Leita í fréttum mbl.is

Úff

Ég var að blogga um það í gær að ég treysti engum á Alþingi Íslendinga.

Það gengur eiginlega ekki upp að treysta engum.  Það er ávísun á læknisheimsóknir.

Bæði til meltingarlækna og andlegra hreingerningarmanna.

Ég hef því tekið ákvörðun.

Ég ætla að treysta Steingrími J. þar til annað kemur í ljós.

Reyna að minnsta kosti.

Nú ætla ég að fylgjast með þinginu og umfjölluninni um Icesave eins og líf mitt sé undir.

Lesa allt sem ég kemst yfir um málið.

Og mynda mér skoðun út frá því.

Mér líður strax betur eftir að hafa tekið þessa ákvörðun.

Það er auðvitað haugalygi en ég ætla að láta Steingrím J. njóta vafans.

Engir í stjórnarandstöðunni hafa komið með sannfærandi rök.

Borgarahreyfingin er eins og kallinn á kassanum í Hyde Park.  Þ.e. spáir heimsenda með því að vísa í leyndarmál.

Fyrirgefið Sjálfstæðismenn og Framsókn eru með skoðanir eftir því hvar í þingsal Alþingis þeir sitja.

Treysti þeim ekki út í sjoppu með þúsundkall hvað þá að ég treysti þeim fyrir framtíð minni og annarra.

Úff.


mbl.is „Erfitt en verður að leysast"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sniðugt að velja manninn sem lýgur mest. Hann lofaði opnu og gagnsæu stjórnarfari. Síðan vildi hann ekki einu sinni sýna Icesave samninginn. Sagði að hann væri trúnaðarmál!!! Síðan kom í ljós að það var ósatt. Lengi skal manninn reyna, en mundu að það er á þína eigin áhættu. Best er að treysta engum. Vera vakandi. Hugsa sjálfstætt. Ef þú skilur ekki það sem verið er að segja þér, þá er eins líklegt, að sá sem flytur erindið skilji það ekki heldur. Þú treystir Steingrími, Steingrímur treystir Indriða, Indriði treystir Svavari, Svavar treystir hverjum?

Er ekki best að láta stór mál og smá þurfa að fara í gegnum gagnrýna umræðu? Er það ekki lexía undanfarinna ára? Dýrt var námskeiðið, - sérstaklega ef við lærum ekkert af því.

Doddi D (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 08:51

2 identicon

Ég veit ekki hvað vinnuveitendur mínir myndu nenna að hafa mig í vinnu ef ég væri endalaust að tifa á því hvað vinnan mín væri mér erfið, ég yrði annað hvort færður í minna krefjandi starf eða bara rekinn.

Halldór Lárusson (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 09:02

3 identicon

Auðvitað er þetta rétt hjá Steingrími.

En að ætla að leysa málið á kosnað kjósenda, en ekki þeirra sem stofnuðu til skuldana... RANGT !

heyrði af Björólfi yngri í Mónakó að spila í rúllettu... vonandi verður hann heppin....

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 09:08

4 identicon

Það hlýtur að vera erfitt núna að hafa kosið Vg í vor. Erfiðara tel ég þó vera að hafa kosið Samfylkinguna. Leynimálin í einkavæðingu bankanna; ríkisstjórnin treysti sér ekki til að hafa sitt fólk og heiðarlegt í skilanefndum bankanna. Fjórflokkurinn er steyptur í sömu vinnubrögð.

Rosa (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 09:20

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ég myndi frekar velja mér eitthvað af hópnum í VG sem ekki alltaf dansar eftir flokkslínunni, s.s. Lilju Mósesdóttur, Guðfríði Lilju eða Ásmund Einar.

Héðinn Björnsson, 21.7.2009 kl. 09:31

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Róleg, ég reiknaði ekki með að það brytust út fagnaðarlæti.

Ég er ekki að segja að ég vilji láta þjóðina borga Icesave.

Ég ætla bara að kynna mér málin sjálf nenni ekki þessari upphrópunarpólitík.

Capíss?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2009 kl. 09:43

7 identicon

Þetta er nú dæmigerð niðurstaða hjá kommum. Láta samflokksmenn sína pönkast yfir sig þangað til ekkert er eftir. Þetta sama syndrom átti sér stað þegar ORG var fjármálaráðherra. Þá var alþýðan og þeir sem kusu hann inn á þing látnir blæða með alls kyns sköttum s.s. matarsköttum öðrum sköttum sem komu auðvitað þeim lægst launuðu verst. Það þurfti helv. mikið til að fólk afneitaði þeim manni, en ekki lengi. Hann var verðlaunaður með forsetatign.

Núna eru VG að ganga á bak svo að segja alls þess sem stóð í þeirra stefnuskrá fyrir kosningar. Ef einhver hefði sagt að Ögmundur og Steingrímur J. hefðu forgöngu um að Ísland sækti um aðild að ESB, þá hefði sá hinn sami fengið á sig skaðabótakröfu frá þeim kumpánum. Það hefði engum dottið það í hug.

Hverjir voru það sem gagnrýndu Icesave mest fyrir bara nokkrum mánuðum? Rétt hjá þér, það voru VG forkólfarnir.

Nú er búið að gera stöðugleikasáttmála, þar á að virkja í neðri hluta Þjórsár. Hverjum ætlar þú að treysta í því?

Það var svo settur upp minnislisti eða aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar til 100 daga. Nú eru þessir 100 dagar senn liðnir og svo að segja öll mál sem sett voru fram eru enn óafgreidd. Amk öll þau mál sem varða almenning mest.

Enn er ónefnt mál sem á eftir að reyna á og er niðurskurður í velferðarkerfinu. Þar reynir líka á VG. Þú treystir þeim væntanlega til að byggja upp "skandinavískt velferðarkerfi" eins og Steingrimur nefndi það, en á sama tíma  að skera niður um 50 milljarða fram að áramótum!!!!!

Ég held að fólk sem ekki sér hvað er að gerast sé ekki með öllum mjalla.

joi (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 09:48

8 Smámynd: Skríll Lýðsson

"Þetta er nú dæmigerð niðurstaða hjá kommum."

þetta er orðið staðlað tilsvar "sjálfstæðis" fólks, og ég skrifa það innan gæsalappa því mér finnst hæðni fólgin í því að FLokkurinn sem seldi sjálfstæðið frá okkur skuli einmitt kenna sig við SJÁLFSTÆÐI...sömu svikarar í öllum flokkum.

Ef þetta iceslave mál verður samþykt þá verður stórbruni við austurvöll.

Skríll Lýðsson, 21.7.2009 kl. 11:12

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Þetta er að verða eins og fyrir hrunið. Ekki hlustað á viðvörunarorð. Vaðið áfram í villu og svíma og ekki hlustað á fólkið. Sami rassinn undir þessu fólki og fyrrverandi stjórn. Og ég kaus þessa fólk. Meiri asninn ég.

Rut Sumarliðadóttir, 21.7.2009 kl. 12:08

10 Smámynd: Arnar Guðmundsson

STÓR. SAMMÁLE

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 12:37

11 identicon

Ég er þér sammála í fyrrihlutanum, engum að treysta á alþingi engum.   'Eg þarf líka bráðlega að leggjast undir hnífinn, og veit að ég get ekki treyst nokkrum á þeim bæ heldur. Og doc. Sáli hefur sagt við mig að ég geti engum treyst, og engu breytt.  Svo vakna ég nú aftur aðgerð sem er í stærri kantinum, þá verða sennilega sömu fíflin við stjórnartaumana, og íslendingar jafn fáfróðir um ESB:(Lissabonsáttm.) Íslendingar verða ekki fróðari um ICESAVE.

errda baraekkialtílagi?

J.þ.A (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 12:50

12 Smámynd: Sævar Finnbogason

Eins og Steingrímur lét fyrir kosningar hlýtur hann að hafa góða ástæðu fyrir því u-beygjunni.

Ég get bara ekki grunað Steingrím um fara þá leið sem hann er að gera, nema hann teldi það bestu leiðina og hafa veinhverja vissu fyrir því, enda ber hann sjálfur ekki ábyrgð á hruninu.

Auk þess sem hann hefur mikla reynslu, ólíkt mörgum öðrum og er færari til að lesa út stöðunni flestir þessa.rra nýju þingmanna, eins og þeir hafa sýnt okkur með áberandi hætti

Sævar Finnbogason, 21.7.2009 kl. 16:43

13 Smámynd: Arnar Guðmundsson

FÁUM BER AD TREISTA NÚ

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.