Leita í fréttum mbl.is

EITT HÚS Á MANN, EITT HJÓL Á MANN...

1

..og eitt barn á mann.  Mikið rosalega á ég erfitt með að skilja kínversku "barneignarlögin" sem bönnuðu fólki að eignast fleiri en eitt barn á árunum 2000-2005.  Nú ætla þeir að hækka sektir á efnameiri einstaklinga sem brjóta lögin en því fólki hefur lítið munað um að greiða sektir.  Ég næ varla að setja mig inn í aðstæður fólks sem ekki ræður því sjálft hversu mörg börn það eignast.  Það er líka vitað að útburður og morð á stúlkubörnum hafa snaraukist vegna takmörkun stjórnvalda í barneignarmálum, enda líf stúlkubarna töluvert minna virði en drengja.

Úff, skelfilegt hreint.


mbl.is Barneignalögin skapa spennu á milli stétta í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, það væri sko skrýtið að lifa í þeirra heimi. Við erum blessunarlega frjáls hér á landi þó svo okkur finnist stundum að aðrir ráði of miklu. Ég ætla að hlusta á lögin á morgun.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2007 kl. 22:13

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sæl, Jenný Anna. Hér gæti lesandinn haldið, að kínverska bannið við því að eignast fleiri en eitt barn hafi aðeins verið í gildi á árunum 2000-2005. Í raun komst þessi stefna á um tveimur áratugum fyrr. "Deng Xiaopeng vék lauslega að eins-barns stefnunni í ræðu 1979, og þeirri stefnu var framfylgt um gervallt landið 1981. "Tæknileg útfærsla" á takmörkun barneigna fylgdi í kjölfarið tveimur árum síðar. Þessi útfærsla, sem enn er í fullu gildi [skrifað 1993, innskot JVJ], krefst þess að konur á barneignaaldri gangi með lykkjuna þegar þær hafa átt eitt barn, hjón með tvö börn skuli sæta vönunaraðgerð (sem oftast er gerð á konunni, þótt kynferði sé ekki tilgreint í lögunum) og að fóstri skuli eytt hjá konum sem verða þungaðar án heimildar." (Aðeins eitt barn eftir Steven W. Mosher og Chi An. Vaka-Helgafell, 2. prentun, 1997, s. 6). Ég hvet þig og aðra til að lesa þá vel skrifuðu bók, sem hér var vitnað til, - þetta er mikil örlagasaga í lífi kínversku þjóðarinnar.

Ég er sjálfur að blogga um þetta sama mál á þessari vefslóð. - Með kveðju,

Jón Valur Jensson, 8.7.2007 kl. 23:20

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

...að sjálfsögðu er það konan sem er vönuð. Karlinn gæti viljað eignast börn með næstu konu. Ég held ég fari að sofa, er greinilega eitthvað pirruð

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 23:41

4 Smámynd: Ester Júlía

Þetta er skelfilegt skelfilegt :(.  Ég las bókina "Aðeins eitt barn" og mæli sterklega með þeirri bók fyrir þá sem vilja setja sig inn í aðstæður þær sem gilda um barneignir í Kína.

  Knús til þín Jenný..

Ester Júlía, 8.7.2007 kl. 23:57

5 Smámynd: Rebbý

já, ótrúlegt hvað á fólk er lagt - skelfilegt að sjá ekki annað fyrir sér en losa sig við barnið sé stúlkubarn fætt.

Rebbý, 9.7.2007 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.