Leita í fréttum mbl.is

Má biðja yfirgrillmeistara frjálshyggjunnar að grjóthalda saman á sér þverrifunni?

Icesave, ég veit ekki hversu oft ég hef hamrað þetta orð á lyklaborðið.  Svei mér ef ég þarf ekki að endurnýja stafina hjá mér. 

Hér eftir mun ég breyta til og kalla þessa hugarafurð klikkhausanna í Landsbankanum Klakavörn (jafn mikið öfugmæli og hið enska nafn).

Get ekki meira.

En..

Að brandarakarlinum Hannesi H. Gissurarsyni.

Hann var í útvarpinu í morgun, þessi yfirgrillmeistari frjálshyggjunnar.

Ef eitthvað kæmi af viti frá þessum frjálshyggjufrömuði sem btw predikar um óhefta markaðshyggju og lágmarks afskipti ríkisins úr öruggu sæti opinbers starfsmanns, þá færi ég að verða alvarlega áhyggjufull.

Nú prédikar yfirgrillmeistarinn nýja speki.

Ef einhver á að biðjast afsökunar á einhverju þá er það Steingrímur J. og þeir sem gerðu Icesave-samningana.

Jabb, kveiktu endilega í húsi og gagnrýndu svo glataðar vinnuaðferðir slökkviliðsins.

Slökkviliðið er auðvitað aðal sökudólgurinn í þessu subbumáli öllu.

Hannes Hólmsteinn þú getur ráðið þig á Þorrablót og árshátíðir mín vegna með þín frábæru skemmtiatriði enda fer ég aldrei á svoleiðis samkomur.

En þar fyrir utan þá vil ég biðja þig kurteislega að grjóthalda saman á þér þverrifunni og skammast þín.

Takk fyrir kærlega.


mbl.is Fylgst náið með framvindu Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og af hverju var verið að ræða við mannfýluna?

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 11:58

2 identicon

Þessi pistill hjá þér um H.H.G.  Eru orð í tíma töluð.  Maðurinn er einn af þessum sem ekki þekkja sinn vitjunartíma.  Þ.e. að vera sígjammandi þegar fólk er löngu hætt að hlusta á hann.  Professorinn ætti að reyna að næla sér konu sem að getur haft vit fyrir honum.

J.þ.A (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 12:03

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hannes Hólmsteinn þú getur ráðið þig á Þorrablót og árshátíðir mín vegna með þín frábæru skemmtiatriði enda fer ég aldrei á svoleiðis samkomur.

En þar fyrir utan þá vil ég biðja þig kurteislega að grjóthalda saman á þér þverrifunni og skammast þín.

Æ nei Jenný ég vil ekki sjá þetta gerpi á þorrablóti, það myndi eyðileggja fyrir mér alla skemmtun. 

Undir þetta síðasta tek ég af fullum heilindum.  Kunna þessir siðblindingjar ekki að skammast sín??? Nei því miður, þeir geta ekki séð eigin sök.  Þess vegna á ekkert að vera að hampa þeim hvað þá vera að ræða við þá í fjölmiðlum. Við eigum þó að minnsta kosti skilið að vita og heyra sem minnst frá þeim. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.8.2009 kl. 12:14

4 identicon

Algjörlega sammála þér Jenný enda minntist ég á þetta sama í pistli mínum í gær. HHG er svo gjörsamlega siðblindur og firrtur að jaðrar við glæp. Maðurinn var hlæjandi í stjórn Seðlabankans (fyrir tilviljun) þegar hrunið varð á vakt sjálfstæðisflokksins. Það er mikilvægt að banna þann flokk. Hann hefur ekkert með stjórnmál að gera. Þetta er klúbbur fólks sem veitir hvert öðru stöður og góð laun.

Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 12:15

5 identicon

Komst að svipaðri niðurstöðu, Jenný. Alveg dæmalaus, en að rigga hann upp á þorrablóti er ekki gott. Annað hvort yrðu allir edrú á stundinni eða út myndi brjótast slagsmál um alla veggi.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 12:17

6 identicon

Það er mikil gæfa fyrir íslendinga að hafa slíkt göfugmenni, mannvin  og mannvitsbrekku sem doktor Hannes er. Bloggari gerir grín að  Hannesi Hólmstein og er það miður.

Nú bíður heimsbyggðin agndofa eftir bók um íslenska efnahagshrunið eftir þetta andlega ofurmenni, þennan kjörson Íslands.  Spár gera ráð fyrir að 100 miljón eintök seljist af þessum vísdómi, enda hver vill ekki sitja við fótskör meistarans ?

Gleymum því ekki að þessi snillingur kenndi íslendingum að búa til fjármuni úr engu - og það mikla.  Geri aðrir betur.  Húrra húrra fyrir Hannesi.

"Ábyrgðarmaðurinn" (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 12:23

7 identicon

ísbjörg betri en klakavörn. auk þess færri atkv. blessuð vertu ekki að eyða púðri á hh.

guðrún ægisdóttir (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 13:40

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

HHG er stór skrítinn.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.8.2009 kl. 14:10

9 Smámynd: hilmar  jónsson

Afhverju er þetta fífl metið hæft til þess að kenna í Háskólanum ?

hilmar jónsson, 24.8.2009 kl. 14:26

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Glæsileg fyrirsögn á þessum pistli. En manni finnst nauðsynlegt að heyra í HHG reglulega til að minna fólk á hvað alls ekki á að endurtaka hér á landi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.8.2009 kl. 14:39

11 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Þegar þessi "yfirgrillmeistari" opnar munninn um aðra en sjálfan sig, þá er hann að verja bestu og mestu vini sína Kjartan og Davíð.

Vörnin er svo yfirgengilega heimsk og úr öllum takti, að manni dettur helst í hug að verjandinn sé enn á sporbaug um græðgishnöttinn, með hinum geimverunum.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 24.8.2009 kl. 14:45

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þegar vinskapur er kominn á þetta stig er hann nánast orðinn sjúklegur

Finnur Bárðarson, 24.8.2009 kl. 15:18

13 Smámynd: Sævar Einarsson

Svona svona Aðdáandi Hannesar Hólmsteins gefur sig fram hann á amk einn að"dá"anda smellið á linkinn.

Sævar Einarsson, 24.8.2009 kl. 15:20

14 identicon

Varð einmitt þess "heiðurs" aðnjótandi að hlusta á þessa elsku í morgun.  Er ekki frá því að hann hafi bókstaflega talað út um rassg.... á Davíð (afsakið dónaskapinn,en ég tel hann nauðsynlegan).  Það eina sem hann gat sagt var Davíð sagði.... og Davíð gerði.... ja eða Davíð gerði ekki.....

Elsku kallinn er bara svona húsbóndahollur enda blífastur í svartholinu

Erna Kristín (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 15:20

15 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Kikkhausanna klakavörn

kyngja verða Íslandsbörn.

Frjálhyggjunnar framagosi

fær nú ekki varist brosi.

Að grillmeistarans glóð varð brenna

er greinilega þér að kenna.

Bláa höndin brást rétt við

bara að skilið hefðu þið.

God took and god gave

the good Icelanders Icesave,

svo þeir mættu saman reyna

sönnun þess að veginn beina

Þekkir Hann (es) í þaula einn

Því skal ekki efast neinn,

heldur hætta að kveina og kvarta

og klakavörn loada í sitt hjarta.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2009 kl. 15:34

16 Smámynd: Garún

Hahaha....Ég heyrði þetta líka en hélt að  þetta væru fóstbræður að grínast!  Ok svo þetta var alvöru viðtal!  Right!  Og ég fer aftur útí garð að moka holu, er búin að vera að gera það í allt sumar og það er það eina sem meikar sens í þessum heimi!  Úff

Garún, 24.8.2009 kl. 16:43

17 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hannes talar með þverrifunni. Sumir aðrir tala með langrifunni.Hver hefur sinn hátt á.

Sigurgeir Jónsson, 24.8.2009 kl. 17:33

18 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hannes á horninu lætur ekki deigan síga. Davíð allt og ekkert meira með það.

Helga Magnúsdóttir, 24.8.2009 kl. 19:49

19 identicon

Væri til of mikils mælst, að fara fram á það við blogghöfund, að hann haldi líka saman á sér þverrifunni?

Því fyrr sem við getum þaggað niður í fólki sem lætur pólitískar skoðanir ráða, fremur en hagsmuni þjóðarinnar, því fyrr getum við tekið á málunum og sótt glæpamennina til saka.

Við þurfum fyrst og fremst að afheimska þjóðina, og það í hvelli.

Ekki slæmt að byrja á þessari síðu?

Hilmar (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 22:05

20 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Getum við ekki bara selt HHG sem skemmtikraft til Bretanna? Það er eiginlega ekki hægt að láta hann troða uppá þorrablótum - fólk á þorrablótum er líka fólk.......

Skyldi hann vera ástfanginn af Davíð?

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 25.8.2009 kl. 00:35

21 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Ég vil endilega að hugmyndarfræðingur Ránfuglsins tjái sig sem mest, því kjósendur XD skammast sýn rosalega fyrir hann, Kjartan og Davíð.  Látum hann blaðra & blaðra, þá hrynja atkvæði af FLokknum sem er hið besta mál.  Hver kýs FLokk sem veldur "algjöru hruni í samfélaginu með því að gefa innmúruðum SPILTUM og siðblindum aðilum blint FRELSI til að RÚSTA okkar samfélagi???  Hvað er fólkið sem kýs XD í áskrift eiginlega að pæla???  Kan það ekki að skammst sýn fyrir framferði & stefnumál FLokksins???  Mér sýnist ekki, XD þarf að fara í hreinsun og henta Hannesi & Kjartani ÚT sem fyrst...!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 25.8.2009 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband