingaskítsröfl um smáatriði eins og atkvæðagreiðslur um málefni.
Hér má sjá einn aðal brúarhönnuðinn viða að sér byggingarefni í mannvirkið.
Eins og sjá má er yfrið nóg af hrokavið um allt í kreppunni.
Læra af mistökunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Föstudagur, 11. september 2009
Beint í bólið með tólið
Bíddu, bíddu, af hverju er ég að missa?
Er ég búin að lifa mína löngu ævi án þess að hafa skoðanir á nærbuxum karlmanna?
Djöfull er ég aftarlega á merarósómanum.
Ég hef heilmiklar og djúpar skoðanir á nærfatatískunni, enda fátt skelfilegra en að vera gómaður á undirfötum frá tísku síðasta árs.
Tala nú ekki um að vera í lufsulegum nærbuxum úr nælonblönduðu draloni með mynd af kólibrífugli framan á þið vitið hverju.
Ég hef fylgt þeirri meginreglu í gegnum fullorðinslífið að klæða mig alltaf þannig innst (og yst) að ég fari vel í sjúkrabíl og á ambúlans.
Hef átt yndisleg móment áður en ég sofna þar sem mig dreymir dagdrauma um mig liggjandi hvíta sem ná á sjúkrabeði, skrámaða, saumaða og með slöngu í handlegg og svona en óaðfinnanlega dressuð í falleg undirföt frá Victorias Secret.
Amma sagði við mig þegar ég var barn að fara aldrei í götóttum sokkum út úr húsi og í ljótum nærfötum inkeis ég yrði fyrir bíl.
Ég tók þetta algjörlega til mín á meðan ég hins vegar blés á ráðleggingar hennar varðandi kærasta, reykingar og Glaumbæjarheimsóknir.
Úff.
Ég hef sem sagt aldrei út úr húsi farið öðru vísi en að vera algjörlega klædd á bekkinn og í kistuna ef allt færi nú á versta veg.
Hef ekki hingað til haft erindi sem erfiði en held ótrauð áfram.
Fyrirfram aðvöruð - fyrirfram vopnuð og allur sá ballett börnin mín södd og sæl.
En að ég velti mér upp úr nærfötum karla er af og frá.
Veit bara að mér finnast nærbuxurnar hans Svamps Svanssonar ótrúlega skver og hallærislegar.
Glætan að ég fari að segja ykkur hvað mér finnst um karlmenn á nærhöldunum.
Ég er af hippakynslóðinni, við slepptum svoleiðis hégóma.
Beint í bólið með tólið.
(Djók? Nei, nei, fúlasta alvara).
Farin að sofa.
Eða þannig.
Kikkmítúðebón.
Þröngar nærbuxur takk! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 11. september 2009
Stríðið er hafið!
Haustinu fylgja vatnavextir og hamagangur í veðrinu.
Að því tilskyldu að ekkert skemmist þá játa ég hér með að ég elska haustlægðir með öllum þeim djöfuldómi sem þeim fylgir.
Á kærleiks- og menningarheimili mínu er hafið hið árlega hausstríð milli okkar sem hér búum í heilögu sáttmálasambandi blessuðu af guði (eða séra Solveigu Láru sem er miklu krúttlegri en guð svo ég segi það bara hreint út).
Málið er að á hverju hausti s.l. 15 ár eða svo, förum við húsband í heiftúðugt stríð nánast upp á líf og dauða.
Í stríði eru allt leyfilegt eins og í ástinni (klisja, klisja, klisja) og við sláum hvort annað út í kvikindislega upphugsuðum úrræðum til að standa uppi sem sigurvegarar.
Stríðið er um ofna og glugga.
Hann vill hálflokaða glugga og blússandi ofna.
Ég vil galopna glugga og kalda ofna.
Ég treysti honum ekki - hann ekki mér.
Ertu búin að slökkva á ofninum, spyr hann þegar hann kemur í rúmið á kvöldin.
Ég (hneyksluð): Nei, auðvitað ekki, þú varst búin að biðja mig um að láta ofninn vera.
(Ég er hinsvegar algjörlega sek hérna og vonast til að hann láti vera að tékka, en því miður, hann veit að ég lýg eins og sprúttsali um þessi mál).
Ég: Er glugginn opinn upp á gátt (sé það ekki fyrir rúllugardínunni)?
Hann (kuldalega): Auðvitað, ég veit ég má ekki loka þá brjálast þú.
(Á þessu stigi málsins kemur löng ræða um skítlegt eðli mitt, breyskan karakter með tilvísun í lygar mínar og undirferli).
Ég: Æi, hættu og komdu að sofa.
Hann: Hmrpfm
Síðan er það spurningin um hvort sofnar fyrr.
Sá sem það gerir er í vondum málum því hitt kvikindið fer og kemur glugga og ofni fyrir á þann máta sem því best hugnast.
Og daginn eftir heldur þessi skemmtilegi leikur áfram eða alveg fram á vor en þá vill svo merkilega til að hagsmunir okkur skarast ekki.
Ég elska haustið.
Allir lækir eins og stórfljót" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fimmtudagur, 10. september 2009
Fimm viðhöld og tíu eiginmenn
Hugsið ykkur ef þessi umfjöllun DV sem nú hefur verið úrskurðað alvarlegt brot gegn siðareglum Blaðamannafélagsins verður að standard vinnubrögðum í framtíðinni.
Þetta viðtal við Ingvar Jóel Ingvarsson í helgarblaði DV í júní s.l. þar sem fyrirsögnin er "Fjögur viðhöld og eiginmaður", lýsir Ingvar Jóel nær eingöngu samskiptum sínum við ónafngreinda gifta konu og hefur uppi alvarlegar ásakanir í hennar garð um svik, lygar, lögbrot og framhjáhald. Segir siðanefndin í úrskurðinum, að markmið viðtalsins af hálfu Ingvars virðist þó vera að hrinda af sér meintum orðrómi á vegum hinnar ónafngreindu konu, um að hann hefði hótað sonum hennar.
Það væri þokkalegt að hægt væri að komast í viðtal t.d. þegar fólk er að skilja og ata makann auri í hefndarskyni.
Nú eða ef manni sinnast við vinkonu eða vin að láta taka við sig viðtal um hversu ömurlegur viðkomandi er og svo má ljúga upp á hinn sama endalausum ávirðingum.
Ég skil ekki alveg hvert DV var að fara með þessum vinnubrögðum.
Fjandinn sjálfur, ég er komin í áskrift að blaðinu og nýbúin að fagna breyttum vinnubrögðum hjá þeim og svo kemur þessi fína áminning og skýtur mig niður.
DV hefur heldur betur sett niður með þessu viðtali.
Fy och skam.
Alvarlegt brot DV gegn siðareglum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fimmtudagur, 10. september 2009
Von á réttlæti?
Ef rétt reynist að Gamla og Nýja Kaupþing hafi stundað stórfelld fjársvik gegn almenningi þá fer nú að vænkast hagurinn hjá mörgum.
Ég vona það.
Það er einhvern veginn stemmari í mér fyrir að "jón og jónu jónsson" njóti nú loks réttlætis.
Það hefur verið á hinn veginn allt of lengi finnst mér.
Og svona í förbífarten, þá eru hér áhugaverð skrif og ekki síður hér.
Svona er ég góð, alltaf að fræða ykkur og upplýsa.
Ég á að fá almennilegheitaverðlaunin ég sverða.
Hmrfmp
Kaupþing kært fyrir stórfelld fjársvik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 10. september 2009
Úr haga í maga
Ég er ótrúlega skotin í hjónunum á Hálsi í Kjós sem selja m.a. hreint og ómengað nautakjöt.
Ég vil ekki borða unnar kjötvörur, reyni að vanda valið ofan í mig verandi með sykursýki og svona.
Einhver vís kona sagði mér einhvern tímann að nautahakk teldist ekki unnin kjötvara fyrir utan þá staðreynd að kjötið væri sett í hakkavél.
Ég gleypti þetta hrátt og elda reglulega danskt hakkeböff með lök er nú hrædd um það.
En nú ljóstrar bóndinn á Hálsi upp framleiðsluleyndarmáli kjötvinnslunnar í landinu.
Hakkið er blandað með hrossakjöti, svínafitu, þyngjandi efnum og kartöflumjöli.
Amk. á mörgum stöðum.
Halló, nú fer ég að safna saman liði í sætaferðir að Hálsi.
Þarna er til hellingur af mat úr haga sem fer beint í maga.
Vonandi verður kreppan til þess að við fækkum ónauðsynlegum milliliðum og kaupum beint frá framleiðanda.
Það er persónulegra, það eru stórar líkur á betri vöru og það verður örugglega ekki dýrara.
Milliliðir eru oftast algjörlega ónauðsynlegir að mínu mati.
En eins og amma mín sagði og hafði það rétt:
Milliliðir komu í stað handsals sem áður var látið duga manna í millum.
Hún var reyndar að kommenta á fasteignasala.
Sorrí fasteignasalar.
Nú verður það lamb á fæti í sunnudagsmatinn.
Eldað á staðnum með ull og alles.
Hrein og ómenguð nautasteik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 10. september 2009
Ég hefði, ég hefði betur
Ónefndur vinur kom að máli við mig í gær, hann var miður sín yfir óförum sínum og hann sagði mér eftirfarandi:
Árið 2005 hefði ég átt að hætta að drekka opinberlega.
Þá stefndi í óefni. Konan og krakkarnir komnir í Kvennaathvarfið og ég ætlaði aldrei að ná þeim heim aftur.
Þá var ég enn með vinnu, átti húsið og bílana og var á fullu blússi við amfetamínframleiðslu í kjallaranum.
Hefði ég gert það, hætt að drekka opinberlega og skandalisera þannig að eftir var tekið, væri ég enn í blússandi bissness, með kerlu, krakka, bíl og bát og sumarbústaðinn á Þingvöllum.
En gerði ég það?
Nei og helvítis kerlingin náði af mér öllu því sem ég átti og meiru til og ég á leið í fangelsi svei mér þá.
Ég spurði hann hvort hann væri ekki miður sín yfir framkomu sinni við allt og alla.
Hann laut snöggvast höfði, ég sá tár á hvarmi og mér sýndist hann vera að falla saman.
Svo leit hann upp, horfði fast í augun á mér og sagði ákveðinni röddu sem titraði þó örlítið af geðshræringunni sem honum var ekki töm og sagði:
"Ég er miður mín og drullusvekktur yfir að fá aldrei að vera í friði með mitt. Þetta er kerlingunni og fíkniefnalögreglunni að kenna. Glætan að ég taki það á mig. Það eina sem ég er sekur um hérna er að hafa fært út kvíarnar 2005 og haldið áfram á djamminu í staðinn fyrir að halda mér í kjallaraframleiðsunni á heimilinu, setja kerlinguna í járn og drekka í mínum prívat og persónulegu hýbýlum. "
Svei mér þá ef ég veit af hverju mér datt þessi atburður í hug akkúrat núna.
Áttum að hætta árið 2005 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 9
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 78
- Frá upphafi: 2987159
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr