Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

EIN FÆRSLA ENN OG SVO EKKI MEIR..

Ég á bloggvaktinni í gærkvöldi!

...fyrr en eftir miðnætti.  Muhahahahaha Jóna mín!  Ég er að farast úr bloggisma.  "Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart blogginu og að okkur varð orðið um megn að stjórna eigin lífi".  Ég þarf að fá mér fólk til að þrífa fyrir mig, fara í þvottahúsið og kokk í eldhúsið osfrv.  Svo ég geti bloggað.  Ég blogga líka soldið mikið fyrir hana Jónu (www.jonaa.blog.is)  bloggvinkonu mína en henni finnst gott að sleppa við að ganga frá í eldhúsinu og að sinna börnunum sínum og lesa bara bloggið mitt í staðinn.  Fyrir utan hina sem koma þá blogga ég fyrir Maysuna mína sem segist vera húkkd á síðunni minni og fer beint í hana þegar hún kemur heim á kvöldin.

22

Ég er búin að vera að hugsa og uppúrvelta mér í allt kvöld út af Cheeriosi.  Sko pökkunum.  Ég hef borðað þetta morgunkorn frá æskuárunum með reglulegu millibili.  Alveg frá því að ég byrjaði að glápa á umbúðirnar hefur verið Cheerios-diskur framan á umbúðunum og jarðaberjum stráð yfir.  Nú langar mig að vita hvort einhver sem hér ráfar hefur borðað jarðaber út á Cheerios?  Mér finnst eins og það hafi örgla enginn gert það.  Eins og ég sagði í fyrri færslu þá er ég sk. bakgrunnsmanneskja og pæli í litlu hlutunum í heildarmyndinni.  OMG ég ætla að prufa jarðaberin á morgun.  Ég meina hvaða roluháttur er þetta?  Af hverju er ég að velta mér upp úr þessu í staðinn fyrir að skjóta á það og prufa.  Vera snyrtileg en samt soldið væld eins og segir í ljóðinu.  Látum okkur horfast í augu við hinar stóru hættur lífsins.  Prófum jarðaber á morgunkornið það er ekki eins og það þurfi skömmtunarmiða í Hagkaup til kaupa á fyrirbærinu!

 


ÉG LIFÐI AF....

 22

..þvottahúsferðina þrátt fyrir að hafa lent þar í skæðum ævintýrum.  Það kom maður frá Orkuveitunni til að loka rafmagninu hjá fólki í húsinu (sem betur fer ekki mér) og ætlaði bara að æða í það þarna niðri að mér ásjáandi.  Hann fræddi mig um þetta pakk sem greiðir ekki sitt rafmagn á réttum tíma og gerir það að verkum að hann er eins og hundsspott út um allar trissur.  Hm...ég marg reyndi að stoppa manninn af og benti honum á að skilja eftir miða svo viðkomandi fólk gæti hringt þegar það kæmi heim.  Ókídókí sagði hann eftir hálftíma þras við mig rétt eins og ég væri skuldarinn, ég geri það þá en það er eins gott fyrir þetta fólk að borga á morgun sagði hann ógnandi við mig.  Úff ég svona meðvirk eins og ég er enda á hæli með þessu áframhaldi.  Mér leið eins og börðum hundi.  Konan sem átti að loka hjá skellihló þegar ég sagði henni frá þessu og sagðist ganga frá þessum rúmlega 3000 kalli á morgun (vá hvernig er maðurinn við fólk sem skuldar mörg rafmögn? hehe).

Ég sá sem sagt ekki könguló gott fólk, ekki eitt einasta kvikindi en rykrotturnar voru fjórar og andstyggilegar allar saman.  Þarna voru líka þrjár eðlur, grænar að lit.

Okokok..ég er að ljúga þessu með eðlurnar, þær voru ekki þrjár heldur ein og sú var blá að lit.  Ég hélt nottla á kvikindinu á meðan húsbandið smellti af.

Síjúgæs!


NAUÐSYNLEGUR LÆKNIR Á HVERT HEIMILI

small (1)

Hann www.ragnarfreyr.blog.isþe matglaði læknirinn og bloggvinur minn er að gera mig brjálaða.  Hann setur inn hverja dásemdina á fætur annarri í kræsingum og ég er alltaf svöng eftir að ég er búin að lesa færslurnar hans.  Nú er það Pavlova.  Það eru terturnar hérna fyrir ofan.  Djísús ég er sykursjúk og má ekki svona marengsdæmi eitthvað.  Lífið er tík og ekki bara pólitik.  Þetta er að fara verulega illa með mig.  Ég ætla samt að baka svona Pavlovu næst þegar ég svindla en það gerir ég reglulega með löngu millibili og ég brýt af mér með mjög einbeittum og allt að því agressívum brotavilja.

Annars eru uppskriftir mannsins vart af þessum heimi margar hverjar.  Ragnar Freyr hefur bjargað lífi mínu í kjúklingadeildinni svo eitthvað sé nefnt.  Varíasjónirnar eru óteljandi.

Konan hans er ekki síðri kokkur þegar hún kemst að í eldhúsinu (er í lagi með okkur hin? Mörg hver á stöðugum flótta undan eldavélinni).

Ég hef eldheita matarást á þessum hjónum og ég þekki þau ekki nokkurn skapaðan lifandi hræranlegan hlut.

Namminamm!


ÞVOTTAHÚSIÐ NÆSTA!

23

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan, lenti ég í alvarlegum raunum fyrir ekki svo löngu síðan þegar ég rakst á könguló í þvottahúsinu.  Reyndar var köngulóin ekki könguló heldur rykrotta sömu stærðar og Amasonköngulærnar (þessar sem éta fugla, þið vitið).  Nú af skiljanlegum ástæðum reyni ég að fara eins sjaldan og kostur er í þvottahúsið vegna hættu á hittingi við köngulær og aðra óvætti.  Rykrottukvikindi þótt dautt sé getur gert mig jafn hrædda og könguló.  Það er mikið af þeim í þvottahúsinu. 

Nú er ég sem sagt á leið í þvottahúsið skjálfandi á beinunum.  Ég sagði húsbandinu að ef ég væri ekki komin upp um kvöldmatarleytið að senda þá út hjálparsveitina.  Maðurinn hefur á þessu fullan skilning og mun að sjálfsögðu kalla eftir hjálp.  Ef ég blogga ekki meira í dag þá er það ekki vegna efnisskorts heldur einfaldlega af því ég verð dúsandi og snarlæst inni í þvottavélinni eftir magnaðan flótta við eiturköngulær sem éta konu eins og mig í forrétt.  MuhahahahahaW00t


BLOGGISMINN AÐ DREPA MIG

22

Ég er að drepast úr bloggisma.  Mér liggur svo margt á hjarta.  Ég nenni heldur ekki að gera neitt af því sem ég á að gera, er bara búin að planta mér við tölvuna.  Sko ég var að velta því fyrir mér hvort það sé almenn vitneskja um hvað er gert við öll atkvæðin þegar búið er að kjósa, skoða útstrikanir og allan þann ballett?  Ef það er almenn vitneskja þá er ég óalmennileg í meira lagi því ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma vitað um afdrif allra þessara pappírssnepla.  Þetta er góður skiki af skógi og kominn tími á að kjósa vefrænt.  Burtséð frá því, eru atkvæðin brennd, sett í endurvinnslu (þá hvar?) eða er þeim staflað upp í Þjóðarbókhlöðu eða á Skjalasafninu? Ég er bakgrunnsmanneskja, horfi alltaf af mikilli athygli á það sem er að gerast á bak við aðalleikarana í bíómyndum.  Þess vegna er ég svo upptekin af örlögum atkvæðanna eftir kosningar.  Segið mér frá fólk!

Bloggvinatiltekt vikunnar hefur farið fram.  Ég er fjórum bloggvinum fátækari en þúsund sinnum ríkari samt því mínir alvöru bloggvinir eru mega!  Þeir eru skemmtilegir, alvarlegir, hádramatískir, brjálæðislega fyndnir, grátbroslegir og ALDREI leiðinlegir.


SKÁL Í NAFNI ALLAH

22

Vó, vó!  Það er eins gott að passa sig ef maður ætlar í heimsókn til föðurlandsins Írans.  Kúrdi frá Íran sem búsettur er í Drammen í Noregi var að heimsækja móður sína í Baneh í Íran en lögreglan sá hann drekka bjór.  Hann var færður á löggustöðina og fékk 130 svipuhögg fyrir tiltækið og voru þau afhent á staðnum.

Ég er ekki á leiðinni til Írak en ef svo undarlega vildi til þá er eins gott að ég haldi mér edrú áfram og í góðum bata því ég vil alls ekki láta berja mig í sumarfríinu.

Úff umboðsmenn Allah svo svakalega refsiglaðir eitthvað.


mbl.is 130 vandarhögg fyrir að drekka bjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FARÐU WATSON, FARÐU!

21

Nú þarf heimavarnarliðið að skella sér í kraftgallana með Björn í fararbroddi, geysast niður á uppfyllingu og garga:  "Go home you whalelover Watson you" og leggja þunga í orðin.  Án gríns af hverju erum við að púkka upp á hvalveiðar svona yfirleitt?  Þetta er blóðug atvinnugrein í orðsins örgustu, vond lykt og svona og svo vill enginn kaupa hvalinn.  Það er liðinn tíð að það teljist til einhvers "hvalreka" að geta keypt svona ódýrt kjöt.  Það er lýsisbragð af hvalkjöti ég fer ekki ofan af því.  Mamma var nokkuð slungin í að plata hvalkjöt ofan í fólk með því að segja að þarna færi nautakjöt.  Mamma er listakokkur og flestir trúðu henni og úðuðu í sig hinu falsaða nautakjöti.  En ekki hún ég.  Fann lýsislyktina í mílnafjarlægð.  Ég er jafn slungin og mamma.  Ég ber enga óttablandna virðingu fyrir Watson, hann má hamast eins og hann vill.  Mér finnst aðeins að það sé ótrúlegur barnaskapur og þvermóðska að halda áfram að veiða hvali einkum og sérílagi með tilliti til þess að engum (nánast) langar í hann.  Leyfum krúttunum að gúffa í sig fiski sjávar í tonnavís.


mbl.is Skip Sea Shepherd leggur af stað áleiðis til Íslands í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AF HVERJU ÞENNAN LEIKARASKAP?

22

Jón og Geir eru að leika sér.  Þeir ætla að vinna saman áfram en láta eins og það sé voða erfitt að komast að niðurstöðu.  Á meðan halda allir niðri í sér andanum.  Eru það örlög okkar að búa við sömu ríkisstjórn næstu fjögur árin?  Það held ég að sé nokkuð ljóst.   Það er hægt að lýsa frati á Framsókn í kosningum, hreinlega afmá þá út af hinu pólitíska sviði en áfram halda þeir.  Við skulum ekki halda kjósendur góðir að við höfum eitthvað um það að segja.  Nanananabúbú segja þeir Jón og Geir og senda okkur langt nef. 

Völvan hennar Gurríar bloggvinkonu spáði einhverju um aðkomu Frjálslyndra að málinu.  Nú bíðum við spennt eftir að þeir verði kallaðir til.  Þetta er nefnilega megamögnuð völva þarna hjá þeim á Vikunni.

Nanananabúbú!


SÍÐHVÖRF Í GANGI?

22

Ég held að ég sé í síðhvörfum.  Síðhvörf er hin hliðin á fráhvörfm hjá ölkum og koma oft eftir töluverðan edrútíma.  Ég er ekki sérfræðingur en ég veit að ég verð að gæta mín með svefn, mat, hreyfingu ofl.  Nú í aðdraganda kosninganna hefur eitt og annað farið úr skorðum. S.s. svefntíminn, maturinn borðaður eftir minni og ég hef farið út að labba þegar ég hef munað eftir því.  Týpískur alki að verða heltekinn af einhverju.  En þannig hef ég nú alltaf verið líka löngu fyrir tíma alkóhólisma.  Nú síðhvörf eru spennuástand og þreyta. Það hringsnýst allt í hausnum á mér.  Ég setti mjólkina inn í pottaskáp í fyrradag og leitaði eins og brjálæðingur og fann hana daginn eftir þegar ég var búin að kaupa nýja. Ég man ekki hvort ég er búin að sprauta mig með insulininu þegar spennan er hvað verst.  Ég fer með ruslapokann út í bíl, gerði það í gær og var komin í Hagkaup þegar ég fattaði að ég var með sorpið meðferðis.  Ég hef í annan tíma gengið á ísskápinn sem stendur ca. 3 cm. út úr innréttingunni (hæfileikarík og hittin hún Jenny), ég hef farið inn í vitlausa bíla, setið og beðið eftir að mér sé svarað í símann án þess að hafa slegið inn númerið.  En ég þekki ástandið og kann að bregðast við því.  Það má sjá á því að kl. er orðin 02,00 og ég fíbblið sit hér og skrifa.´

Mjólkin er komin inn í ísskáp, ruslið á sinn stað, ég þarf ekki að hringja og ég er búin að lesa AA-bókina mína upp til agna.  Á morgun fer ég á fund og ekkert kjaftæði með það.  Guð gefi mér æðruleysi.  OMG.

GúddnætbeibísHeart


BÚIN Á ÞVÍ...

22

..eftir allan spenningin í kringum kosningarnar.  Ég hef farið seint að sofa, vaknað snemma, hugsað um pólitík, bloggað um hana og dreymt um hana.  Nú eru kosningarnar að baki og ég lyppaðist niður.  Úrslitin ljós og virðist ekki vera mikið gleðiefni ef rétt er að Sjálfstæðisflokkurinn sé að reyna að lappa upp á stjórnina með Framsókn illa laskaða.  Geir sagði í sjónvarpsfréttum í kvöld að honum lægi ekkert á, hann þyrfti ekkert að flýta sér.  Halló vinur, hvað með okkur sem kusum? Skiptum við engu máli þegar við erum búin að greiða atkvæði?  Allt í einu er þetta bara einkamál í héraði hjá Geir.

Þrátt fyrir gífurlega andlega þreytu, vökur og vesen gat ég ekki annað en hlegið með sjálfri mér þegar ég hlustaði á Guðna Ágústsson (ekki að ég vilji honum neitt illt) tala við Ögmund um stjórnarmöguleikann VG-Samfó-studd af Framsókn.  Guðna var svo misboðið og hann var svo sár og hann harðneitaði að taka þessari hugmynd sem skellt var fram í bríaríi í afmælispartíi í gær öðruvísi en niðurlægjandi (ég skil hann nú smá karlinn).  Það eru bókstaflega allir að fara á taugum þessa dagana.

Ég sendi Geir hugskeyti hér með, bið hann um að hraða stjórnarmynduninni og taka með sér einhvern þeirra flokka sem kjósendur gerðu ekki heiðarlega tilraun til að þurrka út.  Þeas ef VG eða Samfylking hafa áhuga svona yfirhöfuð.   Svona Geir...komaso


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2987751

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.