Leita í fréttum mbl.is

Spennandi

Víí hvað ég er glöð yfir að Sölvi skuli byrja aftur með þátt.

Málefnið sko.

Í kvöld er það Icesave. 

Kona er auðvitað alls ekkert komin með upp í kok af því, jeræt.

Engu að síður er nauðsynlegt að sitja undir helvítinu þar til að lausn fæst.

Þess vegna fagna ég því að Sölvi taki málið fyrir.

Rúsínan í pylsuendanum:

Tattammmm

Davíð Oddsson.

Hvaða sprengja fellur núna?

Bíð spennt.


mbl.is Davíð í Málefninu í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óspennandi efni, alltof mikið rætt, en nefndur þáttakandi þó enn minna spennandi og ennþá meira foræddur!

Þyrfti að borga mér fyrir að fylgjast með!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.7.2009 kl. 17:29

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

ofræddur!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.7.2009 kl. 17:30

3 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Góðan dag!

Getur einhver góðviljaður sett þennan þátt á netið, þar sem Skjár 1 næst ekki vestur um haf?

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.7.2009 kl. 17:30

4 identicon

Já gífurlega spennandi að sjá hvort hann hefur fengið minnið aftur.

hrolfur olason (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 17:35

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Er ekki Kardimommubærinn á þessum tíma ? Vil heldur sjá hann til að missa ekki vitið alveg.

Finnur Bárðarson, 13.7.2009 kl. 17:41

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jený, ef ég þekki Láru Hönnu rétt verður hún komin með allan þáttinn á bloggið sitt á morgun.

Finnur Bárðarson, 13.7.2009 kl. 17:51

7 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Sama hvað fólki kann að finnast um Davíð þá held ég fæstum þyki hann leiðinlegur og það hafa allir skoðun á því sem hann segir. Það er því útlit fyrir spennandi þátt og líflegar umræðu á kaffistofunni á morgun.

Emil Örn Kristjánsson, 13.7.2009 kl. 18:29

8 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég sá líka alveg ljómandi skemmtilegt viðtal um daginn (sem tekið var gegnum miðil haustið 1945) Þar var rætt við mann sem kvaðst hafa verið uppi í Þýskalandi framundir miðbik tuttugustu aldar og heita Adolf (Hitler eða eitthvað svoleiðis í eftirnafn). Hann sagðist alla tíð hafa séð fyrir að heimstyrjöldin seinni myndi enda með ósköpum og í viðræðum sínum við Göring og Himmler hefði hann sagt á þá leið að "þið getið herjað og eyðilagt allt í Póllandi og Rússlandi en þið hafið ekkert leyfi til þess að eyðileggja Þýskaland kálfarnir ykkar"!

Samt hefði verið látið alveg fáránlega illa við sig og vondir menn hefðu sótt að sér með vopnum og reynt að flæma sig útúr einhverju seðlabankalíku vel steyptu byrgi þar sem honum fannst hann eiga svo vel heima og vera þjóð sinni til gagns og sóma þar sem hann sat...

Jón Bragi Sigurðsson, 13.7.2009 kl. 20:01

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ætli Dabbi segi ekki bara fleiri sögur af ömmu sinni?

Brjánn Guðjónsson, 13.7.2009 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985717

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband