Leita í fréttum mbl.is

Skoðið, njótið og uppskerið meltingartruflanir

Icesave er að nálgast endalokin er fyrirsögn viðtengdrar fréttar.

Ég er hins vegar á því að nú sé Icesave rétt að byrja.  Við eigum eftir að borga óskapnaðinn.

Icesave, Kaupþing, Straumur og Glitnir eru minnisvarðar um skelfilegasta tímabil Íslandssögunnar á síðari tímum.

Ég er enn að velta fyrir mér hvernig þetta gat gerst?  Hvernig stjórnvöld gátu látið þetta gerast því ég hef engar væntingar til fjárglæframannanna sjálfra, glæpamenn ganga eins langt og þeim er fært að komast.

Ég birti Kaupþings myndbandið í síðustu færslu.  Þar gefa hugmyndasmiðir græðgivæðingarinnar áróðursmeisturum þúsundáraríkis Hitlers ekkert eftir í hugmyndaauðgi.

Svo sá ég myndbandið hér fyrir neðan á netinu (inni hjá Agli Helga) og nappaði því.

Vona að það fari sem víðast.

Það er greinilega hægt að múgsefja heila þjóð.

Nánast.

Ég lýsi mig reyndar saklausa af grægishegðuninni, gróðærið fór að mestu leyti fram hjá mér.  Fyrir það er ég óendanlega þakklát.

Hef alveg nóg á samviskunni þó það bætist ekki við á mitt skrautlega syndaregistur.

En skoðið myndbandið.

Við megum ekki láta þessa andlegu vanheilsu ná tökum á þjóðinni aftur.

Guð á galeiðu, fjalli og bryggju segi ég bara.

Skoðið, njótið og uppskerið meltingartruflanir.


mbl.is Nálgast endalokin í umræðum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

var íslenskt viðskiptalíf í úrvalsdeild?

vitum alla vega nú að það mun spila utandeilda um sinn

Brjánn Guðjónsson, 24.8.2009 kl. 10:48

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

.. ég hlustaði á þetta myndband.. og svei mér þá ef ég fór ekki að trúa boðskapnum ;)

Óskar Þorkelsson, 24.8.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.