Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
Mánudagur, 9. júlí 2007
ÁRANGURSMAT
Petraeus hershöfðingi, yfirmmaður bandaríska hersins í Írak segir að stríðið muni taka áratugi að leysast. Í viðtali við BBC segir hershöfðinginn að hann sæi árangur en að stríðið yrði erfiðara áður en það yrði léttara.
Ladídadída... þvílíkur þvættingur. Hvernig liti út í Írak ef maðurinn mæti að stríðið væri árangurslaust? Það væru hrein Ragnarök. Forvitnilegt væri að vita hvernig maður þessi rökstyður árangurinn sem hann telur að hafi náðst. Fólk er sífellt að týna lífinu þarna og engin lausn er í sjónmáli. Það þarf hins vegar að halda vopnaverksmiðjum USA frá verkefnaleysi og svo þurfa bandaríkjamenn auðvitað að fá enn stærri ítök í olíuparadísinni þarna niður frá.
Mér er óglatt. Meiri bölvaðir hræsnararnir.
![]() |
Íraksstríðið mun taka áratugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Mánudagur, 9. júlí 2007
ÉG HENGI MIG UPP Á AÐ SUMARSTARFSMAÐURINN...
..er fullur eða þunnur. Enn einn ganginn enn virðast tvær fréttir blandast saman. Að þessu sinni er það tilraunin til að bragðbæta lambakjöt með hvönn, sem er mér tilefni til þessara skrifa en þegar farið er inn á fréttina til að lesa meira þá stendur "Riðuveiki fannst í kindahræi á afrétti". Ég fékk vatn í munninn. Svo ákaflega passandi við bragðbótatilraunina.
Ok, en hvað um það. Ég er með hugmynd. Hvönn er ekki sérstaklega góð að mínu mati, en rósmarín t.d. fer unaðslega með lambakjöti, blóðberg og estragon líka.
Hugmyndin er að beita meme á rósmarín og blóðberg. Það myndi spara mér mikla vinnu við að mylja og steyta og troða í kryddholur.
Hvönnin er hins vegar fín til reykinga, eins og flestir vesturbæingar á mínum aldri geta vitnað um.
Síjúgæs.
![]() |
Tilraun til að bragðbæta lambakjöt með hvönn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 9. júlí 2007
FRAMHALD FRÁ LONDRES
Andrea Maysuvinkona var í heimsókn rétt áður en Oliver brákaði fótinn og þá var mikið fjör í London. Hér koma myndir fyrir vini og kunningja (þið hin megið skoða líka elskurnar).
Gjörsvovel:
Andrea og Bjarki á leið heim með Mays. Mays og Andrea-san Andrea kom frá Íslandi til að plokka
Heba og Tom (Spánargifting) Kvenþjóðin í partýinu Dúndrandi stemming í Londres
Andrea fór í morgungöngu með Oliver
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 9. júlí 2007
ALMÁTTAMINN..
..hvað íslendingar eru duglegir við að fjölga þjóðinni. 1489 krútt hafa fæðst á Landspítalanum fyrri hluta árisins. Hugsið ykkur heilt Háskólabíó af megakrúttum á ekki lengri tíma. Heil agú-ráðstefna bara. Ég fæ krúttkast og kremju.
Ég veit að eitt lítið snúllubarn sem fæðist á seinni hluta ársins tilheyrir þessari fjölskyldu hér. OMG, hvað lífið er krúttlegt.
Óje.
![]() |
1.489 börn fæddust á LSH fyrri hluta árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 9. júlí 2007
ÉG VEIT EKKI MEÐ YKKUR...
..en ég er búin að vera í víðtækum fráhvörfum vegna bilunar í Moggablogginu. Ekki skemmtilegt, get ég sagt ykkur.
Ég hef þurft að TALA í allan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 9. júlí 2007
AUMINGJALEIKUR EINN GANGINN ENN..
..þegar einhverjir aular frömdu vopnað rán í 10-11 versluninni á Barónsstíg um miðnætti. Það er eitthvað við þessar verslanir (halló þær eru opnar á nóttunni kona) sem gerir það að verkum að allir "lúserarnir" í afbrotadeildinni sækja þangað. Vinirnir voru teknir á Skúlagötu og nú er beðið eftir að það renni af þeim.
Mér finnst reyndar skelfilegt að vopnuð rán skuli vera komin inn í myndina.
Gleðilegan mánudag gott fólk.
![]() |
Tveir í haldi vegna vopnaðs ráns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
HIÐ BLÆÐANDI HJARTA...
..Nicolas Sarkozy er töluvert í ætt við sama líffæri hjá Búska forseta USA þegar kemur að málefnum fanga og náðunum þeirra. Þrátt fyrir hefð að náða fanga á Bastilludaginn þ. 14. júlí ætlar hann ekki að fylgja henni.
"Forsetinn segir þó hugsanlegt að hann eigi eftir að náða fanga við sérstakar aðstæður. Stökkvi til dæmis dæmdur maður í Signu til að bjarga þremur börnum frá drukknun".
Krúttleg kaldhæðni hjá forsetanum. Takið eftir, þremur börnum, ekki tveimur eða fjórum. Bara svo það sé á hreinu.
Maðurinn er einn tilfinningavöndull.
![]() |
Sarkozy neitar að náða fanga á Bastilludaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
EITT HÚS Á MANN, EITT HJÓL Á MANN...
..og eitt barn á mann. Mikið rosalega á ég erfitt með að skilja kínversku "barneignarlögin" sem bönnuðu fólki að eignast fleiri en eitt barn á árunum 2000-2005. Nú ætla þeir að hækka sektir á efnameiri einstaklinga sem brjóta lögin en því fólki hefur lítið munað um að greiða sektir. Ég næ varla að setja mig inn í aðstæður fólks sem ekki ræður því sjálft hversu mörg börn það eignast. Það er líka vitað að útburður og morð á stúlkubörnum hafa snaraukist vegna takmörkun stjórnvalda í barneignarmálum, enda líf stúlkubarna töluvert minna virði en drengja.
Úff, skelfilegt hreint.
![]() |
Barneignalögin skapa spennu á milli stétta í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
Í SPILARANUM ERU..
...lög með húsbandinu sem ég setti inn um daginn, en gleymdi að láta ykkur elsku bloggvinir mínir, vita um.
Lag eitt er gamall blús sem húsbandið tók upp að gamni sínu og spilar á öll hljóðfæri nema trommurnar sem hinn góðkunni japanski trumbuslagari Kawei gerir góð skil.
Lag tvö er af plötunni "Starlight" og er eitt hið væmnasta sem viðkomandi tónlistarmaður hefur sett á plast. Það er að segja svona rómantisk hippaballaða.
Lag þrjú er af sömu plötu "Facing the world" svo kölluð sjálfskoðunarþerapía.
Lag fjögur er búið að vera í spilaranum lengst, er tekið upp í Japan eftir frækilega frammistöðu í Jónasar R. Jónssonar og húsbandsins í Budokan Hall í Tokyo.
Verði ykkur að góðu addna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 8. júlí 2007
TITILL Í SÍMASKRÁ..
Húsbandinu fannst stundum að hann þyrfi að "snattast" mikið, enda var ég þekkt fyrir að nenna illa í sumar tegundir af útréttingum. Hvað um það. Fyrir nokkrum árum síðan vildi hann undirstrika stöðu sína á heimilinu og þegar Símaskráin kom út þá stóð þar Einar V. Hjartarson, sendill.
Þessu mundi ég eftir þegar ég las komment við einni færslunni minni áðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 2987935
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr