Leita í fréttum mbl.is

Allsber sannleikurinn

Glatað fyrir þennan náfrænda vinar míns, Erils Vandræðasonar, að koma í blöðunum þó hann hafi skroppið allsber í búð.

Krúttið, vona að hann láti sveppagróður í friði það sem eftir er.

En ég pæli oft í rosa furðulegum hlutum, kannski af því ég er stórfurðuleg sjálf, ég veit það ekki.

Ég las þessa frétt um nakinn manninn og fór að hugsa hvað hlutir væru í raun rangsnúnir og ólógískir ef maður veltir fyrir sér lífsins fyrirkomulögum.

Við fæðumst alsber - og höfum ekkert vit á að vera með einhver leiðindi yfir því.

Svo er okkur hent í föt til að halda á okkur hita og svo er okkur kennd blygðunarsemi.

Ekki má sjást í píkur, typpi né rassa.  Almáttugur minn á fjallinu.

Þetta er nakinn sannleikurinn og þannig er það nú bara.

Ekki að ég hafi uppi nein áform um að hætta að ganga í fötum, ónei, en það er vegna þess að ég er með fatablæti, fer ekkert án þeirra klæða sem ég hef komið mér upp með ærinni fyrirhöfn.

Hefur ekkert með neina blygðun að gera.

En hvað um það þegar ég var gelgja fékk ég martraðir á martraðir ofan um að ég væri allsber úti á götu.

Alveg: Mig dreymdi að ég væri í góðum fíling í Austurstræti (já þetta er dæmi, draumadæmi), í sól og góðu veðri og ég var komin að því að fara í Eymundsson eða Gevafótó, jafnvel á Hressó eða inn í London dömudeild (nei, lýg því, þar voru kerlingarföt).

Ég sem sagt labbaði þarna alveg heljarinnar spræk í draumnum og virti fyrir mér mannlífið.  Var alveg glöð með mig og var máluð og svona og dinglaði augnhárunum framan í mögulega kærasta, sem var urmull af í strætinu.  Ég var  í stuttu máli dropp-dedd-fokking-gjorgíus eins og alltaf.

Verður mér þá ekki litið niður á tærnar á mér og sé að ég er skólaus!

Nei, perrarnir ykkar ég var í fötum, en ég var skólaus!

Þetta var á tímum pattformaskóbúnaðar og buxurnar voru 15 cm. lengri út af því.

biba

Ég stóð þarna sem sagt í Austurstrætinu skólaus með gallabuxurnar á eftir mér sem lækkun skóleysis nam.

Gallabuxnadregillinn náði aftur að Lækjartorgi - ég sver það svona nánast.

Jiminn má ég þá heldur biðja um að dreyma mig alsbera á árshátíð drykkjumannafélagsins í Hálfvitahreppi.

Það væri beinlínis léttir get ég sagt ykkur og ég lýg því ekki.

Farin í eftirmiðdagsbænir.

Úje.


mbl.is Nakinn og til vandræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Færslurnar þínar eru oft eins og skemmtilegar smásögur og þá verður athugasemdin ekki önnur en: skelfing var gaman að lesa þetta. :)

Finnur Bárðarson, 19.9.2009 kl. 17:57

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert bara frábær frænka og þessir skór eru geggjaðir, og svo mikið veit ég að  þú elskar þennan lit, elskan, og af því þá hefur þú auðvitað verslað hjá Báru bleiku.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.9.2009 kl. 19:40

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já... þú ert yndislega furðuleg

Jónína Dúadóttir, 19.9.2009 kl. 20:22

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Finnur: Takk fyrir þessi orð.

Milla: Ónei, ekki minn litur hehe.

Jónína: Ég furðuleg: Nei, nei, algjörlega streight.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.9.2009 kl. 22:21

5 Smámynd: Karl Tómasson

Takk fyrir þessa skemmtilegu færslu frænka.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 19.9.2009 kl. 23:56

6 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Flottir skór, átti sona turkisbláa!

Hrundi einu sinni marflöt yfir Austurstræti endilangt, ...... af því ég steig í helv. gallabuxnaslörið.  Var samt ekkert búin að úða í mig villtum sveppum eða þannig sko.

Hef aldrei verið nakin ......... til vandræða.

Takk fyrir brosið, þú kemur í veg fyrir að brosvöðvar stirðni svo ekki er hætta á neinum harðsperrum þar á bæ!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 20.9.2009 kl. 02:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985777

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband