Leita í fréttum mbl.is

Guđi sé lof fyrir lítil vandamál

 kókkassi

Hvađ er ţađ viđ Kók (akóla) sem gerir ţađ ađ verkum ađ fólk ánetjast ţví?

Ég er ein af kókfíklunum, reyndar sykurskerts, en ég fć beinlínis fráhvarfseinkenni fái ég ekki minn daglega skammt.

Ég skil ţetta ekki.

Ţađ er ekki eins og ţađ sé pólitískt korrekt ađ ţamba ţennan svarta drykk sem enginn ţekkir uppskriftina ađ.

Á tímum mikils áróđurs til ađ fá okkur til ađ lifa heilbrigđu lífi er ţađ beinlínis hjólhýsapakkslegt ađ vera í kókinu.

Strax á unglingsárunum var ég búin ađ koma mér upp ţróuđum kóksmekk.

Lítil kók, úr kćlikassa, međ glćrum stöfum í grćnleitri flösku var máliđ.

Ţađ vissi hvert barn ađ stór kók, međ hvítum stöfum og í bláleitu gleri var ódrekkandi viđbjóđur.

Kókiđ var drukkiđ međ Krummalakkrísröri á góđum degi ţegar vasapeningarnir voru vel úti látnir.

Nú er kókheimurinn ekki svipur hjá sjón offkors.

Plast, sykurskerđing og aldrei nógu kalt er beisíklí máliđ í dag.

Heimur versnandi fer.

En vitiđ ţiđ hvađ?

Ég verđ beinlínis ljóđrćn í hugsun, verđ vćmin og voteygđ ţegar ég rekst á fallegt grćnmeti í búđum.

Í gćr, guđ hjálpi mér, sá ég fallegan lauk.

Ha?  Ţađ gerist ekki oft.

Laukurinn lá ţarna, sléttur og fínn, óflagnađur og fagurskapađur.

Ég keypti fullan poka.

Svo í kvöld ţegar ég skar í salatiđ og opnađi ţennan dásamlega lauk ţá var hann rotinn ađ innan.

Svei mér ef ţetta er ekki kreppan.

Kókiđ ódrekkandi og grćnmetiđ villir á sér heimildir.

Sjitt engu er ađ treysta lengur á Íslandi í dag.

En guđi sé lof fyrir lítil vandamál.


mbl.is Stađa Coca-Cola styrkist á nýmörkuđum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Já heimur versnandi fer og lengi getur vont versnađ o.s.frv.    Ég var líka um árabil kókisti en eftir ađ kókiđ fór í 2 lítra plastumbúđir finnst mér ţađ ekki einu sinni gott lengur. Nú drekk ég Pepsí í áldós aftarlega úr kćlinum

, 21.7.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég fć nett áfall ef ţađ er ekki til Diet Coke í ísskápnum. Hendist út í búđ eins og fjandinn sé á hćlunum á mér. Ég sem nenni annars aldrei út í búđ.

Helga Magnúsdóttir, 21.7.2009 kl. 20:12

3 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Er ţetta ekki caffeiniđ í cokinu sem gerir ţađ ađ verkum ađ fólk verđur vitlaust ef ţađ á ekki kók?

Ég fć alltaf svo mikinn hiksta af kók - get ekki drukkiđ ţađ... sem betur fer

Hrönn Sigurđardóttir, 21.7.2009 kl. 20:17

4 Smámynd: Arnar Guđmundsson

EG DREKK KÓK OG LÍDUR VEL

Arnar Guđmundsson, 21.7.2009 kl. 20:22

5 Smámynd: Ţórdís Bára Hannesdóttir

Kók er hollt. Drekk light. Myndi drekka sykurkók ef ţađ vćri ekki svona fjári fitandi. Prins pólo og lakkrísrör međ er algjör sćla.

Ţórdís Bára Hannesdóttir, 21.7.2009 kl. 22:01

6 Smámynd: Eygló

Sagt er ađ ţetta sé ţađ sama og međ kaffiđ, enda hvort tveggja koffíndrykkir.

Ţessir fíklar drykkju hvađ sem vćri ef hćgt vćri ađ kalla ţađ kók/kaffi. Fráhvarf kemur 6-12 tímum eftir síđustu "inntöku"  Koffín fćst EKKI í apótekum, ekki einu sinni gegn lyfseđli.

Sofi ég mjög lengi, vakna ég međ hausverk.  Ţótt ekki séu komin fráhvarfseinkenni, dregur fíknin mann ađ efninu, ţ.e. til ađ halda viđ.

Eygló, 21.7.2009 kl. 22:19

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Er ţetta ekki eins og međ retturnar ?

I dont know what they put in it, but i shure like to smoke them..

hilmar jónsson, 21.7.2009 kl. 23:08

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

ef ég drykki kókakóla drykki ég kannski í grćnleitri glerflösku, en hef vaniđ mig af ţví sem og ýmsum öđrum (ó)siđum, eiginlega vaniđ mig af öllu (coming to think of it)  nema af kaffi og  karlmönnum

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.7.2009 kl. 23:53

9 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Ţar er ég nú skrefinu á undan Jóhönnu! Hef algjörlega vaniđ mig af karlmönnum. Á bara kaffiđ eftir og ţá getiđ ţiđ fariđ ađ kalla mig Hreinlaugu

Hrönn Sigurđardóttir, 22.7.2009 kl. 00:25

10 Smámynd: Arnar Guđmundsson

RITSKODUN RITSKODUNN Á MOGGABLOGGINU 11.,,

Arnar Guđmundsson, 22.7.2009 kl. 00:28

11 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Varstu núna fyrst ađ fatta ţađ?

Hrönn Sigurđardóttir, 22.7.2009 kl. 00:32

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Jenný Anna ég get sagt ţér ađ ég er búin ađ vera reyklaus í 4 vikur, ég hćtti á sama tíma ađ drekka Pepsimax.  Ég féll á pepsímax drykkjunni fyrir tveimur vikum.  Ţađ er erfiđara ađ hćtta ađ drekka sykurlausa kóladrykki en ađ hćtta ađ reykja. 

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 22.7.2009 kl. 01:09

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband