Leita í fréttum mbl.is

Á ekki einhver kartöflugarð?

Hafið þið pælt í því hvernig gott sumarveður gerir okkur Íslendinga brjálaða úr athafnasemi?

Ókei, ég veit ekkert um hvort sumarveðrið hefur svona áhrif á aðra en okkur á höfuðborgarsvæðinu enda skiptir landsbyggðin ekki máli.

Ekki neinu máli.

Við erum nafli þessa lands vér borgarbörn.

Ég hef sjálf orðið fórnarlamb sólarmaníu bæði í gær og dag.

Eins og frægt er orðið hentist ég til Þingvalla í gær og sú ferð kemst auðvitað á spjöld sögunnar.

Síðustu kaffigestir hinnar fornu Hótel Valhallar var kona nokkur, ákaflega fagurlimuð, hárfögur og smáfríð sem kom þar ásamt hjásvæfli sínum til margra ára og teyguðu þau svartan drykk úr glerskálum er bollar voru kallaðir á þessum skelfilegu umbrotatímum steingeldrar gróðahyggju Íslendinganna.

Síðan brann hið forna hótel til kaldra kola og hafa rústir þess aldrei fundist en munnmælasögur herma að gistihús þetta hafi staðið þar sem þinghelgi var til forna en í dag er skrautbílakirkjugarður merkur mjög.

En þetta var nú útidúr.

Ég riggaði upp öðru ferðalagi í dag.

Upp í Grafarvog til systur minnar.

Á leiðinni sá ég traktor í miðju íbúðarhverfi og hann andskotaðist þarna upp um allar brekkur og ég gat ekki betur séð en að bílstjórann vantaði.

Þá sagði ég við minn síðri helming:

Nei sjáðu, meira að segja vinnuvélar fá kast í góða veðrinu.

Og þá sagði hann að það væri skemmtilegt með svona sjálfstætt starfandi vinnuvélar og svo benti hann mér á mann sem kom gangandi ábúðarfullur mjög að vinnuvélinni og okkur fannst bæði athyglisvert og skemmtilegt hversu annar fótur mannsins var styttri en hinn.

Við vorum sammála um að þessi maður gæti ekki átt góða konu.

Ef þið eruð enn að lesa þessa andskotans vitleysu sem ég er að búllsjitta ykkur með þá eruð þið of kurteis og vel upp alin og þurfið að detta í það og skvetta ærlega úr sálarkoppnum og skandalísera svo um munar.Halo

En núna er ég farin að hvíla mig fyrir átök morgundagsins.

Spáin er góð.

Hvað á maður að gera á morgun?

Á ekki einhver kartöflugarð að lána mér eða eitthvað?

Úje.


mbl.is „Fólk skemmtir sér fallega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Brjáluð - eeen ættir að koma við á Skaganum, ekki lítið safn af allskonar kumböldum sem mega fara!

Knús á þig norn!

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2009 kl. 10:37

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er á leiðinni Edda mín með lista og allt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2009 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.