Leita í fréttum mbl.is

Aldrei hægt að fyrirgefa

Flott framtak hjá Mogga að setja inn Icesave-reiknir.

Það er ef fólk hefur taugar til að velta sér upp úr þessum hroða.

Eftir fréttir og Kastljós gærdagsins ásamt öðrum fréttum af því sem hér hefur gerst er mér algjörlega nóg boðið.

Ég hef ekki tölugreind sem nægir mér til að meðtaka þessar stóru upphæðir.

Ég skil núna að ég þarf að eiga tæpar 700 þúsund til að borga minn hluta í gjaldþroti Björgólfs.

Meira til, til að slengja út fyrir Icesave.

Almættið veit hvað Kaupþingsstrákarnir og allir hinir eru búnir að fokka miklu upp til að gera mig nánast gjaldþrota.

Þetta er orðið persónulegt.

Samt er ég ekkert svo rosalega reið út í glæpamennina og stórþjófana eins og ætla mætti.

Málið er að ef þú átt demantaverslun og skilur hana eftir opna og ferð í kaffi eða á skíði bara, þá er varla hægt að lá þjófunum sem láta greipar sópa á meðan er það?

Þess vegna beinist reiði mín fyrst og fremst að stjórnvöldum sem á þessum tíma bjuggu til umhverfið fyrir glæpina og að eftirlitsstofnunum sem sinntu ekki hlutverki sínu.

Þeirra ábyrgð er stór og svei mér þá ef það er nokkurn tímann hægt að fyrirgefa.


mbl.is Icesave-reiknir á Mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tel það hárrétt sem fólk er að segja núna, að Björgólfur Guðmundsson sé mesti viðskiptasóði íslandssögunnar og jafnvel allrar Vestur-Evrópu. Hann er gjörsamlega búinn að rústa orðspori fjölskyldu sinnar, ættingja og raunar allra íslendinga. Bretar keppast nú enda við að skrifa sóðalega sögu hans, allt frá því er Hafskip sökk. Og já, það er verðugt rannsóknarefni að finna út úr því hvernig hægt var að safna saman svona samviskulausum glæpalýð inn í Kaupþing.

Stefán (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 10:36

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Nei, það er aldrei hægt að fyrirgefa það. Það lengsta sem maður kannski kemst er að fyrirgefa fólkinu sem kaus þá af því að: fjölmiðlarnir voru svo lélegir.

María Kristjánsdóttir, 5.8.2009 kl. 10:37

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fyrirgefa, nei varla, lifa með, tilneydd.
Það sem er verst við þetta allt saman er að þetta heldur áfram því það tekur of langan tíma að gera þetta og gera hitt til að stoppa þessa menn af.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.8.2009 kl. 11:29

4 Smámynd: hilmar  jónsson

100% sammála Jenný og þetta er góð samlíking hjá þér, með að yfirgefa sjoppuna og skilja hana eftir opna fyrir glæpamenn .

Verum ekki það áttavillt að við gleymum því að þau stjórnvöld sem sátu, áttu að gæta hagsmuna okkar, en hleyptu þessu ógeði yfir almenning, eru í 1. sæti hvað varðar óvini þjóðarinnar..

Það gengur ekki að það fólk sitji áfram og sleppi undan ábyrgð , eða hagi sér nú á þann hátt eins og það hafi aldrei við völd verið, eða jafnvel kannist ekki við þá stefnu og framkvæmdir sem flokkar þess praktiserað.

Björn Bjarna er sorglegt dæmi um þetta, í allri þeirri ímyndarendurnýjun sem hann virðist vera á fullu í.

hilmar jónsson, 5.8.2009 kl. 12:43

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Praktikseruðu..hljómar betur..

hilmar jónsson, 5.8.2009 kl. 12:45

6 Smámynd: Eygló

VILLISVÍNAFLENSA. 

"...safna saman svona samviskulausum glæpalýð inn í Kaupþing."  Það er nú málið, það voru varla allir sem féllu inní þessa skilgreiningu, þegar þeir hófu störf.

Það voru bara nokkrir helsjúkir yfirmenn sem blésu siðleysisflensunni framan í aðra. Þeir smituðu áfram. Þannig gekk þangað til allir voru það alvarlega veikir að það varð "eðlilegt ástand" / normið. Þegar heilastöðvar meirihlutans eru orðnar óstarfhæfar umpólast viðmiðin og "hinir" verða bilaðir en allt í lagi má þá andlega fötluðu.

Eygló, 5.8.2009 kl. 13:02

7 Smámynd: Eiríkur Sjóberg

Góður pistill hjá þér. 

Ljóst er að það verður að minnsta kosti erfitt að fyrirgefa.

Ekki síst í ljósi þess að þeir sem ábyrgðina bera hafa ekki beðist fyrirgefningar!

Mér finnst ömurlegt og verst að horfa upp á þann flokk manna sem hér öllu réði ekki sýna vott af auðmýkt eða iðrun.  Þeir fremur reyna allt hvað þeir geta til að leggja stein í götu núverandi stjórnvalda!  Og því er sök þeirra meiri.  Við blasir að þeir eru skíthræddir um að nú riði einkahagsmunanet og valdakerfi til falls.  Og þeir svífast einskis til að slá ryki í augu fólks, benda á flísina í auga bróðurins fremur en bjálkann í eigin auga.  Slíka menn má þjóðin aldrei aftur kjósa yfir sig!  Það verður þjóðin að læra og muna.

Eiríkur Sjóberg, 5.8.2009 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband