Leita í fréttum mbl.is

Krúttíþróttir

Picture 360

Ég get ekki tekið svona íþróttaviðburði alvarlega.

En skil að sá sem keppir geti orðið fúll ef einhverjum er hjálpað yfir markalínuna og sá hinn sami sigri svo í þokkabót.

Ég þarf ekki að skilja alla hluti og því er það í góðu að fólk keppi hvert um annað þvert en plís ekki rífast um úrslitin.  Það er ekki íþróttamannslegt að gera það.

Maysa mín og Sara hlupu Landsbankahlaupið ár eftir ár. 

Sko Litla hringinn.

Og fengu medalíu.

Mayan sem var í fimleikaþjálfun allan ársins hring tók þessu alvarlega og æfði stíft og svona.

Sara sem líka var í fimleikaþjálfun tók þessu sem skemmtilegum leik og tjillaði sér í gengum hlaupið.

Þetta krútt lagði einu sinni lykkju á leið sína í miðju hlaupi og hringdi svo í pabba sinn úr sjoppu og bað hann að ná í sig.

Hafði keypt sér nammi bara og sá enga ástæðu til að vera að djöfla sér út þannig að undan blæddi.

Pabbi hennar náði í prinsessuna og ætlaði að keyra hana heim.

Sú stutta hélt nú ekki, lét hann setja sig úr á Tjarnarbrúnni.  Svo hljóp hún restina og fékk sér medalíu.

Hún var átta ára sko.

Og mamman engdist um í krúttkasti heima í stofu.

Já og skammaðist sín ekki vitundar ögn.

Picture 369

P.s. Medalíusvindlarinn er til hægri á báðum myndum.


mbl.is Deilt um úrslit í maraþoni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Iss, alltílagi að plata smá :)  annars ég er núna í Londres borg, var að gefa því auga hvort ég sæi ekki Oliver þinn, held ég hafi séð hann í einhverri auglýsingu, svei mér þá, litla krúttið.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 13.7.2009 kl. 15:50

2 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Að þú skulir segja frá þessu. Ég myndi sko hafa vit á því að halda kjafti ef fjölskylda mín ætti sér svona fortíð.

Emil Örn Kristjánsson, 13.7.2009 kl. 16:09

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Móðir undirförular og óheiðarlegrar dóttur, það er aldeilis!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.7.2009 kl. 17:23

4 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Þar með strípaðirðu áreiðanleikann af þér inn að beini! Prakkaradeppa!

Rúnar Þór Þórarinsson, 13.7.2009 kl. 17:35

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Þetta blogg fær fimm stjörnur. Fallegt og flott!

Sigurður Þorsteinsson, 13.7.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.